Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 3

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 3
Ingólfur H. Ingólfsson framkv.stj. Geðhjálpar: BREYTTIR TÍMAR, BREYTTIR SIÐIR að hefur margt breyst í 35 ára sögu Öryrkja- bandalags íslands. Margt hefur áunnist frá því að frumkvöðlarnir hófu baráttu sína fyrir auknum réttindum og ruddu brautina með uppbyggingu og rekstri á sjúkrastofnunum, endurhæf- ingarstöðvum, vinnustofum og heimilum fyrir sjúka og fatlaða. Þjóðfélagið hefur líka breyst á þessum árum. Það kallar á breyttar áherslur og nýjar leiðir í baráttu öryrkja fyrir framgangi hagsmunamála sinna. Það voru sex félög sem stofnuðu Öryrkjabandalag Islands árið 1961 en í dag eru þau orðin tuttugu og tvö með um 15-20 þúsund félagsmenn. Öryrkjabandalagið er því ein stærstu frjálsu félagasamtökin í Iandinu. Bandalagið gegnir því gríðarlega miklu hlutverki í þjóðfélaginu. Ekki aðeins í hagsmunahlutverki sínu og réttindabaráttu fyrir félagsmenn sína heldur einnig fyrir lýðræðið sjálft í landinu. í grundvallaratriðum eru baráttumál Öryrkjabanda- lagsins þau sömu og í árdaga samtakanna. Ekki endilega vegna þess að svo hægt miði áfram heldur miklu fremur vegna þess að þau eru hluti af daglegu lífi stórs hluta þjóðarinnar, hugsjónum hennar og framtíð. Afkoma margra öryrkja er háð bótum almannatrygginga sem eru enn þann dag í dag nánast ofurseldar duttlungum stjórnvalda. Aðgengismál fatlaðra eru enn víða í molum þrátt fyrir lagaboð og reglugerðir og mannréttindi geðsjúkra svo bágborin að kallað er á sérlög til úrbóta. A sumum sviðum í málefnum sjúkra og fatlaðra er enn verið að berjast fyrir grundvallarmannréttindu, á öðrum sviðum er barist fyrir meiri lífsgæðum. En það er ekki aðeins Öryrkjabandalagið sem hefur tekið breytingum. Þjóðfélagið allt hefur verið að breytast og hugsanlega hraðar og meira en margan grunar. Hagvaxtar- og uppgangsárunum er löngu lokið og ríkissjóður glímir við minni tekjur og allar framkvæmdir eru gerðar fyrir lánsfé. Auknar tekjur þjóðfélagsins skila sér í minna mæli til ríkissjóðs en áður, en safnast þeim mun hraðar upp í kringum stórfyrirtæki og einstaklinga. Það hefur dregið úr áhrifum stjórnmálamanna og ríkisvalds til þess að deila út fjármunum til framkvæmda eða tekjujöfnunar. Frumkvæðið hefur í auknum mæli færst frá hinu opinbera og stjórnmálamönnunum út í þjóðfélagið til markaðarins, einstaklinga og samtaka þeirra. Þetta þýðir m.a. að leita þart' nýrra tækifæra og fara ótroðnar slóðir til þess að koma hagsmunamálum sínum í höfn. í þessu ljósi er áhugavert að skoða hvernig hug- myndafræðin í baráttusögu fatlaðra hefur tekið stakka- skiptum. Allt fram á síðasta áratug var megináherslan á jöfnun lífsgæða. Opinbert fjármagn var notað til þess að jafna tekjur fólks og aðstöðu í gegnum almannatryggingar og skattakerfið eða til uppbyggingar á heilbrigðis- og menntakerfi allra þegna landsins. Þetta féll vel að hug- myndakerfi jafnaðarmanna, sem voru í póli- tískri forystu fyrir þessum málum. í dag hafa áherslurnarfærst á jöfnun tækifæra eins og yfirskrift samþykkta Sameinuðu þjóðanna urn málefni fatlaða frá 1994 hljóðar. Rétt- lætið felst í því að hið opinbera á að tryggja jafnan aðgang allra að lífsgæðunum en á ekki að útdeila þeim. Það er því í höndurn og á ábyrgð einstaklingsins og samtaka hans að nýta sér tækifærin. Þessar áherslur eru vel þekktar úr hugmyndasmiðju frjálshyggj- unnar. ✓ Eg er ekki að leggja dóm á hvort þessar breytingar séu til góðs eða ills heldur aðeins að vekja athygli á því hvemig breytt þjóðfélag kallar fram breytt viðhorf og getur haft endaskipti á góðum og gömlum gildum, oft án þess að við tökum eftir því. Við þurfum stöðugt að endurskoða hugmyndir okkar, átta okkur á eigin fordómum og leita nýrra leiða og baráttuaðferða. Það væri verðugt verkefni fyrir Öryrkjabandalagið að taka saman hugmyndasögu bandalagsins og aðildarfélaga til þess að sjá hvemig tíminn hefur leikið hugsjónirnar og baráttumálin svo læra megi af þeirri sögu fyrir átök framtíðarinnar. Öryrkjabandalagið verður einnig að huga að því að fjöldi samtaka sjúklinga og fatlaðra hefur aukist mjög á síðustu árum. Öll þurfa þau að keppa innbyrðis um athygli og fjármagn, áhrif og frumkvæði í baráttunni fyrir hags- munum sínum en um leið vilja þau njóta þjónustu og samtakamáttar Öryrkjabandalagsins. Öryrkjabandalag Islands þarf að vera vakandi yfirþeim breytingum sem eru að verða á þjóðfélaginu og nýta sér þær fordómalaust hagsmunamálum sínum til framdráttar. Bandalagið verður að vera óhrætt við að fara inn á nýjar brautir og styðja frumkvæði þeirra fjölmörgu utan banda- lagsins sem sjá hag sinn í því að vinna að framgangi mál- efna fatlaðra. Öryrkjabandalag Islands þarf að taka að sér stóraukið hlutverk með breyttu þjóðfélagi og beita sam- takamætti sínum jafnt sem fjármagni af enn meira afli í hagsmuna- og réttindabaráttu öryrkja. Ingólfur H. Ingólfsson. Ingólfur H. Ingólfsson. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 3

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.