Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Síða 40

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Síða 40
Gísli Helgason forstöðum.: Endurminningar, sem merluðu á goslokahátíð í Vestmannaeyjum að er undarlegt hvernig löngu liðin tíð situr í undirmeðvit- undinni og svo kemur hún upp á yfirborðið við ákveðin tilefni: Þannig var að ég var svo heppinn að skreppa með fjöl- skyldunni minni til Vestmanna- eyja, þegarhaldið var upp á að aldar- fjórðungur var liðinn frá því að eldgosinu í Heimaey lauk. I Eyjum var mikið Helgason um ciýr(-)jr 0g anjr ““““voru hjartanlega samtaka um að skemmta sér hið besta. Eg gekk um götur, fór inn í hin ýms- ustu hús, sem stóðu opin með söng og gleðskap, hitti marga, raulaði með Arna Johnsen og spilaði á flautu með öðrum. Svona gekk þetta allt til kl. hálfsex að morgni laugardagsins 4. júlí. Það var aðeins rigningarsuddi, en við klæddum hann af okkur og hugs- uðum til þess að gróðrinum veitti ekki af vætunni. ar sem ég var á leið heim í svefnstað okkar fjölskyldunnar að Ofanleiti, en þar höfðum við leigt okkur lítið hús, hitti ég fólk, sem ég kannaðist við. Eg rölti með því áleiðis, upp með Hánni, á leið út á Hamar og þá komst ég að því að ein konan í hópnum var dótturdóttir hennar Ingi- bjargar Ólafsdóttur frá Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum. Móðir mín var mikil vinkona hennar Ingibjargar og á efri hæðinni bjó ágætis manneskja, sem vann lengi hjá foreldrum mínum og bjó heima hjá okkur, þegar ég var peyi. Mátti hún margt af mér þola manneskjan sú. Þegar við, ég og barnabarnið hennar Ingibjargar röbb- uðum saman, þá sagði ég henni frá því hvernig hún Ingibjörg amma hennar hjálpaði mér yfir einhvern þann erfiðasta hjalla, sem ég hef klifið: Árið 1971, þann 5. aprfl átti ég 19 áraafmæli. Þá um kvöldið var Hafsteinn Björns- son miðill með skyggnilýsinga- fund í Mennta- skólanum í Reykja- vík, þar sem ég stundaði nám í 5. bekk. Við fórum þrír saman á fundinn, við Arnþór bróðir minn og Friðrik Hjartar, sem gegnir nú prestsembætti úti á landi. Hátíðarsal- urinn í M. R. var troðfullur og stóðum við þremenn- ingar í norðvesturhorni salarins, út við glugga. Brátt fer Hafsteinn að lýsa þeim, sem vildu ná sambandi. Það var eins og margir kæmu í hornið til okkar þremenninga og þekktum við marga. Allt í einu fer Hafsteinn að lýsa fjöll- um, og manni, sem var í björgunum. Mér fannst ég kannast við lýsinguna og allt í einu áttaði ég mig á að þetta var sonur hennar Ingibjargar í Ból- staðarhlíð, sem hrapaði að ég held í Bjarnarey fyrir nokkrum árum. Eg gaf mig fram. Þá segir Hafsteinn fyrir hönd þess framliðna, sem mig rámar í að hafi heitið Bjami Ólafur: “Skilaðu kveðju til hennar mömmu,” og það gætti viðkvæmni í málrómnum. Eg lofaði því, fundurinn leið og daginn eftir hélt ég ásamt Arnþóri heim til Eyja í páskafrí. Eg sagði móður minni frá því hvaða kveðju ég hafði verið beðinn fyrir og hún hvatti mig ein- dregið að heimsækja Ingibjörgu og bera henni sonarkveðjuna, en mig brast kjark. Svo kom skírdagurinn 8. apríl. Það var léttskýjað þann dag og við Amþór ásamt foreldrum okkar fórum í kvöldkaffi til elstabróður okkar. Fyrr um kvöldið hafði faðir minn legið hljóður í sófa og tuldrað fyrir munni sér vísu, sem eftirfarandi saga fylgdi: Það var víst bóndi í Þingeyjarsýsl- unum, sem Helgi hét. Hann féll niður í keldu sem kölluð var Helvíti, en bjargaðist við illan leik. Vegna þessa ortu sveitungar hans: Að því enginn geri gys. Guðs er mikill kraftur. Helgi fór til helvítis, en honum skaut upp aftur. Síðustu tvær línurnar raulaði hann fyrir munni sér. egar við komum heim, rétt fyrir hálftólf, gekk hver og einn til sinna kvöldverka. Faðir minn stóð við salemið og ég beið. Allt í einu fer hann að hósta og kúgast. Eg spyr hvort eitthvað sé að, en hann svaraði ekki. Eg kalla á móður mína og hún kemur strax og spyr hvort eitthvað sé að. Hann reisir sig upp, fórnar höndum og rekur upp óp og fellur í fang hennar. Eg ætla ekki að reyna að lýsa því áfalli, sem við urðum fyrir. Sár söknuður og tregi ásamt djúpri sorg yfir föðurmissinum heltók mig. Á föstudaginn langa, daginn eftir andlát 40

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.