Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1990, Blaðsíða 32
Einar Aðalsteinsson fr.kv.stj.:
Vinnustofur Öryrkjabandalagsins
Vinnustofur Ö.B.Í. samanstanda af
tveimur vernduðum vinnustöðum,
Tæknivinnustofu Ö.B .í. (Örtækni) og
SaumastofuÖ.B.Í.
Um síðustu áramót urðu breytingar
á stjórn vinnustofanna, en þá lét Anna
Ingvarsdóttir af embætti sem fram-
kvæmdastjóri þeirra, en við tók Einar
Aðalsteinsson. Anna hafði gegnt starfi
framkvæmdastjóra frá stofnun Örtækni
í nó vember 1976, en Einar hefur gegnt
starfi tæknilegs framkvæmdastjóra
Örtækni frá árinu 1977. Forstöðumaður
saumastofunnar er Guðrún Ólafsdóttir.
Yfirstjórn vinnustofanna er í
höndum Framkvæmdaráðs Ö .B .1.
Örtækni
Starfsmenn Örtækni eru í dag
fjórtán, þar af tíu fastráðnir. Aðrir eru
ráðnir til 7 mánaða í senn. Nýir starfs-
menn byrja á eins mánaðar reynslutíma,
en síðan tekur við allt að 6 mánaða
þjálfunartími. Fremur er erfitt að fá
starfsfólk sem veldur vel þeim verkefn-
um sem fyrir liggja, en flestir þeir sem
ráða við verkefnin eru endurráðnir.
V egna mannfæðar er erfitt að veita
nýjum starfsmönnum viðhlítandi
starfsþjálfun og því orðið tímabært að
ráðinn verði verkstjóri eðaleiðbeinandi.
Helstu verkefni í dag:
Símavinna
Siminn hefur lagt til þó nokkuð af
verkefnum undanfarið, en verkefni voru
fremur rýr fram að sumarfríi. Fjórir
einstaklingar vinna við símaverkefni á
hvorri vakt.
Kapalframleiðsla
Kapalframleiðsla hefur dregist
nokkuð saman, sérstaklega í stöðluðum
köplum fyrir prentara. Innflutningur á
tilbúnum köplum frá Taiwan gefur í
staðinn nokkurn ágóða. Reiknað er með
að auka fjölbreytni í innflutningi, sem
bætir samkeppnisstöðuna í framleiðslu
sérkaplaeftir þörfum viðskiptavinanna.
T alsverð vinna er fólgin í að fylgjast
með nýrri tækni og nýjungum í efnisvali
til að geta boðið nýja vöru.
Einar Aðalsteinsson.
Breytingar á
tækjabúnaði
V inna við breytingar á tækjum hefur
verið drjúgur þáttur í starfseminni og
hentar oft vel fyrir öryrkja.
Breytingar á símtækjum fyrir Heklu
h.f. og ljóskösturum fyrir Borgarljós
h.f. eru í gangi, en bæði þessi verkefni
hafa verið í gangi um nokkurt skeið.
A árinu 1989 fóru m.a. fram breyt-
ingar á um 1000 skjástöðvum fy rir Einar
J. Skúlason h.f. og öllum lottókössum
íslenskrargetspár.
Samsetning
rafeindatækja
Örtækni fékkst í upphafi einkum
viðframleiðslurafeindatækja. Undan-
farin ár hefur hins vegar ekki verið
mikið um verkefni af þessu tagi, en þó
alltafeitthvað.
Nú virðist sem talsvert verði af slík-
um verkefnum í framtíðinni, og ber þar
hæst samvinna við Rafiðn/Rafagna-
tækni um ásetningu íhluta á prentrása-
plötur og starfrækslu lóðvélar í eigu
Rafiðnar.
Þegar hefur talsvert verið um verk-
efni við ásetningu fyrir Rafiðn í sumar
og haust. Þess má geta að Rafiðn mun
hafa með höndum framleiðslu á laxa-
og seiðateljurum fyrir Vaka-Fiskeldis-
kerfi h.f., sem væntanlega mun gefa
veruleg verkefni við ásetningu á
prentplötur.
Auk ofangreindra verkefna mun
aðstaða og vélakostur nýtast til verkefna
fyrir aðra aðila og eru þegar á borðinu
tvö slfk verkefni.
Saumastofa
A saumastofunni hefur verkefna-
öflun einnig gengið betur síðustu
mánuði, eftir samdrátt undanfarið ár.
T aupokar fy rir ríkispftalana eru komnir
í vinnslu á nýjan leik, ásamt sængur-
verum.
Talsvert hefur verið saumað af
vinnufötumfyrirmötuneyti skóla íhaust
og fyrir hótelin í vor og sumar.
Einnig hefur verið leitað til ríkisspft-
alanna um saum á vinnufatnaði starfs-
fólks, en ekki fengist til þessa.
Framleiðslafermingarkyrtlahefur
verið fastur liður í mörg ár og verður
það áfram. Reynt verður að ná til minni
sókna álandsbyggðinni, þar sem stærri
sóknir hafa flestar þegar keypt kyrtla
hjáokkur.
Gerður var myndalisti yfir fram-
leiðslu saumastofunnar og er verið að
senda hann út um landsbyggðina um
þessarmundir, m.atil sjúkrahúsa. Ekki
er að búast við viðbrögðum fyrr en með
haustinu.
Framundan er framleiðsla kórkyrtla,
keppnis vesta og sængurfata fyrir ríkis-
spítalana, en annars er ekki vitað um
stórverkefni sem stendur.
Fjármál
Vinnustofurnar eru reknar með
nokkru rekstrartapi, sem greiðist af
fjárlögum í samræmi við lög um málefni
fatlaðra. Ekki er tekið tillit til stofn-
kostnaðar eða afskrifta við útreikning
rekstrartaps, og verður því að sækja um
fjármögnun sérstaklega til Fram-
kvæmdasjóðs fatlaðra vegna uppbygg-
ingarog endurnýjunartækjabúnaðar.
Sótt hefur verið um styrk til
tækjakaupa fyrir báðar vinnustofurnar.
Fyrir saumastofu er umsókn vegna
kaupa á saumavélum o.fl., en Örtækni
sækir um fjárveitingu vegnatækjakaupa
fyrir ásetningu á prentplötur, ásamt
tölvukerfi og prófunarbúnaði.
Lítið hefur verið sótt í Fram-
kvæmdasjóð til þessa og því vonast
eftir jákvæðum viðbrögðum.
okt. 1990,
Einar Aðalsteinsson.
32