Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Page 46

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1996, Page 46
• í B RENNIDEPLI Lífskjör fatlaðra í víðastri merking verða ævinlega helztu viðfangs- efni Öryrkjabandalags íslands á hverjum tíma. Ekki sízt á þetta við þegar sífellt er að sótt vegna sparnað- aráætlana í tryggingakerfinu. Oft er það svo að viðkomandi sparnaður kemur við tiltölulega fáa, en er þá þeim mun tilfinnanlegri fyrir þann hóp manna. Oftar en hitt tekur þessi svokallaði sparnaður þó til lífeyrisþega almennt, til almennrar skerðingar á tekjum þeirra og um leið lakari lífsafkomu yfirleitt. Fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár mun fram komið þegar línur þessar verða lesnar, en von okkar sú að í engu verði þar að finna frekari sparnaðar- hugmyndir á kostnað okkar fólks. Það hlýtur nefnilega að vera sjálfsögð skylda stjómvalda að láta hluta batn- andi þjóðarhags skila sér yfir til lífeyr- isþega í landinu eins og annarra, ekki sízt í ljósi þess að einmitt þessi hópur ásamt öðru láglaunafólki í landinu fórnaði mestu til þess að batinn í dag mætti verða staðreynd. A þá skila- skyldu verðum við að treysta. Við skulum því vona að þetta ár verði seinasta skerðingarárið hjá öryrkjum og öldruðum og aftur fari að rofa verulega til. Sannleikurinn verið sá að í engu hefur eðlilega verið skilað inn í tryggingakerfið þeim kjarabótum sem láglaunahópar hafa þó verið að fá og því fróðlegt að sjá hvern úrskurð Umboðsmaður Alþing- is mun kveðaupp í kæmmáli Öryrkja- bandalagsins þ.a.l. En á þessu ári hefur frekari uppbót lífeyrisþega þó orðið fyrir til- finnanlegustu og mestu hnjaski, fyrst með hinni almennu skerðingu 1. mars og síðan með útþurrkun frekari upp- bótar hjá fjölmörgum í kjölfar reglu- gerðar frá í maí sl. Það nöturlega við þá aðgerð er það að reglugerð þessi var upphaflega til þess ætluð að rétta hlut þeirra verst settu, þeirra sem sízt höfðu mátt við skerðingunni 1. mars og sannarlega tóku sum ákvæði hennar til þess og komu ýmsum til góða, þó við hefðum viljað sjá víðtækari áhrif þess, sem tækju til fleiri um leið. Ráðuneytið bætti þessu ákvæði hins vegar inn í annars ágæta leiðrétt- ingarreglugerð og nú em menn svo sannarlega að uppskera þar af. Það er ekki einungis að menn missi þannig drjúgan tekjuhluta sinn með útþurrk- un frekari uppbótar, heldur missa menn um leið réttinn til niðurfellingar afnotagjalds útvarps og sjónvarps, svo hér munar sannarlega um í heimilis- bókhaldi þeirra sem fyrir verða. Tekjumörk segja ekki alla sögu um aðstæður manna og lífsaðstöðu yfirleitt, þar kemur margt fleira til og á það var ráðuneytisfólki sannarlega bent, þó engan bæri árangur. Sannleikurinn enda sá að tekju- mörk geta orðið afstæð. Viðmiðun réttarins til frekari uppbótar nú eru 75 þús. í tekjur á mánuði. Setjum nú svo að maður sé með 75.500,- kr. á mán- uði, missir við það réttinn, missir frekari uppbót, segjum upp á 5300 kr. og er þá kominn sjálfkrafa niður í 70.200,- kr. eða nær engan veginn þeim tekjumörkum sem við er miðað og ætti þá á ný að öðlast þennan rétt, eða hvað ? Gegn þessu þurfa samtök lífeyris- þega að snúast og leita leiðréttinga á þessu, einkum í ljósi þess að tekju- tölur einar segja aldrei allt, þar kemur svo miklu fleira til í aðstæðum öllum. ** Lesendur hafa eflaust veitt því eftirtekt að ritstjóri reynir að gera fréttabréfum og ritum félaga banda- lagsins nokkur skil í blaðinu. Ymsir hafa að því spurt hvers vegna það sé gert, þegar einmitt sumir þeir sömu þ.e. félagar þessara umræddu félaga fái þessi blöð og um leið þetta einnig. En einmitt þetta, að sumir fá en aðrir ekki er ástæða þess að þetta er gert. Það hefur æ ofan í æ kornið fram í umræðunni um stefnuskrá bandalags- ins að fulltrúar hinna ýmsu félaga okkar hafa kvartað yfir að þeir vissu ekki nægilega um það sem væri að gerast á vettvangi hinna. Veikburða tilraun til ákveðinnar fróðleiksdreif- ingar er því hér á ferð hjá ritstjóra og vonandi líta lesendur á þetta sem ákveðna fróðleiksmola sem færir þá eitthvað nær þeim félögum öðrum sem innan Öryrkjabandalagsins eru. Víst eru þetta stiklur einar og aðeins tæpt á aðalatriðum, en ef fólk fýsir fleira að sjá og heyra er ráðið það að hafa samband við viðkomandi félag og fá málgagn þess í hendur. Hér skal svo tekið undir þá útbreiddu skoðun sem fram hefur komið ítrekað í stefnu- skiárvinnunni að nauðsyn er að félög- in innan bandalagsins viti bærilega hvert af öðru, fólk kynni sér hvað ver- ið sé að bauka, fyrir hverju verið sé að berjast á hinum bæjunum. Og eitt er víst: Hinir almennu meginhags- munir fólks í öllum þessum félögum fara saman og baráttan, ekki sízt vam- arbaráttan, má aldrei vera barátta fá- menns forystuliðs eins, heldur um- fram allt fjöldans í félögunum. Því þá aðeins má árangurs vænta af erfiðinu. ** in nefndin enn um heildar- endurskoðun almannatrygg- inganna er nú að störfum og á vissu- lega ærið verk fyrir höndum. Mikil- vægt er að fá inn í löggjöfina þær réttarbætur sem nú eru mest knýjandi, þó segja megi að mest sé nauðsynin að lyfta grunni tryggingabótanna verulega og þá einmitt í Ijósi þess batnandi þjóðarhags sem gumað er af í ræðu og riti. Hér hefur oftlega verið að því vikið hver kjaragrunnur 65% öryrkja er hjá Tryggingastofnun ríkisins og þá um leið réttindagrunnur einnig. Missir 65% af fyrri vinnu- fæmi er ekkert smáræði, en slíkt ginn- ungagap er þó á milli lífeyrisþega þ.e. þeirra sem metnir eru 75% og hinna 65% örorkustyrkþega að engu tali tekur og er þó vitað að ekki eru greiðslur til lífeyrisþega með einkenni ofrausnar. • • Ororkustyrkþeginn hefur sína viðmiðun við örorkulífeyri einan þ.e. hæst 3/4 hluta hans og ein- mitt þeim bótaflokki hefur verið haldið niðri á meðan aðrar bætur s.s. tekjutrygging hafa þó meira hækkað og þróun þessa má rekja allt til upphafs tekjutryggingar 1971. Örorkustyrkurinn er því innan við 46

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.