Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 29

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1996, Blaðsíða 29
Gátuvísur Magnúsar Jónssonar Hér kemur, því miður, síðasti skammtur hinna sívinsælu gátuvísna Magnúsar Jónssonar bókavarðar í Hafnarfirði, en gátuvísur hans hafa á liðnum árum glatt hjörtu lesenda okkar, skemmtilegar og allsnúnar margar hverjar. Að þessu sinni er fyrri helmingur vísnanna á sama veg, þ.e. lesa skal eitt orð út úr hverri línu, það sama í öllum línum vísunnar og þær koma hér: 1. Fer af gömlu sári seint, sézt ég fremst í orðum, lundarfarið get ég greint, Gunnar skaut mér forðum. 2. í hvorugkyni vigtun við - það vel skal grunda, henni á mun húsið standa, hún mun líka fiski granda. 6. Hér einn gest að garði.. greitt án frests á dyr hann..... klæddur bezt, en hvergi...... klyf af nesti á herðum....... 7. Mér á fund við mann ég...... mér við orð hans nokkuð......... hann mér um það hiklaust........ að hefði ég dökka, ljóta..... 8. Fór ég hátt á fjallsins. fögur lýsti dagsins...... létt og hátt ég lyfti.... leitaði og fann hann..... En hér verður aftasta orðið ekki eins, heldur “missist” einn stafur framan af því í hverri línu 3. Vagnatrossa ytra er - það ei við löstum — myndaðist hún hér af hestum, hún er og í skipum flestum. 4. Klettur hár og hafnfirzkt blaðið hægrisinnað, byggt sé timburhúsið hannað, hann þá notast meir en annað. 5. Stjörnumerki hátt á himni - hér þú lítur, fágætt mannsnafn fundið getur, farartæki sumar og vetur. En lokin á þessu verða svolítið öðruvísi. Hér vantar sem sé sama einsatkvæðisorðið aftast í hverja línu: 9. Oft til sjós þeir strengina. stofuklukku upp þarf að...... hinum megin í húsi er........ hvílir þar á næturnar... og að lokum þessi þar sem líka er tekinn einn og einn stafur framanaf og smekksatriði er hvort að þetta orð er haft með greini: 10. Löngum gleymast lyklar í.... launin margra skerðast á ..... dinglar skreið unz dettur af.. dýr er veiðiréttur í.... Ráðningar á bls. 39 Hlerað í hornum Það var á dögum ástandsins. Mið- aldra barnlaus hjón bjuggu í Keflavík og þegar bóndinn fór til síldveiða norður kom vinkonan í heimsókn rétt til að hressa upp á hina því nú væri hún svo einmana. Þá gall við í kon- unni: “Einmana, hvað segirðu, er hann Fred farinn?” ** Stúlka austan fjalls kenndi virðu- legum bónda um barn, sem hann þverneitaði fyrir, enda sagðist hann aldrei hafa séð stúlkuna. Hún hélt því nú statt og stöðugt fram, enda sagði hún að barnið hefði komið undir á hestamannamóti og nafn mannsins blasað við sér letrað skýrum stöfum á hún svipunnar hans, sem hann hefði stungið niður í reiðstígvélið sitt. Þegar hér var komið spratt bóndi á fætur: “Já, svo þetta hefur verið kvik- indið hann Kalli sem ég lánaði svip- una mína á hestamannamótið í fyrra”. Fisksali lá þungt haldinn á spítala og eftir rannsókn sagði yfirlæknirinn að hann þyrfti að skera í lifrina. Þá sagði fisksalinn ákveðinn: “Takið þér bara lifrina, læknir, og hrognin líka”. Maður einn var að lýsa konu einni: “Þegar maður horfir á hnakkann á henni, sér maður bæði munnvikin í einu”. Læknaneminn kom á Landsbóka- safnið og spurði bókavörðinn hvort hann ætti ekki einhverja bók um beinagrind mannsins. Bókavörðurinn kom með gamla bók hér um, en neminn spurði hvort hann ætti ekki neina nýrri, þessi væri hálfrar aldar gömul. Þá sagði bókavörðurinn með hægð: “Ég veit nú ekki til að neinum beinum hafi verið bætt í manninn frá því þessi var gefin út”. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 29

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.