Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Page 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Page 24
Á Blindravinnustofunni fengu gestir að fylgjast með hvernig burstar eru búnir til. námi og hindrar vissulega í atvinnu- leit. Ragna lauk háskólanámi í janúar sl. en hefur til að mynda ekki enn fengið vinnu þrátt fyrir að geta unnið það sama og sjáandi á hennar sviði. Þórunn Guðnadóttir sjónþjálfi á Sjónstöð sagði að til að blindir og sjónskertir kæmust á almennan vinnumarkað þyrfti sterkan vilja og hugrekki. Hins vegar má ekki gleyma því að oft þegar þarf að aðlaga aðstæð- ur að þörfum hins blinda/sjónskerta kemur það ekki síst til góða öðru starfsfólki s.s. vegna lýsingar og umferlis. Þórunn sagði frá rannsókn sem hún gerði fyrir nokkrum árum á atvinnustöðu 21 einstaklings sem blinduðust á fullorðinsárum og notið höfðu þjálfunar á Sjónstöð. 19 af 21 einstaklingi fundu sig knúna til að skipta um vinnu eftir sjónmissi. 2 héldu sama starfi. Ekki er vitað hver atvinnustaða blindra er í dag og vantar tilfinnanlega rannsóknir. Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir verkefnisstjóri í málefnum fatlaðra hjá Reykjavíkurborg sagði í sínu erindi að í dag væri of flókið fyrir neytendur að sækja þjónustuna og úrræðin væru því miður ótrygg, brotakennd og of lítið sveigjanleg. Stærsta hindrunin í að taka við málum fatlaðra frá ríki er fjárskortur, þ.e. að ríkið er ekki tilbúið til að greiða sveitarfélögunum það sem til þarf að mati sameiginlegs hóps hagsmuna- samtaka og fulltrúa Reykjavíkur sem gert var á sl. ári. Sú hugmyndafræði sem unnið er eftir í dag tengist sjónarmiðum Sam- einuðu þjóðanna “Eitt samfélag fyrir alla”. Þjónustan á að ganga út frá jafn- réttissjónarmiðum og horfið er frá sér- tækum úrræðum. Stefna borgarinnar er að öll þjónusta sé veitt af sama aðila, Félagsþjónustan verði almenn þjónustustofnun við borgarbúa og hverfaskipt eins og heilsugæslan. Að lokum kallaði Aðalbjörg Dísa eftir meira sambandi við neytendur við skipulag þjónustunnar. Sigrún Bessadóttir nemi, félags- maður í Blindrafélaginu setti okkur í samhengi við umheiminn í lok ráðstefnunnar og ræddi jafnframt um hlutverk blindra og sjónskertra í stjórnun sinna mála. Framkomímáli Sigrúnar mikilvægi þess að fatlaðir séu ekki bara með í ráðum innan sinna félagssamtaka heldur líka í stjórnum þeirra stofnana sem þjónusta þá. Ætti það að vera auðsótt þegar fulltrúi Félagsþjónustunnar í Reykjavík hefur óskað eftir virkara samstarfi við neyt- endur. Að mati Sigrúnar sem búið hefur víða erlendis eru aðstæður blindra og sjónskertra Islendinga, sem eru um 1200 -1500 talsins, nokkuð svipaðar og hjá samherjum á Norðurlöndunum, Englandi, Sviss og Spáni nema hvað Islendingar eru aðeins á eftir í tölvu- hjálpartækjum. Hvað viðhorf varðar virðist vera lítill munur. Hins vegar er gríðarlegur munur á aðstæðum fólks eftir því í hvaða heimshluta það býr þar sem afgerandi tengsl eru milli fátæktar og fötlunar. Af þeim 55 milljónum sem eru blindir í heiminum eru 90% í vanþróuðu ríkj- unum, oftast blindir af völdum sjúk- dóma sem hægt er að koma í veg fyrir með tækni og þekkingu nútímans. Aðstæður og þjónusta er að sama skapiléleg. Einungis 10%blindrabúa í iðnríkjum. Geramáráðfyrirmikilli aukningu á sjóndepru eldra fólks vegna vaxandi fjölda þeirra sem ná háum aldri. Sagt hefur verið að augun séu bara gerð til að endast í 80 ár. Hugmynd Sigrúnar er að hér á landi verði þjónustu/þekkingarmið- stöð þar sem öll sértæk þjónusta við blinda og sjónskerta er til staðar og veitt er þjónusta við allt landið. Mikilvægt að efla alþjóðasamstarf þannig að við fylgjumst með öllum nýjungum og einangrumst ekki. Lokaorð Sláandi er að það skuli standa upp úr ráðstefnu um stöðu blindra og sjónskertra íslendinga árið 1999 að það sé fjárskortur sem hamli framgangi augnlækninga og þjónustu við fatlaða. Björk Vilhelmsdóttir Veðurhorfur Hann Sveinn Indriðason gaukaði að mér þessari vísu sem lesendum er leyft að njóta: Á vesturlofti vísir þykjast sjá, að verði býsna hvasst ef ekki lygnir um veðurhorfur vont er nú að spá það verður máske þurrt ef ekki riginr. Sveinn Indriðason. 24

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.