Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Qupperneq 42
Molar til meltingar
s
Iumræðu um væntanlega
stefnuskrá bandalagsins
hafa ýmsar athygliverðar
hugmyndir komið fram og
margar þeirra munu eflaust
eiga eftir að fá glögga út-
færslu í endanlegri stefnu-
skrá.
Meðal þess sem þar var
mjög rætt, og er auðvitað
hvergi nærri í fyrsta sinn,
varðar það hversu efla megi
tengsl bandalagsins og
landsbyggðarinnar, þeirra
mörgu fötluðu sem búa
dreift um byggðir landsins.
Þetta tengist að sjálfsögðu
nokkuð uppbyggingu fé-
laganna innan bandalagsins
sem eru grunneiningar þær
er bandalagið byggir í raun
tilveru sína á.
Sum félaganna eru með
deildir úti á landsbygggð-
inni og eru þannig bein-
tengd við fólkið þar með
þeim hætti, önnur eru með
deild nyrðra og þá í kring-
um Akureyri og enn önnur
eru hrein landsfélög þar
sem einstaklingsaðild ein er
að félaginu og þá auðvitað
ákveðin tengsl um leið.
Stundum hefur verið um
það rætt að koma á úti í
hverjum landshluta félög-
um fatlaðra í víðastri merk-
ingu og ná þannig upp
nokkru starfi hvarvetna og
um leið ákveðinni tengingu
þar við, en margt hefur þótt
mæla þar í gegn m.a. mögu-
legir árekstrar við deilda-
skipt félög okkar og svo hitt
að um mjög ólíkar fatlanir
er að ræða og sitthvað gildir
um sumt, þó einnig sé
margt sem sameinar.
Ef litið er til ýmiss konar
fyrirgreiðslu og aðstoðar
bandalagsins þá gildir það
eðli máls samkvæmt að
yfirgnæfandi hluti erinda er
frá fólki á suðvesturhominu
- Stór-Reykjavíkursvæðinu
þó sér í lagi. Hins vegar er
líka talsvert um fyrirspurnir
og erindi utan af lands-
byggðinni sem reynt er að
ley sa úr ekki síður og er það
gott gleðiefni, en mætti
sannast sagna vera meira og
skipulagðara.
Auðvitað blandast svo
inn í allt þetta hver
tengsl bandalagsins og ein-
stakra félaga þess eru, auð-
vitað um margt misjöfn en
hljóta þó að teljast vel við-
unandi og liður í því er að
hvert félag bandalagsins á
fulltrúa í stjórn þess.
Ymsar leiðir til nánari
tengsla hafa verið reifaðar
og ræddar og alveg ljóst að
einhver skipan mála sem
skapað gæti a.m.k. góðan
viðræðuvettvang er bráð-
brýn. Náið samstarf við
svæðisskrifstofur fatlaðra í
héruðunum þar sem ákveð-
in vitneskja um fatlaða á að
vera fyrir hendi yrði eflaust
til bóta en mála sannast að
svæðisskrifstofurnar hafa í
ríkum mæli einbeitt sér að
þroskaheftum og fjölfötl-
uðum, þó á hafi orðið all-
nokkur breyting og útvíkk-
un svo og er í dag spurning
um framtíðarhlutverk
þeirra miðað við möguleg-
an tilflutning málaflokksins
frá ríki til sveitarfélaga.
Fundahöld með fötl-
uðum í hverjum landshluta
hljóta og að koma til álita
og auðvitað ber að kanna
ákveðinn erindrekstur einn-
ig-
Hússjóður bandalagsins
á nú orðið íbúðir í öllum
landshlutum og sums staðar
talsverðan fjölda og við það
er ákveðin tenging bundin,
svo ágæt aðgerð sem þar er
á ferð.
Einhverjar aðgerðir eru
nauðsynlegar svo ofurljóst
sé öllum fötluðum alls stað-
ar á landinu að í Öryrkja-
bandalaginu eiga þeir ör-
uggan, virkan bakhjarl, sem
á einnig erindi við þá.
**
I starfinu að stefnuskránni
kom einnig mjög til um-
ræðu, hvernig auka mætti
tengsl bandalags og fjöl-
miðla og komu fram ýmsar
ágætar hugmyndir til að ná
þar sem beztum árangri.
Sannast sagna er mis-
jöfn mjög reynsla okkar af
öllum tjölmiðlasamskipt-
um.
Má aðeins nefna þar til
tómlæti fjölmiðla um margt
á okkar vettvangi sem okk-
ur þykir ærin ástæða til að
um sé fjallað og sé um leið
ágætt fjölmiðlaefni til fróð-
leiks svo mörgum úti í
samfélaginu. Með ýmsu
rnóti var t.d. reynt að ná til
fjölmiðla og vekja athygli
þeirra á ráðstefnu banda-
lagsins um meginreglur SÞ,
en án annars árangurs en
þess að Ríkisútvarpið -
hljóðvarp gerði ráðstefn-
unni góð skil. Aðrir sáu
ekki ástæðu til þess að
skipta sér af eða gera tilraun
til að miðla fróðleik frá ráð-
stefnu þar sem fram fór hin
fyrsta almenna kynning á
þessum meginreglum SÞ
um jafna þátttöku fatlaðra.
Sömuleiðis sendum við
fréttatilkynningu til fjöl-
miðla um aðalfund banda-
lagsins og þær ályktanir
sem þar voru gerðar, en
sannast sagna höfum við
fjarska fátt af þessu í fjöl-
miðlum séð og heyrt.
Hins vegar má segja það
að í tengslum við fjárlaga-
frumvarpið nú höfum við
átt þess allgóðan kost að tjá
okkur við hina ýmsu fjöl-
miðla og greinaskrif öll
greiðlega verið tekin.
En vissulega skiptir mál-
staðinn miklu að fá sem
bezta umfjöllun fjölmiðla,
einkum í ljósi þess áhrifa-
máttar er fjölmiðlar hafa í
dag.
Allra leiða verður því að
leita til að ná þar fótfestu
sem allra bezt.
42