Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Page 43

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Page 43
Vinur í grennd Isíðasta tölublaði var afar hugþekk og gnpandi þýðing á litlu Ijóði sem kallaðist á íslenskunni: Vinur í grennd. Að betur athuguðu máli þá þótti þýðandanum, Sigurði Jónssyni tannlækni, sem eina viðbótarvísu þyrfti. Hún kemur hér, stendur út af fyrir sig fyrir sínu, en svo er bara að skeyta henni við ljóðið í síðasta blaði svo í samhengi fáist: Sjálfur ef vin þú átt góðan í grennd gleymdu ekki hvað sem á dynur, að albesta sending af himninum send er sannur og einlægur vinur. Sigurður Jónsson tannlæknir. Ryksuguríma Alltaf hlýnar ritstjóra nú um hjartarætur þegar hann fær af því fregnir að Fréttabréfið sé einhvers metið. Sigurður tannlæknir Jónsson hefur oft lagt honum lið, ekki bara sem ritstjóra, heldur og ekki síður sem undirleikari hans og Karvels um árabil. Nú bar svo til síðast að Sig- urður fékk alls ekki Fréttabréfið í hendur s.s. þó átti að vera. í tilefni af því sendi hann þessa ryksugurímu, en nafnið til komið sakir þess að ríma þessi kom Sigurði í hug, er hann var að ryksjúga heima hjá sér. Og með kærri þökk ritstjórans er þessi ríma hér birt: Að fá ekki í hendur Fréttabréf ykkar finnst mér af lakara tagi, því ekkert veit ég annað sem klikkar hjá Örykjabandalagi. SJ. Vonandi reynist þetta rétt, en blaðið er Sigurður búinn að fá. Ingibjörg Þorgeirsdóttir Ingibjörg Þorgeirsdóttir: Tvö ljóð Formálsorð: Hún Ingibjörg Þorgeirsdóttir bjó lengi hér í Hátúni 10 og lagði okkur lið með ljóðum og sögum. Nú dvelur hún nærri æskuslóðum að Barmahlíð í Reykhólasveit. Bókaútgáfa Æskunnar gefur út fyrir jólin bók þessarar miklu heiðurskonu. En hér eru tvö lítil ljóð, jólunum tengd. Aðfangadagskvöld Horfa frá heiði bláu himinsins stjörnur niður, breiðist of byggðir allar blessaður jólafriður. Er sem augnablik hljóðni ymur stundlega glaumsins meðan klukkurnar kalla kveðju eilífa draumsins. Nóttin helga Enn ertu komin hátíðin helgibjarta hopar undan þér myrkrið og dauðaóttinn er stígur þú niður á jörðina sorgum svarta úr sölunum efra, blessaða jólanóttin. Horfa þín barnsaugu inn í hvert einmana hjarta í þeim lítur það von sína og týndu drauma, -finnur sitt upphaf, elskunnar vermandi strauma. Og því er svo undarlegt með þennan gest, sem gisti gamla veröld fyrir mörghundruð árum lítið barn með brosi og mannlegum tárum að enn er þess minnst með gleði og grænum kvisti, geislandi Ijósadýrð í koti og höllum, fagnað og sungið í heimum og himnum öllum hörpurnar stilltar til vegsemdar Jesú Kristi. Ingibjörg Þorgeirsdóttir. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 43

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.