Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Qupperneq 15

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Qupperneq 15
Jóhann Pétur junior með öðrum þingfulltrúum. Hjólastóllinn er hátindur útsýnis míns. Samt held ég í vonina um að losna úr honum. Fjallað er um útgáfumál og fjár- mál m.a. fjáröflun af ýmsu tagi: Sjálfsbjargarklemmuna, happdrætti og Hollvini Sjálfsbjargar sem áður er um getið. Þá er allnokkur kafli um húsnæðismál, fundi og ráðstefnur og erlend samskipti sem eru m.a. í gegn- um þátttöku landssambandsins í Nordisk handikappförbund. Kafli er um Sjálfsbjargarhúsið, en þar er eðli- lega af ýmsu að taka svo margar vist- arverur sem þar eru og fjölþætt starf- semi af ýmsu tagi. Undir liðnum félagsmál er fjallað um hin ýmsu námskeið sem Sjálfsbjörg hefur staðið að, ýmist ein eða með öðrum s.s.: Að flytja að heiman, - Að verða fullorð- inn, - Að eiga fatlað barn o.s.frv. Úthlutun P - merkja er svo sérliður í skýrslunni, en ásókn í þessi merki sem Sjálfsbjörg hefur séð um úthlutun á hefur farið mjög vaxandi. Breytingar kunna að verða hér á skv. skýrslunni. Þá er í skýrslunni að finna skýrslur nefnda á vegum Sjálfsbjargar, Isf., svo og skýrslur fulltrúa Sjálfsbjargar, lsf. í stjómum samtaka og fyrirtækja og á þessu sézt hve víða er komið við og hversu fjölbreytnin í starfi landssam- bandsins er mikil. Og aftur fer ritstjóri á fund skólabarna og hér er ljóð Krist- ínar Birgisdóttur, Húnavallaskóla. Ég sit og horfi ég er föst í hjólastól. Ég kemst ekki mína leið. Ég horfi á bíóið en kemst ekki inn. Ég horfi á skólann en ég kemst ekki inn. Ég horfi á sjoppuna en kemst ekki inn. Ég sit og horfi, ég er föst. Nokkrar lagabreytingar voru gerðar á þinginu. Ávörp fluttu um efnið: Málefni fatlaðra í nútíð og framtíð: Aðalbjörg Dísa Guðjóns- dóttir deildarstjóri Félagsmálastofn- unar Reykjavíkur, Karl Steinar Guðnason forstjóri Tryggingastofn- unar ríkisins og Jón Hákon Magn- ússon markaðsfulltrúi. Var gerður góður rómur að máli þeirra og urðu af því umræður nokkrar, fyrirspurnir og athugasemdir. Kosning fór svo fram í hinar ýmsu starfsnefndir innan landssambandsins svo og í ýmis ráð og nefndir. Stjórn Sjálfsbjargar - landssambands fatlaðra skipa nú: Formaður: Guðríður Ólafsdóttir. Varaformaður: Birna Frímannsdóttir. Ritari: SigurðurBjömsson. Gjaldkeri: Ragnar Gunnar Þórhallsson. Með- stjórnandi: Baldur Bragason. Vara- stjórn skipa: Björg Kristjánsdóttir, Guðmundur Magnússon og Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir. Lífeyris- og tryggingamál eða kjaramál fatlaðra í víðastri merking voru höfuðviðfangs- efni þingsins og þar um ályktað. Lagðar voru fram af starfshópi fjöl- margar hugmyndir um breytingar á tryggingalöggjöfinni til hagsbóta fyrir fatlaða og munu þær sendar nefnd þeirri sem nú er að störfum og end- urskoða skal þetta um margt stagbætta kerfi. Þingið samþykkti einnig ýmsar aðrar ályktanir bæði almennar sem inn á við um starf og hag Sjálfsbjargar- landssambandsins. Þingið var vel sótt en því stjórnuðu Sigurður Magnússon og Snæbjöm Þórðarson. Sjálfsbjörg er allra heilla árnað í umfangsmiklu starfi sínu. H.S. Hlerað í hornum Farþegi heyrði eftirfarandi samtal tveggja ungra stúlkna: “Eg sagði honum Gunnari í gær, að allt væri búið á milli okkar”. “Og hvað sagði hann?” “Breiddi bara sængina upp fyrir haus”. Maður lýsti heimsókn sinni í kjallara- íbúð til ungra hjóna svo: “Það var svo lágt til lofts að það var frágangssök að éta þar neitt nema flatkökur”. ** Háseti á togara kom út á þilfar með peysuna sína í hendinni, en storm- urinn greip peysuna og feykti henni langt út á sjó. Hásetinn rauk til skip- stjóra og sagði honum flaumósa frá þessum mikla skaða. “Hvað er þetta maður, þakkaðu guði fyrir að þú varst ekki í peysunni”, sagði skipstjórinn í rólegheitunum. ** Það var á dögum Surtseyjargossins, en þá voru farnar ferðir gagngert til að skoða eldstöðvarnar. Kona spurði vinkonu sína hvort hún ætlaði ekki í Surtseyjarferð. Þá spurði vinkonan: “Verður látin sápa í hana?” “Ertu frá þérmanneskja. Það er ekki Iátin sápa nema í Gullfoss og Geysi,” anzaði hin. Lögfræðingur einn hóf varnarræðu fyrir skjólstæðing sinn fyrir Hæstarétti svo:“Þar sem skjólstæðingur minn hefur falið mér að verja mál sitt vil ég krefjast þess, að geðlæknir rann- saki, hvort hann er með réttu ráði”. ** Fjölskyldan var á ferð um Vatnsskarð nyrðra og virti fyrir sér útsýnið yfir Skagafjörð við minnismerki Stephans G. Fjölskyldufaðirinn komst í mikla stemmingu og mælti: “Skín við sólu Skagafjörður.” Þá heyrðist í dóttur- inni, táningsstúlku: “Alltafþarfhann pabbi að vera að yrkja.” FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 15

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.