Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
3. TÖLUBLAÐ
12. ÁRGANGUR 1999
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
HELGI SELJAN
Umbrot og útlit:
Fjóla Guðmundsdóttir.
Prentun:
Steindórsprent/
Gutenberg h.f.
Forsíðumynd:
Björn G. Eiríksson
Frá ritstjóra
Að baki er nú hin sæla sumartíð sólskins og birtu, blær haustsins
með fölva sinn og fallandi lauf færist yfir, aðdragandi þess
vetrarveldis skammdegisskugga sem þó á sína tindrandi töfra á
tunglskinsbjörtum kvöldum. Vonandi eru lesendur vel undan sumri
gengnir fram með gnótt sólskinsdaga í sál, viðbúnir
vetrarhríðum myrkra daga í vissu þess samt að vora
muni á ný.
Veturinn er annars tími ærinnar annar, ólokin
verk sumarsins minna óspart á sig, félagsstarf allt
fær dafnað á ný og færir okkur um leið fangið fullt
af nýjum verkefnum, viðfangsefnum sem kalla að
og knýja á um úrlausn sem allra besta.
Baráttumálin eru mörg og knýjandi, þó krafan
sé í raun einföld og skýr um mannsæmandi kjör öllum öryrkjum til
handa. Hið alltumlykjandi góðæri sem gumað er af ætti að auðvelda
það mjög að ná unandi árangri.
An fyrirhafnar fæst ekkert, án baráttu bifast ekkert, hin stöðuga,
vökula varðstaða verður ævinlega að vera til staðar.
Von okkar sú að veturinn megi færa okkur þá ávinninga sem duga
megi til lífvænlegra skilyrða hvers og eins þeirra sem búa við hinn
skarða og skerta hlut í samfélaginu. Megi veturinn verða okkur vænn
til verka góðra.
Helgi Seljan.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra....................................2
Öryrkjabandalag Islands við aldahvörf............3
Við aldahvörf....................................4
Innlitið.........................................5
Hlerað í hornum............5 15 16 183032 34 39
Rætt við Jón H. Sigurðsson.......................6
Þjónustusamningur TR við Hringsjá...............11
Lokaverkefni Valerie Harris.................... 12
Gátur...........................................13
Utdráttur úr niðurstöðum........................14
Nýr staðall fyrir örorkumat.....................16
Með austangjólunni..............................17
Ein lítil limra.................................17
Eigið rím við annarra speki.....................18
Sumarferð Vinjar 1999...........................19
Stríð og friður.................................20
Djáknaþjónusta..................................20
Arsskýrsla Vinjar...............................21
“Nú ert þú staddur..............................22
Veðurhorfur.....................................24
Atvinna með stuðningi ..........................25
Norrænt samstarf um málefni öryrkja.............26
Formleg opnun þjónustuseturs................... 28
Leiðrétting.....................................28
Uthlutun Námssjóðs Sigríðar.....................29
Gjaldskylda öryrkja.............................29
Vilhjálmur kvaddur..............................30
Nefndarálit um notkun geðdeyfðarlyfja...........31
Tölvumiðstöð fatlaðra..........................32
Fjöldi félagsmanna í félögum ÖBÍ...............33
ÍF óskað velfamaðar á tímamótum................34
Gigtlækningastöð G.í. 15 ára...................35
Sólarlagsljóð..................................35
Rit um þroska og hegðunarvanda.................36
Námskeið fyrir ungt fólk.......................38
íbúðalánasjóður - sérþarfalán..................39
Á Jafnréttisdegi...............................40
Klúbburinn Geysir..............................40
Stutt minning úr sveitinni.....................40
Sumarlist - sýning góð.........................41
ÍF í Reykjavík.................................41
Jessé..........................................42
Nýtt tryggingaráð..............................42
Hughrif árstíðanna.............................43
Kyndill friðar.................................43
Sagan um hvíta stafinn.........................43
Urskurðarnefnd ágreiningsmála..................43
Blindrabókasafn Islands........................44
Tölvumiðstöð fatlaðra flytur...................44
Kynning........................................44
Upplýsingar um námskeið........................45
Frá FAAS.......................................45
Fjómm áratugum fagnað..........................46
Tvö ljóð.......................................46
Góði hirðirinn.................................47
Mannréttindaskrifstofa íslands.................47
Sönn vísa eða hvað?............................47
Blindrafélagið 60 ára..........................48
í brennidepli..................................50
2