Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Síða 33
Fjöldi félagsmanna
í félögum ÖBÍ
Oft erum við hér að því spurð hversu margir
félagar séu nú í öllum 27 aðildarfélögum
Öryrkjabandalagsins. Við höfum oftlega
miðað við útsendingar Fréttabréfs ÖBÍ en það fer til
á átjánda þúsund félaga. En þar kemur heldur betur
strik í reikninginn, því ófáir eru þeir sem eru í tveim
eða fleiri aðildarfélögum og veit ritstjóri það gleggst
dæmi um sjálfan sig sem er í 5 félögum - aðeins.
Guðríður Ólafsdóttir félagsmálafulltrúi okkar tók sig
til í júnímánuði sl. af vissu, brýnu tilefni og hafði
samband við öll félögin og fékk uppgefna félagatölu
hvers um sig eins og hún var þá.
Samtalan reyndist allnokkru hærri en við hefðum
haldið eða alls 22019 manns. Okkur þótti rétt og skylt
að halda þessum tölum beint frá félögunum til haga
og birta þær hér.
Um leið bendum við á það mikla afl sem í svo
tjölmennum hópi býr.
En hér kemur svo félagatalan eins og Guðríði var
gefin upp á vordögum:
Aðildarfélag Fjöldi félaga
Alnæmissamtökin 350
Blindrafélagið 304
Blindravinafélagið 75
Daufblindrafélagið 46
Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga 250
Félag heymarlausra 130
Félag nýrnasjúkra 160
Foreldra og styrktarfélag heyrnardaufra 430
Foreldrafélag misþroska barna 518
Geðhjálp 509
Geðvemdarfélagið 370
Gigtarfélagið 3774
Fleyrnarhjálp 260
Landssamtök áhugafólks um flogaveiki 600
Málbjörg 50
MG félagið 51
MND félagið 110
MS félagið 580
Parkinsonsamtökin 320
Samtök sykursjúkra 700
Samb. ísl.berkla- og brjóstholssjúklinga 6700
Samtök psoriasis- og exemsjúklinga 1387
Styrkþegar Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur.
Sjálfsbjörg landssamb.fatlaðra 2803
Styrktarfélag lam.og fatlaðra 209
Styrktarfélag vangefinna 953
Tourette samtökin 130
Umsjónarfélag einhverfra 250
Samtals: 22019
Eins og menn sjá af þessari fróðlegu upptalningu
er félagafjöldinn afar misjafn. Svo farið sé fljótt
yfir sögu þá eru 4 félög með undir 100 félaga hvert;
milli 100 og 200 félagar eru í4 félögum; milli200og
300 félagar eru í 4 félögum; milli 300 og 400 félagar
eru í 4 félögum; milli 400 og 500 er eitt félag; milli
500 og 600 félagar eru í 4 félögum; 700 eru í einu
félagi; milli 900 og 1000 í einu félagi og þá em það 4
félög sem upp fyrir 1000 fara, eitt með 1387, annað
með 2803, þriðja með 3774 og það fjórða og
langstærsta með 6700 félaga.
Eins og menn munu vita er það svo í lögum
Öryrkjabandalagsins að öll eiga félögin jafngilda aðild
að bandalaginu án tillits til félagafjölda, eiga hvert um
sig 3 fulltrúa á aðalfundi og hvert sinn mann í
aðalstjórn bandalagsins. En til fróðleiks eru þessar
tölur fram settar og eins og áður segir bera þær vitni
því mikla afli sem að baki þúsundunum býr.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
33