Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Síða 28

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Síða 28
Molar til meltingar Ekki er nema von þó ýmsir spyrji að því í hvað lottóféð fari, þ.e. sá hluti sem til Öryrkja- bandalagsins rennur. Oftar en ekki er um lottóauð talað og jafnvel látið að því liggja að í sjóði sé safnað að ekki sé nú á elskuríkar raddir minnzt, sem halda að sóað sé í einhverja óráðsíu. Auðvitað er engin von til að fólk almennt viti hvað aðhafzt er hér á vettvangi og fjölmiðlafólkið okkar hefur ekki verið neitt óskaplega iðið við að kynna sér sannleik málsins til upplýsingar fyrir almenn- ing í hvað þessir óneitan- lega miklu fjármunir fara. Við hér á bæ erum heldur ekki nógu dugleg að koma staðreyndum mála á fram- færi, og örugglega alltof hógvær í raun, þó auglýsing eigin verka sé afar hvimleið svo ekki sé meira sagt. Allt liggur þetta ofur- ljóst fyrir í reikningum hvers árs, en ekki síður í fasteignum og öðrum áþreifanlegum verkum m.a. þessu blaði sem geymir þessar línur. Það er ekki úr vegi að upplýsa um hús- eignir Hússjóðs Öryrkja- bandalagsins sem frá upp- hafi hefur fengið mikinn meirihluta þessara fjár- muna. Og fyrir þau fleiri hundruð öryrkja sem þessar fasteignir hýsa eru þetta ekki kaldar, tilgangslausar byggingar, heldur notalegt og öruggt athvarf hverjum sem þar fær húsaskjól. ✓ Eg hygg að þeir muni á einu máli um það, hve ávöxtun lottófjárins sé árangursrík og innihaldsrík urn leið, enda ásóknin í húsnæðið ein sér sönnun um dýrmæti þess að mega þannig öðlast öruggan samastað gegn eins vægu gjaldi og unnt er, eftir oft hreina eyðimerkurgöngu alltof lengi í leit að ein- hverjuslíku. Sannastsagna veit ég ekki hvort unnt hefði verið að nýta þetta fjármagn betur í þágu fleiri og rétt að fólk sem leggur lottóinu lið með kaupum sínum viti hve vel er með farið. Aðeins til að nefna tölur sem hafa raunar oftlega birzt hér þá hafa alls verið keyptar eða byggðar 252 íbúðir frá því lottóið hófst auk þess sem skuldir eldri íbúða Hússjóðs voru greiddar upp. Þessar íbúðir eru í öllum landshlutum, þó langflestar séu hér á Stór- Reykjavíkursvæðinu og aftur í tölur vitnað má að- eins gera sér í hugarlund viðbótarvanda í húsnæð- ismálum, ef ekki hefði á svo ágætan rnáta verið skotið góðu skjólshúsi yfir þá rúmlega 800 íbúa sem eiga sitt leiguathvarf tryggt hjáHússjóði. Þaðeruíbúar með hinar ýmsu fatlanir sem hér eiga húsaskjól, en þroskaheftir eru flestir og næstflestir eru svo geð- fatlaðir. ** ✓ Iframhaldi af þessu kann svo vel að vera að innt sé eftir því hvert þeir fjár- munir fari sem ekki renna beint til húsnæðismála. Öryrkjabandalag íslands fær þá fjármuni beint til sinnai' fjölbreyttu starfsemi, styrkir með því fjármagni hin fjölmörgu félög sín með allgóðum framlögum til hinna þörfustu verkefna, styrkir annars öfluga Vinnustaði Öryrkja- bandalagsins, kostar sam- eiginleg verkefni Þroska- hjálpar og Öryrkjabanda- lagsins, styrkir meira og minna þær stofnanir er bandalagið er aðili að, veitir styrki til ýmiss konar ágætra málefna sem tengj- ast fötlun og starfi í þágu fatlaðra, sinnir bráðnauð- synlegum samskiptum við útlönd og fær numið þar af lærdóm um leið og aðrir eru um okkur fræddir og svo mætti áfram telja. Rekstur bandalagsins sjálfs er í allmiklu lágmarki miðað við umfang starfsins og fjölda félaga, en síðan heldur það út miðli fjórum sinnum á ári - þessu blaði - þar sem um málgagn er að ræða sem vettvang barátt- unnar - sóknar sem varnar - svo og er það fréttamiðill sem fræða á jafnhliða því sem það á að færa félögun- um gagnkvæman fróðleik urn innra starf hvers annars og þjappa þeim um leið saman til átaka. Menn spyrja efalaust um umfang starfs, hvort mikið sé hingað leitað og fróðleik, upplýsingum sem aðstoð miðlað. Hingað koma ærið margir, enn fleiri hringja og óhætt að fullyrða að erindum sé reynt að sinna sem bezt og um leið fylgt sem bezt eftir til úrlausnar. Alltaf má enn betur gera m.a. í varnarbaráttu þeirri sem háð hefur verið allt um of á liðinni tíð, en vissa mín þó sú að ærin samvizku- semi sé þó í okkar fylgd. að er alveg óhætt að fullyrða að í margt mætagott verk hefði ekki verið ráðist án hins dýr- mæta stuðnings sem banda- lagið hefur getað veitt frá upphafi lottósins. Við erum a.rn.k. afar þakklát fólkinu í landinu, hinum mikla fjölda sem hefur gert þetta allt saman kleift þennan áratug. Hér hefur þjóðin sjálf verið að verki af fúsum og frjálsum vilja af framsýni og stórhug og um leið vitandi það innst inni að þessum fjármunum yrði á farsælan veg varið. Það er ljúf skylda Öryrkja- bandalags Islands að svo skuli gert, enda við það leitast af fremsta megni að veita fjármagni þessu þang- að sem þess er helzt þörf. Vonandi verður hér fram- hald á í framtíðinni, svo víða sem kallað er og knúið á um verk sem vinna skal. Enn fleiri fötluðum þarf að tryggja öruggt húsnæði og ætíð er nauðsynin söm að veita fötluðum og félögum 28

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.