Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Blaðsíða 33

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Blaðsíða 33
langaði með henni fram í þvottahús, karlinn hafði úrslitavald í þeim efnum. Ferlið var ætíð það sama. Við amma leiddumst hönd í hönd fram ganginn, námum staðar við ofn- inn, ég færði mig á bak við ömmu og ríghélt í hana, en hún bauð karlinum góðan daginn, spurði hvernig hann hefði það í dag og hvort það væri í lagi að hún Ásta litla fengi að fara með henni fram í þvottahús. Um leið og amma sagði þetta strauk hún karlinum um vangann og hann kinkaði kolli á móti. Leyfið var fengið, við amma gátum haldið ferð okkar áfram, önnur þorði varla að draga andann, í hinni tísti af niðurbældum hlátri. En eitt var skntið, karlinn leyfði mér bara að fara með ömmu ef hún strauk honum um vangann!! Ýmsir gerningar voru líka í kringum það að fara í búrið. Fyrir mér nálguðust búrferðirnar það að vera helgiathöfn. Sem fyrr leiddumst við amma fram, en nú námum við staðar við hurðina inn á ganginn. Amma setti fingur á munn sér til merkis um að ég yrði að vera alveg hljóð, ég kinkaði andagtug kolli. Síðan opnaði amma hurðina ofurvarlega, við stigum inn á ganginn og læddumst eins og þjófar á nóttu að búrhurðinni. Amma stakk lyklinum í skrána og sneri honum með tilburðum, ég beið spennt en gaf karl- inum á ofninum hornauga meðfram því að fylgjast með tilfæringum ömmu við að opna dyrnar að helgi- dómnum. Svo gengum við hátíðlegar á svip inn í þetta litla hvítmálaða herbergi með brúna gólfdúknum, litla glugganum og öllum vegghillunum sem voru sneisafullar af ýmiss konar venjulegri matvöru. En ég hafði lítinn áhuga á þeim. Áhugi minn beindist að marglitum, fagurlega myndskreytt- um baukum með loki á, sem afi hafði komið með frá útlöndum. Baukar þessir voru fullir af brj óst- sykursmolum af öllum mögu- legum stærðum og gerðum, svo var þarna kandísinn góði, súkkulaði og karamellur. Þvílíkt góðgæti stenst enginn, en það var ekki hlaupið að því að fá mola, svona að tilefnislausu. Onei, nú þurfti að spyrja búálfinn sem ríkti í búrinu, þennan sem þurfti ein- hverra hluta vegna að nálgast hljóð- lega og með mikilli varfæmi. Svo þegar ég var búin að hvísla því að ömmu að mig langaði í mola, spurði amma - upp í “gotteríishilluna” - hvurnig það væri, hvort Ásta litla hefði verið það þæg þennan daginn að hún ætti skilið að fá eitthvað gott í munninn? Eg beið svarsins með öndina í hálsinum og tvísté af spenn- ingi. (Fæ ég? Fæ ég ekki?) Amma var alltaf sammála álfinum. Ef hann sagði já, þá brosti amma, kinkaði kolli og sagði “sammála”, ég varpaði öndinni léttar og valdi mér hamingjusöm góðan mola. Elsku búálfur! En ef hann sagði nei, þá var amma döpur á svip, kinkaði kolli og sagði “sammála”, ég varð vonsvikin og fýld, þó ég vissi að ég hafði unnið tilþessa. Það var bara þetta. -Hvemig vissi hann alltaf allt? Leiðinlegi búálfur. Enn þann dag í dag sé ég álfana hennar ömmu ljóslifandi fyrir mér (þó ég sé staurblind á þeirra sviði). Blómálfana eins og litla, marglita ljósdepla svífa á örsmáum vængjum milli blómanna, búálfinn í forstofunni á stærð við 2ja til 3ja ára barn, góðlegan karl, með mikið grátt skegg, rauða topphúfu, í grænni treyju, brúnum buxum og sauðskinns- skóm, búálfinn í búrinu á stærð við löngutöng, grænklæddan frá toppi til táar, skegglausan og frekar fýlulegan á svip. Já, þeir eru allir orðnir jafn raunverulegir og karlfauskurinn á ofninum var, þessi ógnvekjandi trékarl með gormahálsinn. Það að alast upp með álfum, ef svo má að orði komast, gerði mér ekkert nema gott. Það kenndi mér að bera virðingu fyrir náttúrunni og öllu lífi í kringum okkur, hvort sem það er þessa heims eða annars. Enda trúi ég staðfastlega á tilvist álfa og huldufólks og virði allar sögusagnir um álaga- bletti og bústað hulduvera í klettum og björgum. Og ég vona svo sannar- lega að á mínu heimili búi a.m.k. einn búálfur og honum líði jafnvel og álf- unum hennar ömmu. Ásta Magnea Signiarsdóttir. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 33

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.