Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 25
ATVINNA MEÐ STUÐNINGI
Föstudaginn 10. september
var haldið málþing um:
Atvinnu með stuðningi,
samstarfsverkefni Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra í Reykjavík og
Reykjanesi og Félagsþjónustu
Akureyrar. Málþingið var haldið í
beinu framhaldi af fjögurra daga
námskeiði fyrir starfsfólk sem
vinnur að atvinnumálum fatlaðra
vítt um landið.
Starfshópur vann
að undirbúningi og
vinnur en hann skipa
þau: Árni Már
Björnsson, Hugrún
Jóhannesdóttir,
Hulda Steingríms-
dóttir, Kristján Jón-
steinsson, Margrét
Magnúsdóttir og
Vilborg Oddsdóttir.
Eins og áður segir
vinnur þessi starfs-
hópur áfram af full-
um krafti að fram-
kvæmd mála. Hér
verður aðeins á fáum
atriðum tæpt sem
fram komu og undir-
rituðum tókst að
blaðfesta án þess að feðra þau eða
mæðra nánar.
Frummælendur voru: Björn
Sigurbjörnsson framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu Reykjavíkur sem
setti málþingið, Gunnar Bragi
Sveinsson aðstoðarmaður ráðherra
sem flutti ávarp og kveðju félags-
málaráðherra; Sigurður R Sig-
mundsson frá Vinnumálastofnun
kynnti viðhorfin þar á bæ; Stein-
grímur J. Sigfússon formaður
Norræna ráðsins um málefni fatl-
aðra greindi frá starfsemi ráðsins;
Joe Guthrie og John Lawton sér-
fræðingar í atvinnumálum fatlaðra
á Bretlandi sögðu frá verkefninu í
framkvæmd en þeir höfðu einmitt
staðið fyrir fræðslu á umræddu
fjögurra daga námskeiði og Kristj-
án Jónsteinsson félagsráðgjafi
kynnti framtíðarsýn í atvinnu með
stuðningi hér á landi. Fulltrúar
atvinnurekenda sögðu frá sinni
reynslu af fötluðum starfsmönnum:
Eyþór Jósepsson frá Ako-Plast og
Kexsmiðjunni og Guðmundur
Grímsson frá íspan voru með fram-
sögur og loks voru ágætir fulltrúar
fatlaðra með gagnstæða reynslu af
vinnumarkaði, þau Lára Ingimund-
ardóttirogOttóB. Arnar. Framlag
Ottós verður birt hér í blaðinu.
Málþingsstjóri var svo Þórgnýr
Dýrfjörð.
Og þá rétt vikið að einstökum
atriðum úr framsögum
manna án frekari tilgreiningar. Þó
atvinna með stuðningi kosti meira
en almenn úrræði þá þarf að hlúa
vel að þeim möguleika enda sannað
að þeim fjármunum er vel varið.
Samstarf samtaka fatlaðra og
vinnuveitenda er nauðsynlegt til að
koma málum í réttan farveg. Minnt
var á það hald varðandi atvinnuleit
sem bæði er í lögunum um málefni
fatlaðra og reglugerðum þ.a.l. og þá
til umhugsunar um leið hvað verður
þegar þau lög hafa verið felld brott.
Þar þarf skýrari og eindregnari
ákvæði en nú eru í lögum um
vinnumarkaðsgerðir og fram-
kvæmdin kallar á viðunandi fjár-
magn. Atvinna fatlaðra þarf að vera
hagstæð fyrir alla: fatlaða, vinnu-
veitendur, samfélagið í heild.
Fatlaðir vilja vinna, þar þarf að
huga að öllum leiðum, atvinna með
stuðningi ein leiðanna sem skilað
hefur ágætum árangri þar sem hún
hefur verið reynd. Atvinnuleitina í
dag skortir fjármagn og mannafla,
myndi skila sér margfalt til baka.
Það þarf oft að laga aðstæður að
fötluðum í stað þess að ætla fötl-
uðum ævinlega að laga sig að
aðstæðum.
Nýjar reglur um örorkumat auð-
velda ýmsum atvinnuþátttöku.
Reynsla vinnu-
veitenda er góð:
betri mórall á
vinnustað, fatlaðir
mæta alltaf, vinna
vel og af sam-
viskusemi, vinnu-
gleðin smitar út frá
sér, viljinn til að
taka fatlaða í vinnu
skiptir mestu, það
þarf aðeins vand-
aðan undirbúning.
Fötluðum þykir
dýrmætt að hafa
ákveðinn og örugg-
an bakstuðning,
geta leitað til ein-
hvers stuðnings-
aðila eða fengið
hann á staðinn. I lokin fóru svo
fram fjörugar pallborðsumræður
þar sem margt bar á góma. Það var
einkar ánægjulegt fyrir okkur í
Öryrkjabandalagi Islands að mega
leggja námskeiðinu og um leið
málþinginu nokkurt lið en forvitni-
legt að fylgjast með frekari þróun
þessarar nýju leiðar.
Lokaorðin eru svo frá henni
Láru Ingimundardóttur starfs-
manni Hagkaupa í lauslegri endur-
sögn ritstjóra: Það er gaman að
vinna, það er gaman að lifa. Vinnan
gengur oftast vel, erfiðast er þegar
einhver er að stríða mér. Eg ætla
ekki að vinna í Hagkaupum að
eilífu, mig langar að fá mér vinnu
á leikskóla. Eg á vísan stuðning frá
svæðisskrifstofunni og það er mikið
öryggi í því, sagði Lára. Mætti hér
hafa amen eftir efninu.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
25