Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Blaðsíða 48
Félagið Heyrnarhjálp
er hagsmunasamtök heyrnarskertra
Það lætur nærri að 10% íslensku þjóðarinnar 20.000 manns, séu heyrnarskertir. Brýnustu
baráttumál okkar eru m.a. að stuðla að því að kostnaður heyrnartækjanotenda verði minni
vegna heyrnar- og hjálpartækja. Aðgengismál heyrnarskertra eru og afar brýn og því er
nauðsynlegt að tónmöskvar verði settir upp í sem flestum opinberum byggingum. Réttindi
heyrnarskertra til rittúlkunar þarf að tryggja og endurhæfingu þarf að auka og efla.
í byrjun desember flutti Heyrnarhjdlp þjónustuskrifstofu
sína að Snorrabraut 29,101 Reykjavík
Húsið stendur á horni Snorrabrautar og Laugavegs, gegnt Tryggingastofnun, gengið beint inn
frá götunni Snorrabrautarmegin. Staðsetningin er góð fyrir þá sem nota strætisvagna því hús-
næðið er nálægt Hlemmi. Aðgengi að húsinu er og prýðilegt. Rafhlöðusala og öll önnur
þjónusta og ráðgjöf við heyrnarskerta verður til staðar á Snorrabrautinni.
Snorrabraut 29
Stjórn Heyrnarhjálpar, formaður og framkv.stj.
Skýrmazltasti fjölmiðlamaðurinn
Félagið Heyrnarhjálp hefur ákveðið að velja þann fjölmiðlamann sem hefur hvað skýrasta
framsögn og veita honum viðurkenningu. - Með fjölmiðlamanni er átt við alla þá sem flytja
talað mál í útvarpi eða sjónvarpi.
Óskað er eftir skriflegum ábendingum frá almenningi og þurfa þær að berast Heyrnarhjálp,
Snorrabraut 29, fyrir 1. febrúar 1996. Þriggja manna dómnefnd, skipuð af Heyrnarhjálp, mun
velja þann sem hlýtur viðurkenninguna. í dómnefndinni sitja: Gylfi Baldursson, heyrnar- og
talmeinafr., Sigrún Hjálmtýsdóttir, söngkona og Jóhanna S. Einarsdóttir, framkv.stj.
Formlega verður tilkynnt um niðurstöður dómnefndar þann 1. mars 1996. Myndlistarmaður
verður fenginn til þess að hanna verðlaunagrip til handa skýrmæltasta fjölmiðlamanninum.
Við viljum með framtaki þessu stuðla að því að þeir sem koma fram í útvarpi og sjónvarpi
temji sér metnað, tali skýrt og greinilega og verði þar með áheyrilegri. Þannig njóta hinir
heyrnarskertu og fullheyrandi betur hins talaða máls.