Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 3

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 3
/ •• / Asgerður Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri OBI: EN SAMT KEMUR SUMARIÐ “Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?” ■ Xið héldum það. Ég minnist 1/ þess að á fyrstu árum mínum V í þessum málaflokki heyrði ég oft þessa setningu: “Ég vil ekki vera að sækja neina ölmusu til ríkis- ins”. Þar var átt við lífeyri almanna- trygginga - örorkubætur - sem þá voru kallaðar. Það tók langan tíma að koma því inn hjá mörgum að þetta væri ekki ölmusa heldur skýlaus réttur viðkom- andi. Ef þú varst þannig í stakk búinn að geta ekki af heilsufarsástæðum séð þér farborða með vinnu áttirðu rétt á lífeyri frá ríkinu. Það kostaði að sjálf- sögðu læknisferðir og allskonar skrif- finnsku en þetta var og er réttur, sem viðkomandi á samkvæmt landslögum. Nú í seinni tíð fer maður að hugsa með sér: Berst orðið einhver ölmusufnykur með velferðarblæn- um? Erum við aftur að komast á það stig að verið sé að skammta fólki skít úr hnefa? A að gera lítið úr mann- eskjunni og láta fólk hætta að geta tekið við lífeyri sínum með reisn? Eig- um við að þurfa að fara einhvern bón- arveg að yfirvöldum til þess að fá jafnsjálfsagðan hlut að hægt sé að lifa þokkalegu lífi af örorkulífeyrinum? Gremjan á sér engin takmörk þegar maður fer að hugsa á þennan veg. Afhverju á alltaf að skera niður hjá þessum hópi? Afhverju dettur yfir- völdum aldrei neitt annað í hug en niðurskurður á þessum vettvangi. A ég að segja ykkur afhverju? Þessi hópur liggur nefnilega svo vel við höggi. Það er bannað að lækka laun fólks en með lagabreytingum og síð- ast en ekki síst afturköllun heimilda í lögum er hægt að klípa af þessum lífeyri - lækka hann og minnka á allan hátt þangað til þetta fólk er orðið fá- tækt fólk. Er það þetta sem yfirvöld, sem ætla að halda velferðarkerfinu gangandi vilja? Ásgerður Ingimarsdóttir. Við höfum stært okkur af því íslendingar að velferð okkar sé mikil. Vorum við ekki afskaplega hamingjusöm þjóð samkvæmt skoð- anakönnunum fyrir nokkrum árum? En er ekki hamingja okkar einmitt fólgin í að láta öllum líða vel og hugsa um þá sem minna mega sín. En þeir mega sín minna af því heilsan hefur bilað. Það gefur sér enginn heilsuna sjálfur. Það ætlar sér enginn að missa heilsuna á besta aldri eða lenda í slysum. Það er hægt að segja að það sé hver sinnar gæfu smiður og hafi hamingjuna í hendi sér. Það er alveg rétt. En ófyrirséðir hlutir geta alltaf gerst eins og heilsubrestur og slysfarir. Við skulum ekki gleyma því. Það hafa svo margir góðir hlutir gerst í mála- flokki fatlaðra á undanförnum árum. Viðhorfið er svo allt annað en var hér áður fyrr. Þessvegna má ekki koma afturkippur í þetta góðæri. Þessvegna verðum við að berjast fyrir því að halda því sem áunnist hefur. Ekki er nú hægt að segja að það sé upplífgandi á vinnustað að þurfa endalaust að vera að mótmæla í ræðu og riti. Það er varla friður til þess að vinna neitt annað og maður vill ekki alltaf vera með eitthvert svarta- gallsraus. En kannski hefur líka skort á að upplýsa þá sem með fjármálin fara í landinu um ýmislegt í málefnum fatlaðra. Það sagði einhver að alþing- ismenn þyrftu að fá einhver námskeið, sem upplýstu þá betur t.d. í lífeyris- málum öryrkja. Þetta er mikill frum- skógur að brjótast í gegnum og kannski ekki von að allir viti hvað er uppbót og sérstök uppbót. En þetta eru þær bætur, sem er heimild fyrir en eru ekki beint festar í lögum sem skyldu- bætur. Og þetta er sá hluti örorkulíf- eyrisins, sem hægt er að hringla með út og suður. En það er rnesta furða hvað þeir sem vinna við þessi mál hafa þó getað greitt úr þessum tlækj- um og komist að kjarna málsins til þess að reyna af veikum mætti að koma í veg fyrir að allar þessar heim- ildarbætur hverfi. Við höfum fullan skilning á sparnaði. Enginn þekkir það betur en þessi hópur hvað það er að spara. Mér dettur í hug skrýtlan um prestinn sem vandaði um við sóknar- böm sín hvað þau væru að hlaða niður börnum, sem þau vissu svo ekki hvemig þau ætluðu að fæða og klæða. Bóndinn sagði: “Stendur ekki í bibl- íunni, verið frjósöm og uppfyllið jörð- ina?”, en presturinn svaraði: “En það stendur hvergi að þið eigið að gera það ein!” Það er mergurinn málsins. Öryrkj- ar og ellilífeyrisþegar ætla ekki að bera hita og þunga dagsins einir. Þeir eru einungis hluti af þessari þjóð, sem eftir því sem sagt er hefur lifað um efni fram. En þetta fólk hefur ekki lifað um efni fram. Vegna þess að það hefur engin efni og ef það hefur nú getað nurlað einhverju saman verða sjálfsagt ráð með að ná því af þeim aftur! Þetta eru stór orð og ljótur og leiðinlegur leiðari. Ég vona að næst þegar ég skrifa leiðara geti ég haft hann aðeins á léttari nótunum. En sumarið er nú samt komið og því léttist lund og sporið og vonandi ljóma nýir og betri dagar í málaflokknum okkar svo allt okkar vit þurfi ekki að fara í mótmælaskrif - ræður og stöður á næsta hausti. Ásgerður Ingimarsdóttir. FRETTABREF ORYRKJABANDALAGSINS 3

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.