Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 13

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 13
sjálfs sín herra er mikilvægt fyrir alla. Þess vegna verður stöðugt að vera á varðbergi gagnvart því að fullorðið fólk sem þarfnast umönnunar frá fjöl- skyldu eða heilbrigðisþjónustu tapi ekki hluta af sjálfstæði sínu. Því getur samspil þess að uppkomin böm hafi trú á sjálfræði foreldra sinna annars- vegar og hins vegar ábyrgðartilfinning gagnvart hinum fullorðnu oft valdið togstreitu. Þegar eldra fólk verður veikt og/ eða lendir í erfiðleikum með að framkvæma athafnir daglegs lífs, kall- ar það á meiri aðstoð til þess að mögu- legt sé að fólk geti áfram búið sjálfstætt. Við þessar aðstæður fá uppkomin börn á sérstakan hátt það á tilfinninguna að þau beri ábyrgð á velferð foreldra sinna. Um er að ræða breytt hlutverk barnsins sem getur orðið mjög flókið - bæði fyrir það sjálft og foreldrið. Þetta breytta hlutverk felur m.a. í sér breytingu á siðum og venjum sem hafa þróast á löngum tíma. Bamið fer að finna fyrir hlutverki sem umönnunaraðili gagn- vart foreldri sínu. Við þessar aðstæður er afar mikilvægt fyrir bömin að gera sér grein fyrir því að framkoma og skoðanir þeirra sem veita slrka þjón- ustu hafa áhrif á líðan þeirra sem hennar njóta. Mikilvægt er fyrir börn- in að hafa í huga að skert geta einstakl- ingsins til að framkvæma hlutina eftir sínu höfði þarf ekki að hafa í för með sér að sjálfræði og sjálfstæði hans verði skert. Að hafa stjóm á hlutunum og geta tekið eigin ákvarðanir hefur í för með sér meiri lífsfyllingu. Valerie fjallar um viðfangsefni sitt af mikilli næmni, reynslu og skilningi. Það er óskandi að ofangreindar rann- sóknir Valerie verði til þess í framtíðinni að varpa enn meira ljósi á þarfir þeirra sem hafa lokið lífsstarfi sínu og byggt upp það samfélag sem við njótum í dag. Aldraðir eiga sjálfsagðan rétt á að njóta lífsins. Valerie sendi okkur þetta loka- verkefni sitt í voldugu bókar- formi í þakklætisskyni fyrir góða styrkveitingu á sinni tíð frá Sjóði Odds Ólafssonar. Ánægjulegt er það þegar svo er þakkað fyrir. H.H. GÁTUR Hún Elín Þorbjarnardóttir sendi mér gátur úr safni Jóns Árnasonar, misþungar að sjálfsögðu, en hér eru nokkrar úr safninu. Fyrst vísnagátur: 1. Á fjómm stend ég fótum hér, fangi sný að sveinum, háir og lágir lúta mér, ég lýt þó aldrei neinum. 2. Dýrgrip einn ég fyrir mér fann og fór með hann. Þessi hlutur myndaði mann og mér líkan. 3. Einn er kominn ofan úr Grindaskörðum, afgamall en ungur þó, yfir geysar lönd og sjó. 4. Oft á hrygginn er mér bylt, opnuð til að liggja, ef þú dyggur af mér vilt, uppfræðingu þiggja. 5. Við hlaupum daginn út og inn ég og hann langi bróðir minn frá eitt til tólf, þó ei með hrað. Áttu nú að geta það. 6. Löngum geng ég liggjandi, löngum stend ég hangandi, löngum stend ég liggjandi, löngum geng ég hangandi. 7. Hverjar eru hreinar meyjar hvítfaldaðar, aldrei nema í vindi vaka, og voða gamma stundum blaka? Og svo eru hér þrjár órímaðar: 8. Hvert er það nafn manns sem flokkur manna ber ? 9. Hver kann hlaupa hafs á bárum og yfir þær komast svo ei sig væti? 10. Hverjar eru ávallt á hvítum klæðum á vetrum en dökkum á sumrum ? Glögg vinkona mín réði allar gáturnar án mikillar umhugsunar. Hún sagði þann sem ekki gæti helminginn heldur klénan. Hvað um ykkur ? Svör á bls. 43 FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 13

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.