Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 7

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 7
Það dimmir fyrir augunum Halldór fékk ætíð bestu augnlækna sem kostur var, en læknavísindin voru ekki komin lengra að takast á við glákuna. Árið 1961erHalldórorðinn blindur á öðru auga og þá sendur til Englands þar sem hirðlæknir prinsins af Wales, “Mister Fyson” tekur við honum. Síðan er það um jólaleytið 1973, að Halldór fær heiftarlegt höfuðkvef og upp úr því svo miklar höfuðkvalir, að álitið er að um heilablóðfall sé að ræða. Hann er lagður inn á Borgar- spítalann, liggur þar á milli jóla og nýárs. Enginn augnlæknir er á vakt. Á nýársdag hringir eiginkona Halldórs í Guðmund Björnsson pró- fessor, vin þeirra, þá orðin mjög óró- leg yfir heilsufari Halldórs. Guð- mundur bregður skjótt við, stelur Halldóri af Borgarspítala, flyturhann á augndeild Landakotsspítala og gerir þar samdægurs augnaðgerð á honum. Kvefbaktería hafði komist inn í augað og grafið í öllu saman. Halldór segist ávallt vera þakklátur Guðmundi fyrir að fá að halda auganu. I fjörutíu daga liggur Halldór á augndeild Landakots- spítala, gengur síðan út þaðan í byrjun árs 1974 - sem blindur maður. Sjónblinda og víðsýni hugans Ekkert var lárétt, ekkert lóðrétt fyrstu dagana í skynjun hins nýblinda manns. Halldór rataði ekki um íbúð- ina og rak sig í alla hluti. Auðvitað sótti á hann þunglyndi yfir miskunn- arleysi lífsins. Svipað og hjá þeim sem missa mátt í fótum, varð Halldór að læra að lifa upp á nýtt. Stuðningur frá Blindrafélaginu megnar að vekja aftur lífsþrótt og blindraráðgjafinn, Elínborg Lárusdóttir, kemur því til leiðar að Halldór fer á endurhæfingar- skóla fyrir nýblinda í Englandi. - AÐ LÆRA AÐ VERA BLINDUR: “Á 12 vikum lærði ég að vera blindur maður - umgangast fötin mín - raða peningaseðlum og fleira. Hvað íslenska myntin væri einfaldari, ef 100 krónumar væru sexkantaðar eins og breska 10 (50) pence myntin. ÍLon- don hitti ég blindan lögfræðing, Sir Duncan Watson í efri deild breska þingsins sem útskýrði fyrir mér hvernig blindir lögfræðingar ynnu. Sir Watson varð síðar formaður Heimssambands blindra. Hann Halldór og Þorbjörg kenndi mér að nota símann.” Með símann sem hjálpartæki hefur Halldór tekist á við fjölmörg verkefni. Auk þess að vera lögfræðingur Öryrkjabandalagsins, var hann for- maður Blindrafélagsins í mörg ár, síðar framkvæmdastjóri og enn eftir- sóttur í stjómir ótal félagasamtaka. Halldór kann umferðarreglur lífsins, beitir lögfræðilegri hugsun til að komast að rökréttri niðurstöðu. - LANDSLAG HUGANS: “Einar Magnússon landafræði- kennari í M.R. kenndi okkur svo vel að teikna heimsmyndina, að landa- kort og höfuðáttir hafa greypst í hug- ann. Eitt sinn fórum við hjónin í rútu- ferðalag til Þýskalands - hringsóluð- um um Rínardal og Lúneborgarheiði. Fararstjórinn leiddi farþegana upp í útsýnisturn og spyr í gríni, hvort ein- hver geti sagt sér í hvaða átt Kaup- mannahöfn sé? Aðeins einn farþeg- anna benti í nákvæmlega rétta átt - íslenski blindinginn! Þetta þakka ég landafræðikennslu Einars Magnús- sonar.” Halldór býr líka yfir nákvæmri tímaskynjun. “Við skulum sitja til kl. hálf fjögur,” segir hann við mig. Þeg- ar klukkuna vantar 2 mínútur í hálf þreifar hann á úrinu sínu. “Eg veit líka alltaf hvar ég er staddur í bíl,” segir hann. “Við keyrum oft til Akra- ness, þar sem dóttir okkar býr. Konan mín stillir alltaf mælinn á 0. Kíló- metratalan segir mér, hvar við erum stödd í Hvalfirðinum.” með dætrum sínum. - HEFUR SJÓNLEYSIÐ BREYTT ÞÉR? “Býst við að ég sé umburðarlynd- ari, greini betur hismið frá kjarnan- um. Fólk er alltof mikið að æsa sig yfir smámunum. Núna þarf ég líka að skipuleggja allt fyrirfram. Sjáandi var ég alltaf að týna pennanum mín- um, núna er hann alltaf á vísum stað. Það er þó nokkuð snúið mál að vera blindur. Samt má ekki horfa á okkur í einhverjum dýrðarljóma. Við erum ekkert klárari en aðrir, lærum bara að nota hæfileikana betur. Mér hefur alltaf reynst seiglan happadrýgst. Að seiglast áfram með vott af sanngirni, taka tillit til annarra og forðast að setja fólk í vandræði. Harka leiðir frekar til andmæla. Yngri kynslóðin er ekki ánægð með þetta viðhorf, finnst ég ekki sýna nóga frekju gagnvart því opinbera. Því nú er það frekjan sem tröllríður öllu í þjóðfélaginu. Fjölmiðlaheimurinn eins og skylmingar - allt lagt upp úr því að svara fljótt og hugsunarlaust. Núna legg ég meiri áherslu á að hlusta. lnnan um hóp af fólki verð ég að vera þögull til að fylgja þræðinum. Af því að ég hef ekki sjóntengsl, verð ég að einbeita mér að því að hlusta vel.” - HVERNIG SKYNJARÐU FÓLK? “Ég byrja strax á að skapa mér mynd af viðkomandi frá göngulagi og handtaki. Mérfinnst óþægilegt að tala við fólk án snertingar. Ég sakna gömlu íslensku kveðjunnar. Föður- bræður mínir heilsuðu alltaf með því FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 7

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.