Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 6

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 6
HETJA ÍHJÓLASTÓl Rœtt við Jón H. Sigurðsson líffrœðing og kennara Gerum við okkur nokkurn tíma grein fyrir högginu sem hittir mænuskadd- aðan mann, sálarlega og líkamlega, og hinum vægðarlausu erfiðleikum sem hann þarf að yfirstíga til að geta fótað sig aftur í lífinu? Trúlega ekki. Samt geta svona slys hent mig og þig hvenær sem er. Oddný Sv. Björgvins Jón H. Hann var Sigurðsson einn af bestu hlaupurum Is- lands, dugmikill bóndi á land- mikillijörð þeg- ar fótunum var kippt undan honum. Segist hafa verið í mjög góðu formi, en eftir slysið og rúm- legu í tvo mánuði hafi líkamanum hrakað mjög eins og engin þjálfun hefði verið fyrir hendi. En hann lét aldrei bugast, trúði á líkams- þjálfun, þekkti hana úr íþróttunum og endurhæfði sig í rúm sex ár! Sálina þjálfaði hann líka, settist á skólabekk og hætti ekki fyrr en líffræðideild Háskólans var að baki. Jón H. Sigurðsson kennir nú Iíffræði við Verslunarskóla íslands. Þjálfar líkamann með því að hjóla af atorku heima og erlendis. Hálft Maraþonhlaup hjólaði hann í rokinu og rigningunni í sumar. Af hverju eru svona menn ekki verð- launaðir? Jón bóndi, eins og vinir hans kalla hann, er hetja í hjólastól. Ofan við Skógræktina blasir það við, brúnt fallegt hús neðst í brekkunni. Öðruvísi fjölbýlishús ef vel er að gáð - gangstéttin með Jón þurfti að ganga upp fjórtán þrep til að komast í líffræðikennslustofu Háskólans og notaði til þess spelkur og staf - þrekvirki fyrir mann sem er lamaður frá handarkrikum. "Endurhæfingin á Reykjalundi skilaði mér því, að ég var fær um að ganga upp stiga", segir Jón. aflíðandi braut, engin trappa inn í húsið. Fleiri hús ættu að vera með svona gott aðgengi. Allir geta lent í slysum og lamast, og menn eldast líka. Innandyra mætir mér lyfta og rúm- góðir gangar. Enginn íburður, en þægilegt aðgengi fyrir fólk sem þarf að sitja í stól með hjólum og ýta sér áfram. Ég er stödd í húsi SEM samtak- anna - á stefnumót við einn íbúann, líffræðikennarann Jón bónda. íbúð hans á annarri hæð sýnist venjuleg tveggja herbergja íbúð, en við nánari athugun má sjá að eldhúsborðið er lægra og gólfrými óvenju gott í stofu og baðherbergi. Ef reynt er að setja sig í spor manns sem þarf sérhannað salerni og hjólabrautir er ljóst að mikinn kjark þarf til að hjóla út í borg sem á töluvert eftir til að skapa vin- samlegt umhverfi fyrir fólk í hjólastól. Jón er útitekinn, sterklegur maður sem hreyfir sig liðlega í stólnum. Líkami hans sýnist í góðri þjálfun, enda ganga þær sögur af Jóni að hann hjóli upp um öll fjöll í stólnum. “Ég var að koma úr hálfu Maraþonhlaupi í gær,” segir hann brosandi. “Ég var búinn að setja mér það áheit að yfir- vinna það, en játa að það var þrekraun í slagviðrinu í gær.” Svona fólk á að verðlauna. Það er ekki síðri þrekraun að beita höndum til að ýta áfram líkama í þungum stól, en bera hann með heilbrigðum fótum. Saga SEM samtakanna Hvernig húsið reis og saga SEM samtakanna er alltof lítið kunn. Jón er félagsmaður og vinnur mikið í hagsmunamálunum. “SEM hópurinn er samtök endurhæfðra mænu- skaddaðra. Frá 1970 hafa um sextíu manns hlotið þannig meiðsl, nokkrir hafa látist, en alltaf bætast nýir í hópinn,” segir Jón. “Nú eru 56 manns í hópnum, einstaklingar sem hafa lent í miklum slysum og hlotið varanlegan mænuskaða. Yfir helmingur lenti í bflslysi. Nokkrir féllu ofan af hús- þökum. Tveir hafa lamast í sundlaug- 6

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.