Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 40

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 40
Síminn frá Nokia skoðaður grannt. MANNRÉTTINDI HEYRNARLAUSRA Laugardaginn 3. okt. sl. var haldið hið myndarlegasta málþing um mannréttindi heyrnarlausra. Þingið var haldið í Háskólabíói, var vel sótt og tókst hið besta, en málþingsboðandi var Félag heyrnarlausra. Formaður félagsins, Berglind Stefánsdóttir, sem vel að merkja er einnig skóla- stjóri Vesturhlíðarskólans, setti þingið og bauð fólk velkomið. I ávarpi sínu minnti Berglind á hin brýnu baráttumál félagsins, mann- réttindamálið mesta þó að fá tákn- málið viðurkennt sem móðurmál eða fyrsta mál heyrnarlausra. For- maður Heimssamtaka heyrnar- lausra, Liisa Kauppinen, forfallað- ist á síðustu stundu, en erindi hennar var flutt af Berglindi. Hún lagði áherslu á hin ýmsu réttindi sem mannréttindasáttmálar fælu í sér og ættu að tryggja möguleika heymarlausra til eðlilegrar þátttöku í samfélaginu s.s á félagslega sviðinu, í atvinnumálum, menntun og menningu ekki hvað síst. Þekk- ingaröflun sem greiðust treystir þroskann og gerir alla betur færa um aðlögun alla að samfélaginu, ekki síst heyrnarlausa. Þetta var í raun hinn rauði þráður í máli manna og Ragnar Aðalsteins- son hrl. og formaður stjórnar Mannréttindaskrifstofu íslands flutti erindi og spurði svo áleitinnar spurnar sem þeirrar: “Njóta heyrn- arlausir á Islandi mannréttinda?” Erindi hans verður hér birt. Sigríður Anna Þórðardóttir alþm. og formaður starfshóps ríkis- stjórnar um mál heyrnarlusra flutti erindi: “Málefni heyrnarlausra og daufblindra.” Hún ræddi hin ýmsu réttinda- mál heyrnarlausra sem fyllsta skilnings nytu en fram- kvæmd fylgdi oft ekki í kjölfarið. Hún vildi festa sem flest þeirra rækilega inn í almenna réttinda- löggjöf, en lýsti efasemdum um réttmæti þess að lögleiða táknmálið sem slíkt. Mestu máli skipti að framkvæmd væri sem allra best og hennar ættu heyrnarlausir að njóta. Camilla Mirja Björnsdóttir, nemandi í MH. kynnti sína: “Fram- tíðarsýn”. Menntun og víðtæka þekkingu setti hún á oddinn, gera þátttöku fatlaðra hvarvetna eðlilega og sjálfsagða. Hún bar saman aðstöðu og aðstæður heyrnarlausra hér og í þeirn tveim þjóðlöndum sem hún hafði búið í og kvað okkur langt á eftir í alltof mörgu. I pallborði á eftir sátu frummæl- endur, aðrir en Camilla og bar margt á góma. Lögleiðing táknmáls einkum rædd, ágæt þátttaka var úr salnum, mest heyrnarlausra, en einnig heyrnardaufra sern heyrandi. Túlk- un í sjónvarpi eðlilega rædd, einnig nauðsyn þess að heyrnarlausum verði gert kleift að fylgjast með tækninni sem best m.a. hvað varð- aði samskipti í síma. Spurningin um hvort heyrnarlausir væru fatl- aðir eða málminnihlutahópur einn- ig rædd og Ragnar sagði að heyrn- arlausir væru hiklaust fatlaðir með- an táknmálið gilti ekki betur en þetta í samfélaginu og öll túlkun af alltof skornum skammti. Undirrit- aður stýrði þessu málþingi sem honum þótti til fyrirmyndar í mörgu. I anddyri biðu manna góðar veit- ingar, þar fór fram kynning á félag- inu, Samskiptamiðstöð og Hátækni kynnti símann — Nokia 9000. Megi sjálfsögð mannréttindi heyrnarlausra verða virt með þeirri nauðsynlegu forsendu að táknmálið verði viðurkennt með lögum. H.S. 40

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.