Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 5
miðdegiskaffiðtilhans-ísokk! Sam- vinnumenn í Reykjavík voru “Júðar þess tíma,” sem kom til af því hvað þeir héldu fast saman. Þeir voru því litnir hornauga af íhaldssamari öflum bæjarins. Eina skiptið sem ég var laminn var af því að pabbi minn vann hjá Sambandinu.” Þetta voru miklir aðhaldstímar. Stefán faðir Halldórs var bókari og tók iðulega bókhaldið heim með sér. "Hann notaði tússfjöður og reglustriku til að gera reikningana löglega - ég efast um að hann hafi fengið borgað fyrir þá heimavinnu.” Reikningsfærslur á skrif- borði föðurins áttu eftir að reynast unga drengnum mikilvægt veganesti síðar á lífsleiðinni. “Núna get ég alltaf séð fyrir mér upp- setningu á bókhaldi,” segir Halldór. Barnagláka og barátta við sjóndepru “Þegar ég er tveggja ára uppgötvast að ég er með barnagláku. Og mamma fer með mig til Kaupmannahafnar. Fjögurra og sex ára gamall er ég skorinn þar upp af mjög þekktum augnlækni sem gekk undir nafninu “prófessor 3 K.” En læknavísindin voru ekki búin að ná tökum á þessum sjúkdómi. Hefði ég fæðst tíu árum seinna, væri ég ekki blindur nú.” Halldór segist hafa öfundað krakka sem fengu að hlaupa um óhindrað. “Af mér var aldrei sleppt hendinni, ég sá svo illa.” Og ungi drengurinn Halldór verður hæglátur og varkár vegna fötlunar sinnar. “Strákarnir gátu þó notað mig í marki í fótbolt- anum. Þar gat ég helst þvælst fyrir,” segir Halldór og hlær mikið. Drengurinn Halldór fer aldrei í barnaskóla, þykirofsjóndapur. Nem- endur úr Kennaraskóla íslands kenna honum heima 1-2 tíma á dag. Kristján Sveinsson augnlæknir sker Halldór upp 1932, þá níu ára gamlan. “Eg fæ gler- augu, en það var ekkert gamanmál að verða gler- augnaglámur! Þá fór mamma með mig út að glugganum á Fjölnisvegi 20 og viti menn - þama sá ég í fyrsta skipti útidyraljós yfir röntgendeild Land- spítalans. Gleraugun gjör- breyttu tilveru minni og ég næ fullnaðarprófi úr Austurbæjar- skóla.” “Þáfannst mér guð yfirgefa mig ” Mikil breyting verður í lífi Hall- dórs, þegar móðir hans deyr mjög skyndilega úr lungnabólgu 1934, þegar hann er ellefu ára. “Þá fannst mér guð hafa yfirgefið mig.” Föður- amma hans hafði dáið tveimur árum áður. Halldórfékksnemmaaðkynn- ast dauðanum. “Við pabbi förum að búa einir saman og af illri nauðsyn fer ég að sjá um mig sjálfur.” í Akureyringahúsinu á Baldurs- götu 11 fæddist lítil stúlka fjómm dög- um eftir að Halldór kom í heiminn. Þetta var dóttir Aðalsteins Kristins- sonar og konu hans sem voru mikið vinafólk foreldra Halldórs. “Við áttum að verða hjón,” segir Halldórbrosandi. Þótt það gengi ekki eftir, lágu leiðir unga fólksins saman í undirbúningsdeild Einars Magnús- sonar fyrir Menntaskólann í Reykja- vík. Árið 1937 stendur mikið til hjá fjórtán ára dreng. “Þá átti ég að ferm- ast um vorið og þreyta inntökupróf í M.R.” Einföld bólusetning setur strik í reikninginn. Halldór veikist svo heiftarlega af sprautunni að hann missir af fermingunni og hluta inn- tökuprófsins. “Þá er ég sendur norður til Jónasar frænda í Kristnesi, eins og alltaf á sumrin.” Einkennilega örlagaþrung- ið, að Halldór skyldi vera eina ferm- ingarbarnið í Lögmannshlíð og síðar ganga til altaris þegar verið var að vígja Friðrik föðurbróður hans til Hólabiskups. “Þarna gekk ég til alt- aris með eintómum prestum,” segir Halldór, sem man alltaf eftir sólinni sem skein á kápuna hans Jóns Helga- sonar biskups sem var að vígja hinn verðandi vígslubiskup. Biskupskápa þessi hangir nú á Þjóðminjasafni Is- lands - hana bar fyrstur manna Jón Arason Hólabiskup. Halldór lýkur inntökuprófinu um haustið. Af 130 nemendum sem þreyttu prófið náðu aðeins 27 inngöngu. “Eg varsáell- efti inn í skólann og ellefti út úr honum.” Menntaskólaár í þokumóðu blindu og stríðs “Eg sá ótrúlega illa og alls ekki á töfluna, þótt ég sæti alveg upp við hana. “Þú ert mesti “sjónsvikahrapp- ur “ sem ég hef fyrirhitt,” sagði enski augnlæknirinn Fyson við mig, þegar hann hafði athugað sjónina, alveg undrandi á hvað ég hafði getað staðið mig vel í skólanum. Oft er það svo, að þeir sem sjá mjög illa segjast sjá betur, en þeir sem sjá sæmilega þykjast sjá verr - og eru þar af leiðandi taldir mjög klárir, “ segir Halldór. Halldór talar af mikilli innlifun um menntaskólaárin sem greinilega eru honum mjög hugleikin. “Þar bast ég sterkum vináttuböndum. Skólafélagar mínir úr M.R. eru miklir og góðir vinir mínir enn í dag.” Stríðið setti mark sitt á mennta- skólaár Halldórs. “Við máttum ekki fara á almenna dansleiki vegna stríðs- ins, en skemmtum okkur því betur í heimahúsum - tefldum og dönsuðum og hlustuðum á B.B.C. Stríðið þjapp- aði okkur saman og bekkurinn varð Oddný Sv. Björgvins. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 5

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.