Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 25

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 25
hafist handa um að hrinda tiilögum ráðuneytisins í framkvæmd. Það er því mikilsvert fyrir alla þá sem hér eiga hlut að máli að taka nú höndum saman við félagsmálaráðuneytið og gera allt sem hugsanlegt er til þess að tillögumarnái fram að ganga. Nokkr- ir vinnustaðir hafa nú þegar tekið upp hluta af því sem felst í tillögum nefnd- ar félagsmálaráðuneytisins bæði hvað varðar laun og réttindi starfsfólks síns og ýmislegt annað sem varðar atvinnuöryggi þess og eftir því sem mér er best kunnugt munu Reykja- lundur, Múlalundur og Vinnustaðir Öryrkjabandalagsins vera þar til fyrirmyndar. Ég hef örlítið komið að þessum málum á undanförnum árum sem for- maður stjórnar Vinnustaða Öryrkja- bandalags Islands, sem skilgreindir eru sem verndaðir vinnustaðir og í gegnum það starf kynnst nokkuð ýmsum hliðum atvinnumála fatlaðra. Mér er ljóst að almennur vinnumark- aður verður að taka við langstærstum hluta fatlaðra til starfa , en verndaðir vinnustaðir verða til áfram og koma til með að hafa mikilvægu hlutverki að gegna í framtíðinni eins og hingað til. Af þeirri stuttu reynslu sem ég hefi fengið þar af umfjöllun um atvinnu- mál fatlaðra og þátttöku í rekstri eins fjölmennasta verndaða vinnustaðar landsins, þá virðist mér að hægt væri að nýta betur það opinbera fjármagn sem veitt er til þessa málaflokks með endurskipulagningu og viðhorfs- breytingu til verkefnisins og vil ég því setja fram nokkrar hugmyndir í því sambandi. Vinnustaðir fatlaðra í framtíðinni verða að sjálfsögðu að vera byggðir upp eftir þeim breytilegu forsendum sem eru til staðar hverju sinni. Við uppbyggingu og stjórnun á vinnustað sem framleiða á markaðs- og samkeppnishæfar vörur, eða stunda þjónustustörf er mikilvægt að hafa í huga nokkur meginatriði sem ég tilgreini hér á eftir. * Vanda þarf mjög til vals á stjóm- armönnum fyrir vinnustaðinn og er æskilegt að í slíkar stjómir veljist aðilar sem hafa einhverja reynslu af stjórnunarstörfum á því sviði sem vinnustaðnum er ætlað að starfa á bæði viðskiptalega og félagslega. * Mjög mikilvægt er að vandað sé til vals á forstöðumanni fyrir vinnu- staðinn. Að hann hafi þá þekkingu til að bera sem þarf til þess að ná árangri í rekstri, bæði hvað varðar fjármálastjórnun, framleiðslu, markaðs.setningu og annað sem nauðsynlegt er til þess að rekst- urinn verði hagkvæmur og að framleiðsluvömrnar geti staðist þá samkeppni sem við er að glíma hverju sinni. * Flest starfsfólk vinnustaðanna verði valið úr röðum fatlaðra, en nauðsyn ber til þess að einnig séu til staðar fullfrískir aðilar til leiðbeiningar. Við val á starfsfólki ber að hafa í huga vinnugetu hvers og eins og hvernig viðkomandi hugsanlega fellur að þeim verkefnum sem í boði eru. * Gerður verði ráðningarsamningur við hvern starfsmann þar sem fram komi allir þeir meginþættir sem venja er að geta um í almennum ráðningarsamningum. Eins og stendur er ýmislegt óljóst hvað varðar þátttöku slíkra starfsmanna í gjöldum til fagfélaga, lífeyrissjóða og fleira á því sviði, en væntanlega koma ákveðnar reglur þar um á næstunni. * Mikilvægt er að starfsfólk hvers vinnustaðar verði sér þess með- vitandi að afkoma og framtíð vinnustaðarins byggist á störfum þeirra. Þeim sé gerð grein fyrir framleiðslu og söluáætlunum og þannig stuðlað að því að hver og einn eigi kost á því að fylgjast með því sem verið er að vinna að á hverjum tíma og að vinnuframlag hvers og eins sé mikilvægt til þess að árangur náist. Við endurskipulagningu á Vinnustöðum Öryrkjabandalags Islands, höfum við sem vorum valdir þar til stjórnarstarfa sett okkur ákveð- in markmið og reglur sem falla mjög að því sem ég hefi hér að framan talið. Reksturinn þar hefur tekið mjög ánægjulegum stakkaskiptum á síðustu árum og nálgast nú óðum það takmark okkar, sem erum þar í forsvari, að framleiðslan þar skili það góðum árangri að framleiðslukostnaðurinn fáist greiddur og að einhver rekstr- arafgangur verði áður en langt um líð- ur. Þetta er mjög blandaður vinnu- staður bæði hvað varðar verkefni og starfsfólk. Það starfa þar að staðaldri 35-40 öryrkjar í fjórum deildum sem eru: Örtækni - tæknivinnustofa, saumastofa, prjónastofa og ræstinga- deild. Eins og þessi upptalning ber með sér eru verkefnin af ýmsum toga en þarna hefur tekist með markvissri stjórnun að samhæfa hóp fólks, sem vissulega var töluvert sundurleitur í byrjun, en hefur náð vel saman. Það hefur skipt miklu máli að vel hefur tekist til með val á verkefnum sem falla að þeirri framleiðslugetu sem fyrir hendi er og að framleiðslan á góða möguleika á því að standast þá samkeppni sem fyrir er á frjálsum markaði fyrir hliðstæðar vörur og þjónustu. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 25

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.