Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Síða 29

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Síða 29
þeirra stuðning til vænna verka. Það er mikið í húfi fyrir marga að svo megi áfram skipast mál og fólkið í landinu fái áfram sitt tæki- færi til að rétta fórnfúsa hjálparhönd að öllum þeim óloknu störfum sem víst er þörf að vinna. Hingað leit inn góð- kunningi ritstjóra og sagði sínar farir ekki sléttar. Hann er haldinn alvarleg- um sjúkdómi sem veldur mjög spastískum hreyfing- um, en hann er þrátt fyrir þessa erfiðu fötlun ævin- lega reiðubúinn til þátttöku í hverju því sem hann mögulega getur m.a. geng- ur hann mjög mikið og er ótrúlega frár á fæti þrátt fyrir það að spasminn geri honum ómældan óleik. En í vor sem leið hugðist hann taka þátt í Jónsmessuhlaupi hér í borg, enda fullfær um slrkt og í góðri æfingu. Þá kom hið óvænta upp, hon- um var neitað um að láta skrá sig, neitað um þátt- töku. Honum var þetta vissulega áfall og skýringar voru fáar aðrar en þær að viðkomandi þóttist greini- lega vita meir um mögu- leika hans og getu en hann sjálfur. Hann útskýrði sitt mál þó ljóslega eins og hans var von og vísa, enda hinn greinarbezti maður. En þvert nei var uppskeran ein. Nú komst þetta alla leið til þeirra er í forystu voru fyrir hlaupinu og góðkunn- inginn varbeðinn afsökun- ar á þessum leiðu mistök- um og harmað að svona nokkuð hefði gerzt. Allra góðra gjalda vert að sjálf- sögðu og skal metið, en skaðinn þó skeður. For- dómar og hrokafull fram- koma eiga enn sína fulltrúa alltof víða og þetta aðeins nefnt hér sem víti til varn- aðar. Vonandi dæmafá framkoma þó. Hingað hefur eðlilega verið stríður straumur fólks sem verið hefur að fá tilkynningar frá Trygginga- stofnun ríkisins um niður- fellingu frekari uppbótarog auðvitað skal svo gert frá og með næstu mánaða- mótum. Þessi launalækkun svo skyndilega og óvænt fyrir allan þorra fólks hefur raskað alvarlega tjárhags- grundvelli þess og afkomu allri, að ekki sé nú talað um skuldbindingar allar, þar sem viðmiðunin hefur verið óskertar tekjur. En svo hafa einnig verið að berast önnur bréf þ.e. til þeirra sem ekki hefur tekizt að fella niður uppbótina hjá vegna ofurlágra tekna. Enn einu sinni er þetta fólk beð- ið um vottorð til rökstuðn- ings frekari uppbótar- greiðslu og á hásumri í læknaverkfalli og sumar- fríum er þessu fólki gert að senda inn læknisvottorð að nýju og það innan hálfs mánaðar, annars fellur frek- ari uppbót niður um næstu mánaðamót hverjar svo sem aðstæður fólks kunna að vera. Hér er fram gengið af þvílíku tillitsleysi að ótrúlegt er því hlutaðeig- endum hlýtur að vera full- Ijóst að mörgum mun afar erfiðlega ganga að uppfylla þessi ströngu skilyrði innan tímamarka og öðrum er það ómögulegt. I raun eru þessi vinnu- brögð einnig í hróplegu ósamræmi við annars góða starfshætti Trygginga- stofnunar ríkisins gagnvart því fólki er þarf á þjónustu þeirrar stofnunar að halda. Oneitanlega spyr maður sig að því hvort ráðuneyti tryggingamála eigi hér hlut að í harðri kröfugerð sinni á hendur stofnunar með refsivönd fjármálaráðu- neytis yfir sér og kröfuna um skerðingu bóta í ljósi fjárlagatalna. Öryrkjabandalagið tók á þessu við TR og á fékkst leiðrétting enda fólk þar sanngjamt vel. H.S. Hlerað í hornum Maður einn hafði orðið fyrir slysi og meitt sig á fæti. Nokkru seinna var hann spurður um ástandið og hann svaraði: “Ég sting nú ennþá við stúf’. ** Björn heitinn Pálsson var frábær fundamaður. Einu sinni var hann að gera lítið úr lögfræðingum á fram- boðsfundi nyrðra, en þeir voru þar þá í framboði Eyjólfur Konráð og Ragnar Amalds - báðir lögfræðingar. Björn fór um þá mörgum háðulegum orðum þar til Eyjólfur Konráð stóðst ekki mátið og kallaði fram í: “En Ólafur Jóhannesson, er hann ekki lögfræð- ingur?” Þá svaraði Björn að bragði: “Ólafur, hann er prófessor”. Og vandlætingin leyndi sér ekki. ** Dýralæknir í framhaldsnámi í Noregi hitti gamla vinkonu sína sem var þar í framhaldsnámi í kennslu- og upp- eldisfræðum, en hún kvaðst enn vera ólofuð og barnlaus. Þá sagði dýra- læknirinn: “Ekkert skil ég í þér að vera að læra kennslu- og uppeldisfræði sem hvorki átt mann eða böm”. “Ekki skil ég í þér að vera að læra dýralækningar sem ekki hefur einu sinni fengið júgurbólgu, hvað þá meir”. ** Lögfræðingur einn var að reka erfitt mál fyrir viðskiptajöfur einn. Þegar dómur féll var jöfur í utanlandsreisu svo lögfræðingur sendi honum skeyti svohljóðandi: “Réttlætið sigraði”. Um hæl kom svar viðskiptajöfursins: “Afrýjaðu málinu undir eins”. ** 5 ára dótturdóttir ritstjóra fer ævinlega að leika sér að hárlýjum hans þegar hún situr í fangi hans. A dögunum sagði hún við afann: “Afi minn, ég ætla að verða klippingadama þegar ég verð stór”, og bætti svo við afar áhyggjufull, “en ég get ekki klippt þig afi minn”. Afinn spurði eðlilega: “Af hverju ekki?” Þá brosti sú litla sínu samúðarfyllsta brosi og sagði undur- blíðlega: “Af því, afi minn, að þá verður þú löngu dáinn”. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 29

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.