Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Síða 16

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Síða 16
Urfórum Friðgeirs Einars: Um barnið Sá sem byrgir brunninn áður en barnið dettur ofan í hann byrgir barnið ofan í brunninum. Eina ráðið til að ná til barns er að taka barnið sér til fyrirmyndar. Sá sem gengst við barninu gengst við sjálfum sér. Rétta leiðin til að ala upp barn er að leyfa barninu að ráða ferðinni. Friðgeir Einar Kristjánsson: Máttur tilfinninganna Tilfinningar mínar sá sér í hugskoti þínu sem ert í sama andblæ og ég. Fjarlægð hún skiptir ekki máli tíminn hann stendur kyrr. Göfugar kenndir leggja rækt við hæfileika okkar frjóvga andann. Illar hugsanir berja tilfinningalíkama okkar feykja landinu burt. Bænin hún lægir ofsann trúin hún slekkur þorstann. Von mín vex í hjarta þínu. Þú mætir mér á miðri leið. Kærleikur þinn kviknar í brjósti mínu ég faðma þig að mér. Samhugur skín í sálu okkar. Við eigum samleið. Vitund hún er rót frelsis. sáttfýsin hún Ijær nýgræðingi líf. Umhyggja þín græðir hjartasárin. Eyðilandið grær upp. Einlægni mín er mjór vísir. Jurtin mín dafnar hjá þér. Látleysið það kemur blómi í blóma. Hugprýðin hún gerir blómi fært að breiða út fangið. Bjartsýni þín myndar litfagran lystigarð. Friður og yndi leika í blænum. Þakkir mínar framkalla víðfeðma undraveröld. Ég elska heiminn og veröldin brosir við mér. Samlíf það hefur aðdráttarafl. Samheldnin hún er sjálfur garðyrkjumeistarinn. Hlerað í hornum Helgi litli Tómas sagði móður sinni að nú ætlaði hann alveg að hætta að borðanammi. Móðirin tók því vel en spurði hvers vegna. Sá litli spurði þá hvort hann væri ekki svolítið feitur og móðirin kvað nei við - ekkert mjög en svolítið. Þá sagði sá litli: “Pabbi er svolítið mikið feitur af því að hann borðar oft nammi án þess að spyrja fyrst.” * * * * Vinirnir tveir höfðu ekki sést lengi en nú fór annar í kvöldheimsókn til hins og í hvert sinn sem húsráðandi bað konu sína um eitthvað þá var það: “Elskan mín, yndið mitt, ástin mín, hjartað mitt o.s.frv. Þegar eiginkonan var frammi í eldhúsi fór gesturinn að dást að því hve falleg gæluorð vinurinn hefði við konu sína eftir svo marga áratuga sambúð. Hinn varð mjög vandræðalegur, en sagði svo: “Ég skal segja þér eitt - ég man bara ekki hvað hún heitir.” * * * * Klerkur einn kvaðst í ræðu sinni á sunnudegi ætla að tala um lygina næsta sunnudag. Svo sóknarbörnin yrðu nú betur undir boðskapinn búin bað hann þau um að lesa 17.kaflann í Markúsarguðspjalli. Næsta sunnudag hóf prestur ræðu sína á því að biðja þá að rétta upp hönd sem hefðu Iesið kaflann nr. 17 og meginþorri kirkjugesta rétti upp hönd. Þá sagði prestur: “Ja, nú getum við heldur betur farið að ræða lygina því kaflarnir í Markúsarguðspjalli eru bara 16.” * * * * A dögunum andaðist mikill athafna- og dugnaðarmaður af Austfjörðum. Af honum var sögð sú saga að eitt sinn er maður kom til að hitta atvinnu- rekandann þá fann hann hann ekki inni á skrifstofum, ekki heldur á síldarplaninu eða bryggjunni. Hann kvartaði undan þessu við einhvern verkamanninn sem ansaði rólega: “Stattu bara kyrr, hann á einhvern tímann leið hér hjá”. * * * * Gamla konan á elliheimilinu var eitthvað örlítið farin að ruglast í ríminu þegar hún spurði lækni heimilisins: “Hvað verður nú gert við elliheimilið þegar allt gamla fólkið er dáið?” 16

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.