Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 41

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 41
Stefnumotun 1 málefnum geðsjúkra Ageðheilbrigðisdaginn 10. okt. sl. var kynnt skýrsla starfshóps sem vann að stefnumótun í geðheilbrigðismálum. Starfshópurinn var skipaður af Ingi- björgu Pálmadóttur heilbrigðis- og tryggingaráðherra í febrúar 1997. Formaður starfshópsins var Tómas Zoega yfirlæknir en aðrir voru skv. tilnefningum hinna ýmsu aðila: Eydís Sveinbjarnardóttir, Guðný Anna Arn- þórsdóttir, Halldóra Ólafsdóttir, Hrefna Ólafsdóttir, Margrét Margeirs- dóttir, Oddi Erlingsson, Ólafur Ó. Guðmundsson, Pétur Hauksson, Sig- mundur Sigfússon og Vilmar Peder- sen. Starfsmaður hópsins var Jón Sæm. Sigurjónsson. Skýrslan er hvorki meira né minna en yfir 280 bls. í A4 og firna mikinn fróðleik þar að finna um hinar ýmsu hliðar þessara mála. Samstaða var innan hópsins um að leggja sérstaka áherslu á málefni barna og unglinga sem eiga við geðsjúkdóma að stríða. Nauðsynlegt er og að sinna sérstak- lega fullorðnum einstaklingum sem eiga við langvinna geðsjúkdóma að stríða. ítarlegur kafli er um áfengi og önnur vímuefni og þann viðbótar- vanda sem þar er við að fást. Sérstak- lega er einnig fjallað um þjónustu hinna þriggja geðdeilda sem starf- ræktar eru á landinu. Fjöldi innlagna á geðdeildir hefur aukist en meðal- legutími styst. Aðrir kaflar skýrslunnar fjalla t.d. um niðurstöður íslenskra far- aldsfræðilegra rannsókna, tíðni geð- raskana, algengi þeirra og nýgengi og sjúkdómslíkur, eins eru niðurstöður athugana á þjónustu héraðs- og fjórð- ungssjúkrahúsa við geðsjúka, um heilsugæsluna og hennar mikilvæga hlutverk. Fjallað er um sjálfsvíg sérstaklega svo og afleiðingar ofbeldis og áfalla. Annars segja kaflaheitin þ.e. meg- inkaflarnir nokkuð til um efnið enda engin leið hér að gera svo viðamikilli og vandaðri skýrslu skil. Stefnumótun í málefnum geðsjúkra Skýrsla starfshóps scm Inglbjörg Pálmadóttlr hcilbrigðis og tryggingamáJaráðherra skipaði 10. októbcr 1998 Forsíðan. Kaflaheitin eru: Geðsjúkdómar. Geðlækningar á sjúkrahúsum. Aðrar stofnanir er sinna geðsjúkum. Sér- stakirhóparmeðgeðsjúkdóma. Þjón- usta við fullorðna með langvinna geð- sjúkdóma. Lög er varða þjónustu við geðsjúka. Réttargeðlækningar. Sérhæfður mannafli sem sinnir geðsjúkum. Frjáls félagasamtök. Aðstandendur. Kennsla og rann- sóknir. Skýrslan er greinilega afar vel unnin og í henni geysilegur fróð- leikur um þessi mál, sem raunar oft eru tekin í víðara samhengi, svo hinn almenni fróðleikur er einnig mjög yfirgripsmikill m.a. má þar finna glöggt yfirlit um hvað gert er, hvað Hlerað í hornum Þau bjuggu öll í sama húsi, afinn og amman, pabbinn og mamman og litlu börnin þeirra og fór vel á með öllum, einkum var kært með yngsta syninum og afanum. Svo dó nú afinn og þegar kistulagning fórfram kom sá litli fram í stofu með sparibaukinn sinn og vildi endilega láta afa hafa hann með sér í kistuna. “Hann afí verður að hafa peninga með sér til að geta keypt sér bjór”, sagði sá litli. helst vantar og svo eru tillögur til úrbóta eftir hvern kafla og þar kennir margra grasa. Sem dæmi má nefna: Tryggja jafnræði geðsjúkra og annarra sjúklinga. Aukið verði vægi geðheil- brigðisfræða í grunnmenntun allra heilbrigðisstétta. Starfshópur verði stofnaður þar sem fulltrúar frá stærstu geðdeildunum og fulltrúi frá Geðhjálp leggi línurnar við að móta og þróa raunhæfa þjónustu fyrir aðstandendur geðsjúkra á Islandi sem verði að fullu komin til framkvæmda árið 2002. Setja þarf skýrar reglur um takmark- anir á notkun gæsluvarðhalds vegna alvarlegra heilsufarslegra afleiðinga þess, o.s.frv. Aðeins er hér drepið á örfá atriði sem ættu að vekja forvitni fólks að fá fleira numið af fræðum þessum. arna er á einum stað býsna altæk- ur fróðleikur um geðheilbrigðis- vandamál í víðri merkingu og í þá smiðju dýrmætt að leita. Mestu skiptir þó að framkvæmd fylgi í kjölfarið enda til lítils að gjöra góðar tillögur um þessi erfiðu og viðkvæmu mál að afar vel athuguðu máli, ef ekki er aðhafst í samræmi við það í fram- haldinu. En sem sagt. Sjón er sögu ríkari og full ástæða til að hvetja fólk til að kynna sér þessa ljósu og yfirgrips- miklu samantekt. Hafi þau sem að komu heila þökk fyrir vandað og vel unnið verk. H.S. Prestur hélt að það væri nú óþarfi, það væri nú ekki mikill bjórtil áhimnum, líklega alls enginn bjór. Þá sagði sá litli: “Ja, ef hann afi færengan bjórá himnum, þá stoppar hann ekki lengi þar”. oooooo Þau bjuggu nálægt hvort öðru, nokkuð afskekkt og hún reyndi allt sem hún gat til að ná athygli hans. Einu sinni sagði hún: “Þú verður að koma strax yfir til mín ef ég breiði hvítt lak á útidyrahurðina. Þá hefur nefnilega liðið yfir mig og ég ligg ósjálfbjarga”. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 41

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.