Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1990, Blaðsíða 7
Verða skattamálin örugglega eitt
meginviðfangsefna vetrarins.
Ýmis málefni voru svo fyrir tekin
m.a. um ferlimál, fund Ólafar og
Ásgerðar með ferðamálanefnd
samgönguráðuneytis, þar sem þær
bentu á brýn úrlausnarefni, starf Carls
Brand á vegum samráðsnefndar um
ferlimál fatlaðra vítt um land, sem
hefur skilað merkjanlegum árangri og
bréf Ferðamálaráðs um viðurkenningu
til einstakra aðila vegna aðgengis.
Formaður greindi frá þeirri óvissu,
semer um áframhaldandi starf
samráðsnefndar um málefni fatlaðra,
en stjóm Ö.B.Í, hefur lýst fullum
stuðningi við áframhaldandi starf
nefndarinnar og lagt til að fjölgað
verði fulltrúum í nefndinni, svo þar
gefist betri vettvangur til samráðs.
Þá rakti formaður enn baráttuna
við stjómvöld um úrbætur í húsnæð-
ismálum fatlaðra, fundi með forsætis-
og félagsmálaráðherra og bréfaskipti
á milli aðila.
Árangur má greina í ýmsu:
Samtökin Þak yfir höfuðið, sem Ö.B .í.
á aðild að, fengu fulltrúa í nefnd, sem
samdi frumvarp um Húsnæðisstofnun
ríkisins og í kjölfarið voru samþykkt
lög, sem ættu að gagnast fötluðum
einstaklingum.
Þá var sett ákvæði um úrbætur í
húsnæðismálum fatlaðra inn í kjara-
samning B.S.R.B. og fjármálaráðu-
neytis og þar þarf eftir að ganga.
Loks var svo þriggja manna
starfshópur settur til að gera
tillögur um tilhögun framkvæmda og
sátu í honum Anna Ingvarsdóttir
fulltrúi Ö.B.Í., Eggert Jóhannesson
frá Þroskahjálp og Grétar Guð-
mundsson aðstoðarmaður félags-
málaráðherra. Starfshópurinn skilaði
áliti fljótt og vel og þar er gert ráð fyrir
fjármögnun nokkurs fjölda íbúða úr
félagslega húsnæðislánakerfinu og
gert ráð fyrir nýjum stöðugildum
vegna fbúðanna s.s. vísir er að í
frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1991.
Samskipti við ríkisstjóm voru góð
og mikil og um margt árangursrík.
Þar áttu helzt í hlut félags-
málaráðherra, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra og menntamála-
ráðherra. Þar voru á döfinni hús-
næðismálin, tryggingamál og
húsnæðismál Geðhjálpar svo og sér í
Þegar Sjálfsbjargarfólk brosir, bráðnar allt.
lagi nám og námsefni á háskólastigi,
þar sem er mikið framtíðarverkefni í
ljósi þeirrar gleðilegu þróunar, að æ
fleiri fatlaðir leita í Háskólann.
Áður hefur verið ítarlega greint
frá frumvarpi um Stjórnarráð íslands
svo og ítrekuðum kröfum um eðlileg
framlög úr Framkvæmdasjóði
fatlaðra, en í þann sjóð gerir frv. til
fjárlaganú ráð fyrir 225 millj., sem er
tæplega að nái líklegum tekjum
Erfðafjársjóðsins.
Síðan ræddi formaður vandkvæði
félagsins Fötluð ungmenni á
íslandi, málefni Hjálpartækjabankans
og málefni Glits h.f., sömuleiðis
endurskoðun samnings milli
Öryrkjabandalagsins og Hússjóðs,
endurskoðun laga um málefni fatlaðra
og íslenzkt tölvutal, en öllu þessu hafa
verið gerð þokkaleg skil hér í
Fréttabréfinu og auk þess voru Glit
h.f. og Hjálpartækjabankinn sérliðir á
dagskrá.
Hann rakti góð og gagnleg
samskipti sín við tryggingayfirlækni,
en tryggingayfirlæknir hefur leitað
umsagnar Öryrkjabandalagsins í
ýmsum efnum og eins hefur Ö.B.Í.
þurft að leita til hans um margvísleg
réttindamál öryrkja: örorkumat,
hjálpartæki og tryggingabætur
almennt svo og varðandi alþjóðlega
samvinnu. Þá vék formaðurinn í lokin
að ýmsum, einstökum málum og
fagnaði sér í lagi að í vöxt færi að
bandalagið fengi til umsagnar
lagafrumvörp og reglugerðir.
Þá var eftir skýrsla samvinnu-
nefndar Ö.B.Í. og Þroskahjálpar sem
formaður flutti einnig, en þar verður
höfundur Helgi Hróðmarsson fenginn
til að fræða okkur sérstaklega síðar.
Þá voru aðrar skýrslur fluttar:
Tómas Helgason formaður stjómar
Hússjóðs Ö.B.Í. flutti því næst skýrslu
stjórnar og framkvæmdastjóra Önnu
Ingvarsdóttur.
Og þá flutti að lokum skýrslu,
Einar Aðalsteinsson framkvæmda-
stjóri Vinnustofa Ö.B.Í. Báðar verða
að mestu birtar í blaðinu. Skýrslur
aðildarfélaga lágu frammi og voru að
vanda greinargóðar mjög.
í umræðum kom m.a. þetta fram:
Magnús Kristinsson minnti á gott
starf leikhópsins Perlunnar, kvað
vafasamt að setja enn á ný endur-
skoðuð sérlög um fatlaða. Hann
þakkaði samstarf Hússjóðs og
Styrktarfélags vangefinna.
Anna María Sveinsdóttir færði f.h.
Svæðisstjórnar Austurlands alúðar-
þakkir fyrir hið góða framtak Hússjóðs
á Austurlandi.
Gísli Helgason kvað æskulýðsstarf
mjög brýnt og þar þyrfti stýrimaður
samtakanna að vera í forystu um
samhæfingu æskulýðsstarfs hinna
ýmsu félaga.
Hann hvatti Ö.B.Í. til að þrýsta á
stjórnvöld til að veita fé til viðhalds
heimila og sambýla fatlaðra.
á urðu nokkrar umræður um
viðhorf manna til hugmynda
stjórnar Hússóðs um byggingu 20
íbúða húss við lóðina við Sléttuveg,
en Tómas Helgason hvatti til
skoðanaskipta. Flestir töldu þessa
hugmynd æskilega við þessar
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
7