Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Page 20

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Page 20
Magnús Einarsson rithöfundur: Stríð og friður að er svo margt að gerast í heiminum í dag að hugurinn fer ósjálfrátt að velta þessari yfirskrift fyrir sér. I stríði er menn- ingunni kastað fyrir róða í skiptum fyrir nýja menningu sem vissulega mætti kalla ómenn- ingu. Þá er engin virðing borin fyrir lífinu og einhvers- konar valdabarátta í nafni hugsjóna ríkir alls staðar og fjöiskyldulíf leggst af. Stríð er vont. Það er svo erfitt að skilja þessa þunnu línu milli stríðs og friðar og það þótt jafnvel mörg mannslíf liggi við. Siðfræði stríðs er svo afdráttarlaus: drepa eða deyja, sigra eða tapa. Þá er engin miskunn. Metorð ráðast af krafti hvers og eins til að berjast og því miskunnarlausari sem hver og einn er, því meiri aðdáun og orður. Sagan kennir okkur átakanlega hvernig stríð eyðileggur allt sem okkur finnst heilagt þegar friður ríkir. Við getum séð þetta svo vel á þeim styrjöldum sem eru okkur nálægar í tíma. Frá Víetnam komu bandarískir hermenn, ónýtir andlega til að taka þátt í friðarsamfélagi USA. í stríðinu voru þeir hetjur sem fóru höndum um rándýr og flott vopn og farartæki. Þeim bauðst kannski garðyrkjuvinna í heimaiandinu. Ef hægt er að ímynda sér menningarsjokk þá er það full- komið þegar farið er frá stríði til friðar... eða frá friði til stríðs. tli þýskum hermönnum hafi þótt auðvelt að pynta Gyðinga 1945 en síðan að sækja um vinnu hjá þeim 1946? Hvað hugsuðu saklausar manneskjur á kristalsnóttinni 1938 sem ekki vildu berjast, en voru teknar, pyntaðar og drepnar..? Allir sem geta haldið á vopni eru réttdræpir í stríði og flestir hinna eru óþarfir og mega því missa sig eins og sést best á fjöldamorðum á saklausum bændum í Kosovo. Þegar allt þetta er haft í huga þá er kannski betra að hugsa sig um tvisvar þegar stríð við Júgóslavíu er haft í huga. Evrópa gæti breyst í helvíti á jörð þegar slíkt stríð er hafið. í biblíunni er oft stríðsástand en það er alltaf beðið eftir friðnum í spádómum og sögum biblíunnar. Friður milli austurs og vesturs er lokatakmark Guðs biblíunnar. Þar er t.d. skrifað að djöflinum sé sleppt til að eyðileggja eða englum gefið vald til að taka burt friðinn af jörðinni. Stríð er oftast tilkomið sem reiði Guðs yfir mönnunum sem Guði finnst hegða sér ósæmilega og gleyma Guði. Ljóst er að Guð ætlar einhverntíma að gefa eilífan frið til mannanna, Jesús sagðist t.a.m. vera kominn til að boða náðarríkið. Eitt sæluboðið í fjallræðu Jesú er: Sælir eru friðflytjendur því þeir munu Guðs synir kallaðir verða Kristin trú kennir í raun að stríð sé rangt. Það er ekki gert ráð fyrir stríði í kristinni trú nema þá því stríði sem felst í trúnni á Jesú, gagnvart þeim sem eru á móti trúnni. I biblíunni er skrifað um píslarvotta sem þola útskúfun, pyntingar og dauða. Þetta er sjaldgæft í friði en kviknar af sjálfu sér í stríði. En samt er friður grunn- tónn kristninnar og menningin á að mótast af kærleika sem vissulega þrífst ekki í stríði. s Ikóraninum er skrifað að heilagt stríð múslima, sem endar með hetjudauða í stríði, gefi manni eilífð í vin í eyðimörk með fagrar meyjar til vinstri og hægri. Svo skrítið sem það nú virðist þá lítur út fyrir að friður sé þjáning mörgum trúarbrögðum sem erujafnherskáogMúhameðstrú. Það sýnir yfirburði kristni og Vesturlanda að geta haldið uppi almennilegri menningu að vísu að einhverju leyti á kostnað þriðja heimsins. Þó má benda á að t.d. ríki í Asíu hafa fengið væna sneið af kökunni. Heimsveldi rísa en þau falla líka, það má lesa úr sögunni. Svo allur er varinn góður. Alit ofantalið er í húfi og Sam- einuðu þjóðirnar eru ekki einu sinni spurðar álits þegar Nató ræðst til atlögu þó vissulega liggi í augum uppi að annars staðar séu aðrar skoðanir og jafn réttháar. Það er borðleggjandi að Vesturlönd eru á hálum ís að kalla yfir sig reiði umheimsins sem þó er mikil fyrir. Friðurinn er aldrei of dýru verði keyptur... Það sannakjamorkuvopnin. Magnús Einarsson Djáknaþjónusta Eins og fram kemur í síðasta Fréttabréfi Öryrkjabandalags íslands þá var fyrirhugað að Guðrún Kristín Þórsdóttir djákni, tæki til starfa með haustinu til þjónustu fyrir félagsmenn aðildarfélaga Öryrkjabandalagsins sem tilraun til áramóta. Hún hóf störf um miðjan ágúst s.l. og er við í HátúnilO alla mánudagseftirmiddaga. Hún hefur dreift tilkynningum bæði innanhúss í Hátúni og til aðildarfélaga ÖBÍ. Félagsmenn hafa þó nokkuð leitað til hennar og hún jafnframt leitað fólk uppi og hringt í ýmsa aðila til að minna á þjónustu sína. Hún stendur jafnframt fyrir samverustundum í setustofunni að Hátúni 10 milli kl. 15 og 16 á mánudögum og eru allir velkomnir. Djáknaþjónusta er kristileg þjónusta sem hefur að markmiði: að rjúfa einangrun, að skapa samfélag, að lina þjáningar og að glæða von. Félagsmenn í aðildarfélögum Öryrkjabandalags íslands eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu og aðildarfélögin að fá Guðrúnu til að kynna starf sitt. Magnús Einarsson 20

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.