Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Qupperneq 10

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Qupperneq 10
Útsýni eykur lífskraft og fegurðarskyn - segir Sveinn Indriðason, fyrrum blómasali og berklasjúklingur, sem hefur unnið mikið í baráttumálum öryrkja “Ég hef alltaf notið góðs útsýnis” segir Sveinn Indriðason, sem stendur við stofugluggann á heimili sínu að Arskógum 8, þar sem Esjan og sundin blasa við, og iðandi umferð. “Útsýni eflir lífskjark og eykur fegurðarskyn,” segir sá sem glímdi við berkla - og valdi blómasölu að ævistarfi. Víðsýni einkennir líka manninn, sem hefur ljóðatilvitnanir á hraðbergi - og fylgist vel með púlsi mannlífsins. “Við hjónin eigum þjóðfélaginu skuld að gjalda, sem hefur haldið í okkur lífinu. Hvíti dauðinn og gigtin tóku toll af okkur báðum.” Því gerðist Sveinn formaður Gigtarfélagsins í átta ár, fulltrúi í svæðismálum öryrkja, formaður Reykjavíkurdeildar SIBS. Hann er ómyrkur í máli um stöðu þeirra sem minna mega sín. “Aldraðir og fatlaðir njóta ekki atvinnuöryggis,” segir sá sem var látinn víkja úr ævistarfinu 63ja ára gamall. skilaði skuldlausum höfuðstól upp á tugi milljóna, en var sagt upp fyrir- varalaust eftir þrjátíu ára starf, án skýringa. Sárin svíða enn eftir tæpan áratug. Prjónarnir tifa hjá húsfreyjunni, Sigrúnu K. Árnadóttur, á meðan skyggnst er um í lífssögu Sveins, sem hún á ekki lítinn þátt í. Sigrún og Sveinn hafa staðið saman frá fyrstu samverustundum á Reykjalundi. Erfið lífsbarátta leiddi þau saman. “Maður nær aldrei fullu starfsþreki eftir bardagann við berklana,” segja þau bæði, en eru sammála um að sú lífsreynsla hafi gert þau sterkari. Sveinn er af kyni Dalamanna og Húnvetninga, fæddur í Gröf í Breiðuvík, alinn upp á Stóra Kambi, bæ Björns Breiðvíkingakappa sem fíflaði húsfreyjuna á Fróðá. “Eg kem undan Jökli og hef verið í útsýni alla tíð síðan,”segir Sveinn. “Þá var Jökullinn bara þama, en hefur sjálfsagt gefið manni kraft. Sterk ljóð gáfu mér líka orku. Faðir minn, Indriði Sveinsson, var alltaf með lausavísur á hraðbergi eftir snjalla hagyrðinga, eins og Guðmund Sveinn Indriðason Margar hindranir hafa orðið á vegi Sveins í lífshlaupinu, en eins og hann segir: “Alltaf kom eitthvað til að gefa mér kraft - eða einhver til að hjálpa.” Erfiðasti hjallinn í lífi Sveins var að standa frammi fyrir uppsögn yfir miðjum aldri. “Éghefvitaðfólk deyja vegna höfnunar í starfi, en ég lifði þetta af. Æskudýrkun þjóðfélagsins varð mér að falli. Ég þótti einfald- lega of gamall eða heilsuveill. í því dæmi skipti ekki máli, hvað ég hafði lagt af mörkum til ~” starfsins.” Sveinn byggði upp Blómamið- stöðina hf. heildsölu blómabænda, menntaði sig í markaðsmálum blómabænda, vann starfið af hugsjón, Oddný S. Björgvins Bergþórsson (uppi á 17. öld) rímna- skáld sem lifði af skáldskap sínum, en sagður “visinn” eða lamaður. Hann var örugglega fyrsti öryrkinn á Islandi til að ráða sér burðarmann til að bera sig út í sólina. Sumt af þessum lausavísum kann ég enn. Ég er sannfærður um, að ljóðalærdómur er besta aðferðin til að varðveita íslenskt mál.” Sveinn ritstýrði blaði Gigtar- félagsins um tíma og segist þokka- legur íslenskumaður, “en Sigrún slær mér alveg við. Hún gekk í skóla á Húsavík hjá Friðrik Friðrikssyni og konu hans Gertrud, sem voru alveg frábærir kennarar. Hún þýddi við- stöðulaust greinar úr dönsku og ensku fyrir blaðið, ég þurfti aldrei að breyta staf frá henni. Lífsins hlutavelta Já, ég kem undan Jökli. Tíu ára fór ég í farskóla, og er trúlega eini Islendingurinn sem hefur komist í háskóla með farskólapróf! Heilsu- eysi hrjáði mig frá barnæsku, en ég var svo heppinn að allt í kringum mig voru hugsjónamenn - talsmenn menntunar - foreldrar mínir, nágrann- ar, kennarar, og síðar Oddur Olafsson yfirlæknir sem ég á mikið að þakka. Kennari minn í farskóla var Haraldur Jónsson, Skaftfellingur af bestu gerð. Hjá honum lærðum við hljómfögur, íslensk ljóð utanbókar, eins og Gunnarshólma Jónasar og Fáka Einars Ben. sem gefa mér kraft enn í dag. Ég varð snemma alæta á lesefni og ófáar bækur lánaði Haraldur mér. Á titilblaði sumra barnabókarina stóð: “kveðja, þýðandi,” sem félagar hans úr kennarastétt höfðu sent honum. Eftir farskóla voru fá tækifæri til 10

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.