Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Page 21

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Page 21
Kynning framkvæmdastjóra Fram er haldið þeim góða sið að kynna framkvæmdastjóra félaga okkar. Nú er komið að nýjum framkvæmdastjóra Alnæmis- samtakanna á Islandi. Hún heitir Anna Friðrikka Guð- jónsdóttir og við Guðríður Ólafs- dóttir tókum hana tali í byrjun nóv- ember um leið og við fengum ágætt kaffi til að liðka málbeinin. Anna Friðrikka er fædd á Siglu- firði 26. júlí 1965 og ólst þar upp. Foreldrar hennar eru Guðjón Jó- hannsson og Val- gerður Halldórs- dóttir sem enn búa á Siglufirði. Anna Friðrikka fór í fjölbrauta- skóla á Akureyri (forvera Verkmenntaskólans) og var þar í einn vetur. Hún fór svo til Israels í sjálfboðavinnu í 5 mánuði, vann þar á samyrkjubúi og kvað það hafa verið dýrmæta lífsreynslu. Frá 1984 til 1993 bjó hún í Vest- mannaeyjum, gifti sig þar, var hús- móðir og eignaðist þar sín tvö börn. Hún stundaði nám utan skóla og hugð- ist mennta sig sem sjúkraliða, en það reyndist henni of mikið álag vegna sjúkleika, en Anna Friðrikka er psoriasis- og gigtarsjúklingur. Venti sínu kvæði í kross og fluttist til Reykja- víkur, fór í sminkunám og er sminka í íslensku óperunni og hjá áhugaleik- hópum. Hjá Almæmissamtökunum hóf hún störf 15. ágúst sl. undir leiðsögn Grétu Adolfsdóttur fyrrum framkvæmda- stjóra sem flutti búferlum til Súðavík- ur, tók svo við að fullu í september- byrjun og er í 77% starfi. Hún sér um skrifstofuna, hefur góð tengsl við fólkið sem hittist þarna og talar saman, enda er þetta eins konar félagsmiðstöð frá kl. 13 til 17. Hún er einnig við á kvöldin ef þess þarf með t.d. vegna hópastarfs. Hún kvað formanninn, Inga Rafn Hauksson, vinna afar mikið og ómetanlegt starf. Hún sagðist svo sem gera allt sem gera þyrfti, sjá um þrif, veitingar, væri þannig ráðskona og sæi í raun um þetta eins og hvert annað heimili. Hún sagði að öllum meiri háttar málum fólksins væri vísað til Sigurlaugar Hauksdóttur félags- ráðgjafa sem væri þarna með vikulega tíma, kl. 14 - 16 á miðvikudögum. Anna Friðrikka sagði aðspurð að nýju lyfin gæfu mörgum mikla bót en margir yrðu fyrir aukaverkunum, aðrir hefðu hreinlega ofnæmi fyrir lyfjun- um. Hún kvað fordóma enn í gangi, því skyldi ekki gleymt. Við spurðum í lokin hvort ekki væri nú margt á döfinni. 1. des. er árlegur alþjóðadagur í þágu alnæmisfólks, þá verður opið hús ogjafnvel blysför. Nú svo er afmælisundirbúningurinn í fullumgangi, 10 ára afmælið. Afmæl- isblað Rauða borðans verður veglegt. Sýning á sögu alnæmis í fortíð, nútíð og framtíð opnuð 28. nóv. í Tjarnarsal Ráðhússins og þá málþing sama dag sem gestum verður boðið til eftir opnun sýningar. Sýningin stæði svo til 5. des., en einmitt þá er félagið 10 ára. Anna Friðrikka minnti svo á alþjóðlega slagorðið 5. des.: Ungt fólk gegn alnæmi. Við Guðríður þökkum Önnu Friðrikku fyrir ágætt spjall, óskum afmælisbarninu innilega til hamingju með daginn og árnum því alls velfarnaðar í framtíðinni. Síðan lá leið okkar Guðríðar til húsa Blindrafélagsins til fundar við Gísla Þór Gíslason rekstrarstjóra þess félags, sem raunar er ígildi fram- kvæmdastjóra. Gísli Þór er fæddur 21.nóv. 1961 íReykjavíkþarsemhann hefur alið sinn aldur síðan. Foreldrar Gísla Þórs voru hjónin: Aslaug Ingibjörg Ásgeirsdóttir og Gísli Ingibergsson löggiltur rafverk- taki, en þau eru bæði látin. Gísli segir sínar bernsku- og æskuslóðir hafa ver- ið í Smáíbúðahverfinu, nánar tiltekið í Langagerðinu. Hann fór í Iðnskólann í Reykjavík og lauk sveinsprófi í rafvirkjun 1982, varð svo rafiðn- fræðingurfráTækniskólanum 1986 og 1992 iðnaðartæknifræðingur frá sama skóla sem í raun samsvarar rekstrar- tæknifræði. Hann vann við rafvirkjun í 4-5 ár, var svo útsendingarstjóri á Stöð 2 '87- '88, vann þar næst að sölu- og mark- aðsmálum fyrir Vélaverkstæði Vald. Poulsen. 1992 réðist hann sem fram- kvæmdastjóri Landssambands ísl. rafverktaka allt þar til hann réðist til Blindrafélagsins 16.jan. á þessu ári. Gísli Þór segist hafa gnótt góðra verkefna að vinna að. Hjá Blindrafélaginu starfa auk formanns í hlutastarfi 13 manns f 10 stöðugildum og er þá Blindra- vinnustofan þar fyrir utan, enda sjálf- stætt fyrirtæki. Gísli Þór telur upp fólkið sem fæst við hin fjölbreyttu störf allt frá félagsráðgjafa og bókara upp í starfsstúlku mötuneytis og umsjónar- mann húss að ógleymdum forstöðu- manni Hljóðbókagerðar. Hann nefnir nokkur verkefna þeirra sem við er fengist. Verið er að byggja upp trún- aðarmannakerfi sem Ragnar Magn- ússon kynnir einmitt í þessu blaði. Þetta fyrirkomulag segir Gísli að önnur öryrkjafélög ættu að huga að — aflétta félagslegri einangrun — veita stuðning við fjölskyldur o.s.frv. Unnið er að því að bæta aðgengið í húsinu með t.d. breytingum í anddyri og nýrri lyftu og síðan eru það íbúð- irnar sem taka þarf f gegn. Gísli Þór segir það stolt þeirra að eiga formann æskulýðsnefndar Alheimssamtaka blindra, fyrsta for- manninn þar, sem er Sigrún Bessa- dóttir. Hann minnir á talgerfilinn, hugbún- aður settur í tölvur, skannar síðu og les svo. Unnið í Windows-umhverfi í framtíðinni. Menn binda miklarvonir við tækniþróun í tölvumálum sem auðveldar blindum að taka að sér fleiri störf, skapar um leið fleiri og betri samskiptamöguleika fyrir blint fólk. Gísli Þór segist í lokin vera mjög bjartsýnn á framtíðina fyrir þá blindu, framþróun vinnur svo sannarlega með þeim. Við Guðríður þökkum gott spjall, árnum Gísla Þór alls góðs í störfum og Blindrafélaginu góðs gengis í framtíðinni. H.S. Anna F. Guðjónsdóttir Gísli Þór Gíslason FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 21

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.