Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 26

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 26
VIÐHORF Júlíus Valsson gigtarlæknir: Málefni öryrkja eru í ólestri Lög um almannatryggingar Tryggingastofnun ríkisins er 60 ára um þessar mundir. Arið 1903 voru samþykkt fyrstu lögin um slysatrygg- ingu sjómanna og árið 1926 voru sett lög um almennar slysatryggingar verkamanna á sjó og landi. Fyrsta heildarlöggjöf um alþýðutryggingar á Islandi var sett þann 1. febrúar 1936 og sama ár var Tryggingastofnun rík- isins stofnuð. Við alþýðutryggingum tóku lög um almannatryggingar árið 1946. Allt fram til ársins 1993 giltu lög frá 1971. Nálægt eitt hundrað breytingar hafa verið gerðar á al- mannatryggingalöggjöfinni frá 1971. Margar nefndir hafa starfað á undan- förnum árum og miklu púðri hefur verið eytt í að breyta lögunum og endurbætaþau. Segja má að lögin séu orðin stagbætt og úrelt. Núhefurenn ein nefndin verið stofnuð af heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra, sem hefur það verkefni að endurskoða lögin. Litlar líkur eru á, að sú nefnd skili einhverjum árangri fremur en þær fyrri. Engin heildarsýn, engin stefnumörkun Laga- og reglugerðabreytingar varðandi almannatryggingar eru því miður oft handahófskenndar og háðar duttlungum ráðamanna, sem virðast freistast til að slá sig til riddara með ákvörðunum, sem þeir álíta að falli í góðan jarðveg hjá kjósendum I dag er vinsælt að skera niður og “spara”. A morgun verður því ef til vill öfugt farið. Of sjaldan virðast hagsmunir hinna sjúkratryggðu og öryrkja vera í fyrirrúmi. Lífeyriskerfið er orðið það flókið, að stjórnmálamennimir skilja það ekki lengur sjálfir! Engin þver- pólitísk stefnumörkun er til í þessum málum. Almannatryggingalögin eru orðin einn hrærigrautur. Reglugerðir eru misvísandi og vantar jafnvel lagastoð. Hér er mikið og þarft verk að vinna. Lögin þarf að einfalda og markmið þurfa að vera skýr. Júlíus Valsson. Tilgangur almannatrygginga Frá upphafi hefur tilgangur almannatryggingakerfisins verið að hjálpa þeim, sem ekki geta hjálpað sér sjálfum vegna veikinda, fötlunar eða ellihrumleika. Lífeyrir er hugsaður sem bætur fyrir tekjutap, sem menn verða fyrir þegar vinnuþrek þeirra tapast vegna elli, örorku eða dauða. Það er þó grundvallarregla allra trygg- inga, að bætur séu aldrei hærri en sem nemur því tjóni, sem hinn tryggði verður fyrir. Einnig er mjög mikil- vægt, að bætur almannatrygginga séu nægjanlega háar til þess að tryggja lífsviðurværi lífeyrisþeganna. í dag eru gerðar aðrar og meiri kröfur til lífsgæða en fyrir sextíu árum. Það breytir þó ekki grundvallartilgangi almannatrygginganna. Hér á landi er lífeyriskerfið þríþætt. í fyrsta lagi er almannatryggingakerfi, í öðru lagi lífeyrissjóðir og í þriðja lagi almennur frjáls sparnaður. I umræðu um lífeyr- ismál er þessum þremur þáttum oft ruglað saman. Lífeyrissjóðakerfið byggir á traustum homsteinum, sem eru: skylduaðild, sjóðsöfnun og sam- trygging sjóðfélaga. ✓ IBandaríkjunum og Ástralíu eru almannatryggingar einungis fyrir þá, sem hafa lágar eða engar tekjur. Þorri almennings er tryggður á eigin kostnað eða á vegum atvinnurekanda. Margir falla utan kerfisins þar sem þeir hafa ekki efni á tryggingu, sér- staklega í Bandaríkjunum. I Mið- Evrópu eru almannatryggingar að miklu leyti háðar atvinnuþátttöku og atvinnurekendur spila þar stærra hlut- verk en víðast hvar á Norðurlöndum þar sem það hefur verið grundvallar- atriði, að allir væru tryggðir. Á Islandi fer mun lægra hlutfall þjóðarfram- leiðslu til almannatrygginga en á hin- um Norðurlöndunum og t.d. í Þýska- landi. Stór hluti íslenska almanna- tryggingakerfisins er fjármagnaður af atvinnurekendum og launþegum líkt og gerist víða í Mið-Evrópu. Norræna velferðarkerfið er byggt upp í sam- vinnu ríkis, vinnuveitenda og laun- þega. Við sameiningu Evrópu er lík- legt að Norðurlöndin færist nær atvinnuvelferðarkerfi að þýskri fyrir- mynd. Hætt er þá við, að launamunur komi til með að aukast og vinnan verði ótryggari. Eftirspurn eftir bót- um almannatrygginga og félagslegri aðstoð hefur aukist til muna hér á landi á undanförnum árum. Ein ástæðan er aukið atvinnuleysi og sam- dráttur í efnahagslífinu. Þetta eykur aftur útgjöld ríkis og sveitarfélaga. Leita þarf nýrra leiða til að jafna rétt þeirra sem minna mega sín vegna veikinda, fötlunar eða elli. Nokkrar tillögur um endurbætur Olíklegt er, að á næstunni náist hér á landi þverpólitísk samstaða um stefnumörkun í almannatrygginga- og heilbrigðismálum. Þessir málaflokkar eru af eðlilegum ástæðum mjög sam- tvinnaðir. Ymislegt er þó hægt að gera tileinföldunaroghagræðis. Hækkun einstakra bótaflokka þarf ekki að leiða til hærri heildarkostnaðar. Hér verða einungis tilgreind nokkur atriði, sem að mati undirritaðs þyrfti að lagfæra: * Menn þurfa fyrst að endurskoða hug sinn áður en þeir endurskoða lögin. Hvað vilja menn tryggja og hvem- ig? Skilgreina þarf upp á nýtt 26

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.