Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 31

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 31
Ásta B. Þorsteinsdóttir flytur ávarp á útifundi á Austurvelli. viðurkenna að hún leiddi baráttuna á þessum árum og mótaði mjög störf og stefnu beggja samtakanna. Hún var vel máli farin, skelegg og lét ekki undan fyrr en full rök höfðu verið færð fyrir því að öðruvísi skyldi vinna en hún taldi vænlegast. Þegar ákveðið var að endurskoða lög um málefni fatlaðra í lok 9. áratug- arins var samtökum fatlaðra einungis gefinn kostur á að skipa einn fulltrúa í endurskoðunarnefndina. Undirritað- ur fékk því Framsóknarflokkinn til þess að skipa sig í nefndina og Alþýðubandalagið skipaði Helga Seljan. Hins vegar þótti sjálfgefið að sam- eiginlegur fulltrúi Þroskahjálpar og Öryrkjabandalagsins yrði Ásta B. Þorsteinsdóttir. Og enn var það svo að hún leiddi þá hugmyndafræði sem mótuð var innan nefndarinnar með rökfestu sinni og víðtækri þekkingu. Eftir að ég hætti afskiptum af málefnum fatlaðra í árslok 1993 lágu leiðir okkar Ástu saman í bæjarmálum á Seltjarnarnesi, en hún var vara- maður Bæjarmálafélags Seltjarnar- ness í félagsmálaráði bæjarins. Þegar hún gekk opinberlega til fylgis við Alþýðuflokkinn brá ýmsum í brún, en sennilega hefur þessi ákvörðun henn- ar verið rétt. Henni hefði vafalaust tekist að sveigja flokkinn enn frekar til fylgis við málstað fatlaðra og hún var óumdeildur málsvari þeirra á Alþingi á meðan hún sat þar. Stundum kastaðist í kekki með henni og ósvífnum ráðherrum núverandi ríkis- stjórnar, en Ásta efaðist mjög um heil- indi þeirra í málefnum fatlaðra. Nú þegar Ásta er kvödd hljóta menn að hugsa til þess jafnaðar og mannréttinda sem hún barðist fyrir. Hvernig skyldi henni hafa orðið við að heyra þau orð formanns Framsókn- arflokksins, sem féllu á Alþingi fyrir skömmu, að alltaf væru einhverjir á íslandi sem ættu bágt. Ásta trúði því ekki að öryrkjar ættu bágt öðrum fremur. Hún vissi að með réttum við- horfum og góðri aðstöðu er hægt að bægja burt ýmsum bágindum. Bág- indin þurfa ekki að stafa af fötlun eða örorku. Hins vegar búa þeir stjórn- málamenn við andleg bágindi sem treysta samborgurum sínum ekki bet- ur en svo að þeir varpa því fram í umræðum um hagsmunamál fatlaðra, að alltaf séu einhverjir, sem eigi bágt. Það væri í anda Ástu B. Þorsteins- dóttur að menn tækju höndum saman og brytu á bak aftur þetta bágindatal stjórnmálamanna og þau viðhorf sem felast í þeim. Hafi stjórnmálamenn áhuga á að bæta kjör og aðstöðu sam- borgaranna þarf það að gerast á öðrum forsendum en þeim að líkna þeim sem bágt eiga. Til þess þarf hugrekki og víðsýni. Þessa eðlisþætti hafði Ásta í ríkum mæli. Henni var hins vegar skammtaður of naumur tími til starfa hér ájörð. Arnþór Helgason fyrrum formaður Öryrkjabandalags Islands Frjálst val Ég get ekki hitað heilann, svo hugurinn fari af stað, eitthvað útí bláinn, að elta ég veit ekki hvað. Sem hægt er að hafa til smíða, í háfleyg og göfug Ijóð, sem af virtum og vísum mönnum, verða metin góð. Svo ég ætla að leggjast í leti, og láta allt fara sinn veg, því hvíldin er þeim óþreyttu, þörf og dásamleg. Jón Þorleifsson. Kærur og kvartanir Afar víða er fróðleik að finna sem á einhvern veg varða okkar mál. Eitt þeirra mála sem mjög hafa í umræðu verið eru kvartanir og kærur til landlæknisembættisins vegna “meintra mistaka” eða samskipta- örðugleika. í nýju riti landlæknisembættisins er um þessi mál fjallað: Fylgirit við heilbrigðisskýrslur nefnist það. Sam- an hafa tekið Ólafur Ólafsson land- læknir og Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir. Samtals hafa slíkar kærur og kvart- anirverið 1546áárunum 1991-1997 að báðum meðtöldum, flestar á árun- um 1994 og 1995 eða 271 og 268. Flest málin varða “meint mistök” eða samtals 750 á þessum árum. Kvartana- og kærumál sjúklinga eru staðfest í 20-35% tilfella og það virðist svipað og í nágrannalönd- unum. Eitt vekur athygli umfram ann- að en það er að hlutfall lækna er sviptir hafa verið leyfi í kjölfar kvartana er hærra á íslandi en í nágrannalöndum. Annars eru engin tök hér að gjöra skil þeim gagnlega fróðleik sem fylgi- rit þetta geymir, en þetta látið nægja. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 31

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.