Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 32

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Side 32
Af dágóðri iðju dægranna Kristín Jónsdóttir, þroskaþjálfi, starfsmaður Hússjóðs Öryrkjabandalagsins Formáli ritstjóra: Hér í alnæsta ná- grenni erjar á akri Kristín Jóns- dóttir og hefur ævinlega yfrið nóg að starfa. Ritstjóri lagði fyrir hana nokkrar forvitnispurningar sem hún féllst fúslega á að svara og hafl hún fyrir góða þökk. Hvenær komstu hér til starfa og hvað hafðirðu gert áður? Eg kom til starfa hér í janúar 1988. Ég starfaði í ein tólf ár í Trygginga- stofnun ríkisins lengst af í félagsmála- og upplýsingadeild. Ég lauk námi í þroskaþjálfun árið 1983 og fór þá til starfa í Blindradeild Alftamýrarskóla og var þar í 3 ár, en svo kom ég hingað til starfa frá Greiningar- og ráðgjafar- stöð ríkisins. Auk þess hef ég í mörg ár unnið að ýmsum hagsmunamálum fatlaðra í tengslum við það félag sem ég er í þ.e. Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra. I hverju fólst svo starf þitt í upphafi? Störf mín hér fyrstu árin skiptust að hluta á milli Hússjóðs Öryrkja- bandalagsins og Vinnustofu Öryrkja- bandalagsins. Með tímanum kom í Ijós að megintími starfs míns fór í vinnu við persónulega fyrirgreiðslu við íbúa í Hátúni og fleiri og full þörf var á að ég færi í fullt starf hjá Hús- sjóði Öryrkjabandalagsins enda tók ég þá við því hlutverki að tala við umsækjendur íbúða hjá Hússjóðnum sem hafði verið í höndum Asgerðar Ingimarsdóttur framkvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins til þess tíma. Hvernig hafa þessi störf þín svo þróast? Þau hafa þróast þannig að ég reyni að sjá til þess að fólk sem leigir hjá okkur fái þau réttindi sem í boði eru á hverjum tíma bæði varðandi félagsleg úrræði og greiðslur frá Trygginga- stofnun. Svo er mikill tími sem fer í það að tala við það fólk sem er að sækja um húsnæði hjá okkur og á umsókn inni og fara yfir biðlistann og meta hann á þann hátt að fólk sem er í hvað brýnastri þörf komist í húsnæði hjá okkur. Kristín Jónsdóttir. Sem starfsmaður Hússjóðs fræddu okkur smávegis um umfang hans nú I Hátúnshúsunum eru 205 íbúðir með um 230 íbúum. Nú eru íbúðir Hússjóðs alls um 520 talsins og nokkrar íbúðir eru í byggingu. Hús- sjóður Öryrkjabandalagsins er annar stærsti leigusali landsins með 800 íbúa, í eins lágri leigu og kostur er enda vitað að öryrkjar hafa upp til hópa litla greiðslugetu. Af þessum 520 íbúðum eru 439 á Stór- Reykja- víkursvæðinu og 81 íbúð er úti á landi. Fjölmennustu fötlunarhóparnir í húsnæði okkar eru þroskaheftir eða 150 einstaklingar í 105 íbúðum og einbýlishúsum, geðfatlaðir eru 132 talsins og hreyfihamlaðir 90. Á hverju ári eru keyptar milli 25 og 30 íbúðir. Það verður að segjast eins og er að leigutekjur eru of lágar til að standa undir lágmarksútgjöldum, enda marg- ar íbúðir komnar á þann aldur að þær krefjast aukins viðhalds. I hverju felst svo þjónusta þín við íbúana sem leigja hjá Hússjóði? Er hún bundin íbúum hér í Hátúni eingöngu? Eins og áður sagði leigja hér í Hátúni 230 einstaklingar sem eru á öllum aldri. Tæplega eitt hundrað eru yfir 67 ára aldri. Allir eru hér vegna sinnar örorku en Öryrkjabandalagið leigir einungis öryrkjum. Örorka er af mismunandi toga og er þetta því mjög litríkur hópur. Ég sinni einnig öryrkjum sem búa hjá okkur annars staðar en í Hátúni. Það gefur augaleið að það er margs konar þjónusta sem fólk þarf á að halda sem býr við örorku eða hefur verið fatlað til langs tíma og er auk þess orðið aldrað. Það hefur verið stefna stjórnvalda og hagsmunasamtaka fatlaðra að fólk geti búið svo lengi sem kostur er innf á sínu heimili. Ég ræði við fólk um það hvaða þjónustu það þarf á að halda og einnig oft um hvort áhugi sé fyrir hendi að fara í nám eða atvinnu sé þess kostur og einnig hvet ég fólk gjama til þess að sækja það félagsstarf sem boðið er upp á víðs vegar hvort heldur er fyrir aldraða eða öryrkja og auðvitað það sem stendur öllum til boða, óháð fötlun. Segðu mér af einhverju fleiru af starfsvettvangi þínum Mitt hlutverk er einnig að fara í gegnum fmmskóg almannatrygginga- kerfisins og reyna að sjá til þess að fólk fái það sem því ber. I þessu sam- bandi vil ég taka fram að reynsla mín í störfum hjá Tryggingastofnun í 12 ár hefur komið sér vel í þessu starfi. Samstarf okkar við Tryggingastofnun hefur ávallt verið með ágætum. Hvað viltu segja okkur um álit þitt á lífskjörum þessa hóps? Ég tel að óhætt sé að segja að íbúum á vegum Hússjóðs sé nokkuð vel sinnt, en það er ekki hægt annað en minnast á kjör þessa fólks almennt því þau eru oft til umræðu hér á bæ að sjálfsögðu. Eins og áður sagði leig- ir Hússjóður Öryrkjabandalagsins einungis öryrkjum sem hafa að jafnaði afkomu sína í gegnum almanna- tryggingar. Húsaleiga hjá okkur er eins lág og frekast er unnt. Einnig er húsnæðið öruggt til frambúðar svo fremi að einstaklingar standi í skilum með sínar greiðslur og hegði sér sam- kvæmt húsreglum sem tíðkast í fjöl- býlishúsum. Algeng kjör einstaklings eru þau að hafa örorkulífeyri, tekju- tryggingu, heimilisuppbót og sérstaka heimilisuppbót eða alls kr 57.466.- á mánuði. Síðan breytast upphæðir að sjálfsögðu eftir ýmsu, s.s. tjölskyldu- stærð o. fl. Sumir hafa greiðslur úr lífeyrissjóði og aðrir vinna hluta úr degi t.d. á vernduðum vinnustöðum eða hafa aðrar vinnutekjur. Húsaleigu- bætur eru greiddar hjá sumum sveitar- 32

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.