Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Side 19
hvers og eins fái notið sín.
2. Að finna þekkingu, reynslu og
hæfileikum gesta farveg innan
félagsstarfsins og hvetja til
frumkvæðis þeirra og sjálf-
stæðra athafna.
3. Að skapa fjölbreytilegt umhverfi
þar sem flestir geta fundið vett-
vang við hæfi.
4. Að fyrirbyggja og draga úr
félagslegri einangrun.
etta eru sannarlega góð markmið
og einhvem veginn finnst manni
eftir að hafa nokkrum sinnum gengið
þama um garða sem afar vel takist að
vinna í anda þeirra í alla staði. Hér
skal ekki náið farið út í það fjölbreytta
starf en félagsmiðstöðin er opin fjóra
daga vikunnar, en ekkert er opið á
þriðjudögum.
Einlægt og gefandi samband er t.d.
á milli barna í Rimaskóla og gesta
Gerðubergs með gagnkvænuim heim-
sóknum, samstarf við kirkjuna er með
miklum ágætum og vikulegar helgi-
stundir í Gerðubergi — og eins og
Guðrún segir: kirkjan er alltaf nálæg,
ef einhver þarf á andlegri hjálp að
halda. Og auðvitað má svo ekki
gleyma hinu dýrmæta sambýli við
menningarmiðstöðina í Gerðubergi
sem ómetanlegt er.
Þar er alltaf eitthvað um að vera
og þar gefst fólkinu í félagsstarfinu
tækifæri til að njóta fjölbreyttra og
gjöfulla listviðburða s.s. tónleika,
myndlistar, leiklistar o.fl.
Til gamans má svo geta þess að
einmitt þegar þarna var komið í apríl
stóð yfir myndlistarsýning Kristjáns
Fjeldsted sem einmitt er einn þeirra
virku í félagsstarfinu hjá henni
Guðrúnu, falleg verk og vel unnin.
Það er með ólíkindum hve mörgu
er þarna sinnt. Þama er hinn ágætasti
kór, þarna er dansað og leiðsögn í
dansi veitt, og svo er tréútskurður,
bókband, postulínsmálun, prjón,
keramik, bútasaumur og þá eru þarna
rifjaðir upp gamlir íslenzkir og
erlendir leikir og dansar og er þó
margt enn ótalið. í Breiðholtslaug er
svo bæði sund og leikfimi undir
styrkri stjórn og leiðsögn.
á inni ég Guðrúnu eftir öðrum
þeim þáttum sem einmitt tengjast
okkar fólki og þar er einmitt af ýmsu
að taka.
Sjálfboðaliðar frá Gerðubergi sem
kalla sig Vini Blindrafélagsins fara t.d.
mánaðarlega í heimsókn til Blindra-
félagsins og halda þar uppi fjölbreyttri
dagskrá sem lið í félagsstarfi aldraðra
blindra og sjónskertra. Þetta hefur
gengið svo til í þrjá vetur og verið
þakklátt og gefandi framlag.
Svo er hópur sjálfboðaliða sem
kalla sig Vini Foldabæjar, en frá því
glögglega greint annars staðar hér í
blaðinu. Þar við má bæta að vinnu-
félagarnir í Gerðubergi hafa í nóvem-
ber ár hvert opið hús í Foldabæ þar
sem vel er veitt, en starfsfólkið í
Gerðubergi kemur með heimabakaðar
kökur. Er þar gjarnan glatt á hjalla.
Þá segir Guðrún að Gigtarfélagið
hafi í fyrra verið með fræðsluerinda-
röð um gigt, Emil Thóroddsen kynnt
félagið vel og fjölþætta starfsemi þess,
gigtarlæknir, sjúkraþjálfi og iðjuþjálfi
hafi m.a. frætt fólkið og hafi þetta
heppnast mjög vel.
að líður að lokum í spjalli okkar
Guðrúnar, en af nrörgu öðru var
að taka sem ekki er hér skráð né
skrifað. Guðrún segir að hlutverk
þeirra í félagsstarfinu sé að styðja
fólkið í hverju því sem það vilji taka
sér fyrir hendur, virkja fólkið í því sem
það langi til að skapa og sannast sagna
er margur fagur hluturinn sem þama
hefur orðið til.
Hún nefndi sem dæmi um fjöl-
breytnina að fólk frá henni hefði setið
yfir myndlistarsýningum m.a. á Lista-
hátíð og haft unun og yndi af að sjá
þar um.
Guðrún segir að auðvitað sé um-
hverfi starfsins þama afar gefandi, en
hið góða starfsfólk sé öllu dýrra og sá
hlýi starfsandi sem yfir öllum vötnum
vakir sé ómetanlegur fyrir þá sem
sækja Gerðuberg heim.
Um leið og Guðrúnu eru færðar
hlýjar þakkir fyrir fróðleikinn og ekki
síður hina ágætu baráttu hennar fyrir
rýmkun reglna um aldursmörk þá skal
á það minnt að hjá henni gilda nú eng-
in aldursmörk og í öðrum félagsmið-
stöðvum er hægt að sækja um undan-
þágu s.s. reglur eða viðmið hér að
framan segja til um.
Enn og aftur: Góðar þakkir
Guðrún. H.S.
Hvað er hamingja?
Hefurðu farið í hamingjuleit?
Hana víst allir þiggja
en margur leitar langt yfir skammt
allt lífið við erum að byggja
upp okkar eigið hamingjuhús.
Sú hugsun er okkur nærri
að einhverntíma við öðlumst það hnoss
sem öllum gjöfum sé stærri.
En hvað er þá hamingja
og hver er sú gjöf
hvers erum við að leita?
Viltu eiga hér örlitla töf
ég upplýsing skal þér veita:
Hvern einasta dag þú gefur þá gjöf
ef gleði þú öðrum færir
og heldur þessvegna í hendi þér
hvort þú um æfina lærir.
Að hamingjan er ekki hugtakið eitt
hún er kjarninn í daglegu verki
allt þig í kringum, ef að er gáð
ósjálfrátt ber hennar merki.
Hún er blómin á enginu, báran við strönd
hún er blikandi von þíns hjarta,
lítið barn sem þú leiðir við hönd,
leiftur um minningu bjarta.
Asgerður Ingimarsdóttir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
19