Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Blaðsíða 11
Það sýndi sig að fræðslan var það sem
langmestu máli skipti fyrir fjölskyld-
urnar þótt annar stuðningur væri
vissulega líka til bóta.
Yfir tuttugu ára reynsla
DAMP-börnum gengur betur í
litlum hópum og flest þeirra ná engum
árangri í stórum hópum. Fjórðungur
þeirra barna sem hefur mjög mikil
vandamál á sviði DAMP hefur
dæmigerð einhverfueinkenni, sömu
andfélagslegu hegðun og sömu horfur
og þessi börn hafa það sterk einkenni
að auðvelt er að finna þau. Helmingur
þeirra barna sem hefur mjög mikil
vandamál á sviði DAMP hefur
aspergereinkenni að mati Gilbergs.
Best er að finna þessi börn um sjö til
átta ára aldur. DAMP/ADHD er því
tvímælalaust mikið hei 1 brigðis-
vandamál og nauðsynlegt er að hæfa
bæði heimili og skóla að þörfum bam-
anna. Hér verða yfirvöld að koma til
skjalanna því þessi hópur er stærsta
einstaka vandamál þeirra sem ábyrgð
bera á æsku landsins.
Geðlæknirinn Dag Brendefuhr,
yfirlæknir og faðir 25 ára manns með
ADHD ræddi þessa greiningu með
tilliti til fullorðinsáranna. ADHD
kemur sjaldan fram á fullorðinsgeð-
deildum þrátt fyrir að einkennin séu
til staðar í sex til níu af hundraði allra
barna á skólaaldri og frá þriðjungi til
helmings allra sjúklinga á göngu-
deildum barnageðdeilda. Deyr
ADHD drottni sínurn á unglings-
árunum eða fölna einkennin og fara
fram hjá fólki?
30% fólks með ADHD hefur
einkennin fram á fullorðinsár en hjá
mörgum dregur úr einkennum á aldr-
inum 15 til 25 ára að sögn Brende-
fuhrs. Menn og konur með ADHD
hafa að meðaltali tveggja og hálfs árs
styttri skólagöngu en aðrir. Margir eru
sjálfstæðir atvinnurekendur í litlum
fyrirtækjum. Margir njóta lítils álits í
samfélaginu, stríða við geðræn vanda-
mál og persónuleikatruflanir.
Brendefuhr sagði að lokum að bætt
þekking fagfólks yki að mun bata-
horfur fólks með ADHD.
Víða á Norðurlöndunum eru starf-
ræktar skólastofnanir fyrir unglinga
og ungt fullorðið fólk með einkenni á
borð við DAMP / ADHD og skyld
vandamál. A Islandi eru þannig stofn-
Flestir íslendinganna á ráðstefnunni að loknum fyrsta degi.
anir óþekktar og of oft er fangelsi
þrautalending ráðalauss samfélags.
Sláandi staðreyndir frá Finn-
landi.
Yfirskrift fyrirlestursins var: Eru
sumir ungu utangarðsmannanna í
samfélagi okkar með DAMP?
Yfirlæknirinn IlkkaTaipale sagði frá
rannsóknum sínum á hópi 25 fmnskra
fanga. Afþeimvoru:
-55% með DAMP og hegðunartrufl-
anir
- 100% höfðu búið við vandamál f
skóla
- 45% stríddu við eiturlyfjavandamál
-71% hafði sálræn vandamál
- 52% höfðu haft sjálfsvígshugsanir
- 17% höfðu gengið í gegnum sál-
fræðilega meðferð
-43% höfðu fengið alvarleg andleg
áföll
- 50% voru með alvarlega skriftar- og
lesörðugleika (í Danmörku er talan
allt að 80% skv. rannsóknum).
Andlát eru tíð í þessum hópi hjá yngri
en 45 ára vegna sjálfsvíga, eitrana
og ofbeldis. Samhengi á milli
afbrota og DAMP / ADHD hefur
ekki verið sannað en leiddar hafa
verið að því sterkar líkur.
A Islandi er hrópandi skortur á
öllum rannsóknum og samanburðar-
tölum en athyglisvert hefði verið að
byrja á því að rannsaka bakgrunn
íslenskra fanga hvað varðar ofantalin
atriði. Ekki kæmi á óvart þótt svip-
aðar niðurstöður fengjust þar og í
Finnlandi og þá er kannski kominn
tími til fyrir íslensk yfirvöld að líta á
öll þessi mál í samhengi og endur-
skoða forgangsröðun. Samfélaginu
ber skylda til þess að forða þessu unga
fólki frá þeirri nöturlegu braut sem
andvaraleysið getur leitt það á.
Lokaorð
Það var mikil og sterk reynsla að
sækja þessa ráðstefnu ásamt öllum
þeim fjölda fagfólks og foreldra sem
hafði sama áhugamál. Það var erfitt
að horfast í augu við þau vandamál
sem blasað geta við börnurn okkar og
gera sér grein fyrir áhættunni. Verst
er þó að vita af öllu því sem hægt er
að gera en sem ekki er gert vegna van-
kunnáttu, úrræðaleysis eða skeyting-
arleysis. Það er alltaf of seint að
byrgja brunninn þegar bamið er dottið
í hann.
*MBD - Minimal Brain Dysfunction
(nú úrelt hugtak)
**DAMP -Deficits in Attention, Mo-
tor-control and Perception
***ADHD - Attention Deficit Hyper-
activity Disorder, samsvarar íslenska
hugtakinu: Athyglisbrestur með
ofvirkni - AMO.
Heidi Kristiansen
Höfundur er móðir misþroska
unglings og fulltrúi Foreldrafélags
misþroska barna í stjórn ÖBI.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
11