Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1990, Side 23
Ágústa Guðmundsdóttir:
Viðhorf mitt til vinnunnar
Erindi á ráðstefnu Ö.B.Í
Góðir ráðstefnugestir!
stæða fötlunar minnar er sú að
églenti í slysi í október 1979.
Ég var komin út á vinnumarkaðinn í
júlí 1981. Ég var svo lánsöm að mér
bauðst vinna hjá Þýzk-íslenzka h.f.
Aðgengi á vinnustað var mjög slæmt,
bæði voru tröppur inn á skrifstofuna
og einnig var salernisaðstaða
ófullnægjandi. En þettabjargaðistallt
hjá mér með aðstoð vinnufélaga.
Fyrirtækið flutti í nýtt húsnæði í ágúst
1982. Ég var alveg höfð með í ráðum
þegar hönnuð var vinnuaðstaða fyrir
mig á vinnustað. Ég starfa enn í dag
hjá Þýzk-íslenzka h.f., fór í
Starfsþjálfunfatlaðraþegarhún hófst,
og álít mig hafa lært ýmislegt þar sem
hefur komið að góðum notum í mínu
starfi. Ég byrjaði við símavörslu en
svo í gegnum árin hafa bæst á mig
almenn skrifstofustörf. Ég held að ég
MS-FÉLAG íslands hefur gefið út
hið læsilegasta fræðslurit, sem ber
heitið: Það sem allir ættu að vita um
Multiple Sclerosis. Þetta er mjög
greinileg og skýr lesning og vel sett
upp—vekur ti I umhugsunar og athygl i
og er félaginu til hins mesta sóma. Þar
er í samanþjöppuðu en ljósu máli
fjallað um helstu þætti þess sem fólk
þarf að fá vitneskju um varðandi
sjúkdóminn.
Sem dæmi um efnisþætti fræðslu-
ritsins skal tæpt á fáeinum atriðum til
nokkurs fróðleiks fyrir þá, sem fýsir
að fá ritið til eignar og raunar alla. Það
er varpað fram spurningunni um það
hvað MS sé, þar sem hugtökin multiple
og sclerosis eru skýrð nánar. Þar næst
er farið yfir í fræðslu um MS, en þar
kemur fram að tæplega 200 Islending-
ar hafa greinst með MS. Svo er glögg
lýsing á því, hvemig MS skaðar
miðtaugakerfið og þá er það gátan
mikla: Hver er orsök MS? Varpað er
fram þremurtilgátum: veirum, ónæm-
issvörun eða sambland af hvoru
Ágústa Guðmundsdóttir.
sé bara með alveg sambærileg laun
við vinnufélaga mína.
Ég nota Ferðaþjónustu fatlaðra í
og úr vinnu, sem ég tel mjög
nauðsynlega þjónustu. Ég hef orðið
tveggja.
Hins vegar er það svo áréttað að
hér er um að ræða eina stærstu gátu
læknisfræðinnar. S vo er komið að því,
hver fær MS-sjúkdóminn, en þar
kemur m.a. fram að MS er aðallega í
hvíta kynstofninum. Þá er fjallað
ítarlega um hin mjög svo breytilegu
einkenni MS, svo og hversu greining
á MS getur verið erfið og oft tekið
mörg ár.
S vo er rækilega á það bent að hægt
sé að lifa virku, sjálfstæðu og ham-
ingjusömu lífi, þrátt fyrir vanlíðan
öðru hverju, þar sem m.a. kemur fram
að þrír af hverjum fjórum MS-sjúkl-
ingum lifa virku lífi í mörg ár eftir að
þeir fá MS. Það er ekki alltaf ástæða ti 1
örvæntingar, segir þar.
Þá er mjög athyglisverður kafli
um meðferð við sjúkdómnum og
æskilegaþjónustuum leið.Meðferðin
miðast við heilbrigða lífshætti, sjúkra-
og iðjuþjálfun, félagslega aðstoð,
lyfjameðferð og reglulegt eftirlit.
Þjónustan er læknisfræðileg og
vör við það hjá fólki að það heldur að
fatlað fólk vinni ekki og ef sá
hugsunarháttur breyttist þá yrði
auðveldara fyrir fatlaða að fá vinnu.
Ég tel alveg nauðsynlegt að fatlaðir
hafi atvinnu jafnt og þeir sem eru
ófatlaðir. Ég er ánægð í mínu starfi, en
auðvitað koma dagar þar sem mig
myndi langa til að skipta um starf. En
þá þarf að hafa margt í huga þ.ám.
vinnuaðstöðu, aðgengi og sérstaklega
skiptir salemisaðstaða mig mjög miklu
máli.
Ég er mjög samviskusöm og mig
vantar nánast aldrei í vinnu. Ég álít að
atvinnurekendur ættu ekki síður að
ráða fatlaða í vinnu en ófatlaða. Það er
engin spurning.
Ágústa Guðmundsdóttir.
Ágústu er þakkað innleggið.
félagsfræðileg, áherzla lögð á fjöl-
breytta tómstundamöguleika og síðan
er vikið að upplýsingaþjónustu og
fræðslu fyrir alla þætti þar í kring.
Að lokum er vikið að þeim rann-
sóknum, sem sífellt eru í gangi og
þeim þætti lýkur á áminningarorð-
unum: Peningar, tími og þolinmæði
geta leyst gátuna um MS.
Lokaorðin snerta þig og mig:
Þú getur hjálpað MS-fólki og
fjölskyldum þess.
Þú getur:
a) Kynnt þér hvað MS er og frætt
aðra.
b) Gerst styktarmeðlimur.
c) Barist fyrir bættri aðstöðu
fatlaðra.
Hjálpað þeim til sjálfsbjargar.
MS-félag íslands hefur skrifstofu
í Skógarhlíð 8 — sími 621414. Þarer
veitt félags- og læknisfræðileg aðstoð.
Og svo eiga lesendur Fréttabréfsins
a.m.k. að vita vel af MS-félaginu og
starfsemi þess í Álandi 13, sími
688620. Fræðsluritið geta menn fengið
á báðum stöðunum.
H.S.
FRÆÐSLURIT MS-FÉLAGSINS
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
23