Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1990, Page 15
menntunar fyrir alla, hvar sem þeir
eru búsettir og hvemig sem aðstæður
þeirra eru. Bréfaskólinn hefur sérhæft
sig í fjarkennslu og er öllum opinn,
allt árið.
Ólíkt því sem gerist í hefðbundinni
kennslu geta kennarar og nemendur
verið búsettir hvar sem er á landinu
eða í mörgum lönd um því að samskipti
þeirra fara fram með bréfum, hljóð-
snældum, sjónvarpi. í síma eða með
tölvum.
Fjarkennsla hefur lengi verið við
lýði víðaíheiminum, í u.þ.b. heilaöld
en ör þróun í fjarskiptatækni á síðustu
árum og almenn notkun útvarps,
sjónvarps og síma hefur gefið þessari
kennslu byr undir báða vængi.
í starfi okkar í Bréfaskólanum
leggjum við kapp á að nýta sem mest
hina nýju tækni, sem nú er á boð-
stólum, til að efla og auka persónuleg
samskipti kennara og nemenda og gera
námið aðgengilegt sem flestum.
Bréfaskólinn býður upp á bréfa-
nám, þ.e.a.s. fjarkennslugegnum bréf.
Einnig eru notuð hljóð- og myndbönd
þegar það á við. Myndsenditæki
(símafax) er nú tekið í notkun í
samskiptum kennara og nemenda og
tölvunotkun er í undirbúningi.
Símaviðtalstímar verða æ algengari
hjá kennurum Bréfaskólans.
Enda þótt hljóðsnældur, mynd-
bönd, tölvur og ýmiss konar tækni
geti haft mikinn áhrifamátt í fjar-
kennslu, þegar það á við, sýna
rannsóknir og reynsla manna af
fjarkennslu að hönnun námskeiða,
kennslufræðilega vel unnin kennslu-
bréf og samskipti nemenda og kennara
skipta mestu máli um námsárangur.
Ritað mál eða kennslubréf munu því
áfram verða snar þáttur í vel
skipulagðri fjarkennslu.
Bréfakennsla gefur nemandanum
meira frjálsræði en nokkur önnur
kennsla en leggur honum jafnframt
meiri ábyrgð á herðar. Þeir sem komast
upp á lagið með bréfanám þroska með
sér sjálfsaga og sjálfstæði í vinnu-
brögðum sem alls staðar kemur að
góðu gagni.
Nemandinn ræður sjálfur náms-
hraðanum, hann sparar tíma og ferða-
kostnað og óreglulegur vinnutími
kemur ekki að sök og hann þarf ekki
að hætta í vinnunni þó að hann fari í
nám í Bréfaskólanum. Þegar lausar
stundir gefast er hægt að nota þær til
náms og vera sinn eigin herra.
Bréfakennsla er þaulreynd aðferð
sem gefur góðan árangur.
Nemendur Bréfaskólans eru á
öllum aldri, frá 12—85 ára og koma
úr öllum stéttum þjóðfélagsins, alls
staðar á landinu. Á hverju ári innritast
um og yfir 1000 nýir fróðleiksfúsir
nemendur.
Við erum stolt af nemendum okkar
og kappkostum að styðja við bakið á
þeim í náminu.
Velkomin í Bréfaskólann
Guðrún Friðgeirsdóttir,
skóiastjóri.
JÓLASAGA
Frá því að ég man fy rst eftir mér,
hafa jólin og aðventan verið sá
árstími sem sem ég hef ætíð hlakkað
til. Þó ég hafi aldrei verið mikill
þátttakandi í öllu því veraldarvafstri
sem einkenna vill undirbúning
jólanna, hefurhugurminn ætíðfyllst
sérstakri eftirvæntingu.
Til baka litið hefur þessi hátíð
sína svipuðu sögu nema síðustu jól
sem ég vil segja ykkur frá.
Aðstæðuríeinkalífi mínuurðu
þess valdandi að ég varð að fly tjafrá
heimili mínu í nóvemberbyrjun.
Undangengnir mánuðir höfðu verið
mér hinir erfiðustu í öllu mínu lífi.
Ég þóttist því hafa himin höndum
tekið er ég fékk húsaskjól hjá
ættingjum m ínum. En fjórum dögum
fyrir jólahátíðina vaknaði ég árla
morguns við hróp, umlukinn
sótsvörtum þykkum reyk í eldhafi.
Naumlega komumst við út og nú
var sem öll vandamál hversdaga
viku. Ég gerði mér grein fyrir að
engu mátti muna að við öll sem
þarna gistum þessa nótt týndum
okkar lífi og nú dvaldi hugur minn
Ágúst ÓIi Óskarsson.
hjá sy stur minni og syni hennar sem
tvísýnt varum.
Að verða fy rir þessháttar rey nslu
framkallaðiíhugaminn skelfilegan
kulda og doða. Mér var ömun að
öllu þessu jólakjaftæði sem gagntók
allafjölmiðla. Núhafði lífmittsvo
sannarlega mulist niður í ryk og
ösku.
Ég var peningalaus, húsnæðis-
laus og ástvinir ekki þess megnugir
að rétta mér hjálparhönd þessa
dagana. Allir áttu nóg með sig. Það
skelfilegasta við þetta allt saman
var að ég hafði ekkert hlutverk,
enginn þarfnaðist mín og ég hafði
ekkert að gefa. Var ég sannfærður
um að ekki var til aumari mannvera
í samfélaginu. Þegar ég svo kom í
félagsmiðstöð Geðhjálpar sem ég
var oft vanur, vopnaður þessum
svörtu hugsunum, heyrði ég mér til
mikillar furðu að fleiri en ég
burðuðust með svipaðar hugsanir
daginnlangan.
Allt í einu heyrðist myndug rödd
er tilkynnti að nú skyldi haldið
aðfangadagskvöld hátíðlegt þar, því
það væru ótrúlega margir sem höfðu
engan til að deila með jólunum.
Sárlega vantaði einhvern til að hafa
umsjón með herlegheitunum og vera
næturvörður líka. I einu vetfangi
var byrði af mér létt. Þarna var kjörið
tækifæri fyrir mig að gera öðrum
gott ognjótasjálfurþeirraránægju
að gefa og þiggja í anda jólanna.
Jólin þessi urðu mér einkar
minnisstæð, full af friði og þakklæti
til skaparans fyrir að fá að vera til.
Ágúst Óli Óskarsson.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
15