Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 36

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 36
Garðar Sverrisson • • / varaformaður OBI: RIT UM ÞROSKA OG HEGÐUNARVANDA BARNA Nýlega kom út á vegum bókaforlagsins Unu ritið Hegðun og þroski eftir þau Matthías Kristiansen og Málfríði Lorange. Hér er á ferð athyglisvert rit þar sem fjallað er á upplýsandi og aðgengilegan hátt um þroskaraskanir hjá börnum. Einkum er fjallað um sex mismunandi þroskaraskanir sem valdið hafa börnum alvarlegum erfiðleikum og uppalendum reynst erfitt að átta sig á. Þessar raskanir eru athyglisbrestur með ofvirkni, Tourette- heilkenni, þráhyggja og árátta, sértækir námsörðugleikar og svokallaðir óyrtir námsörðugleikar. I viðauka er síðan að finna það sem höfundar kalla ráðabanka, en þar er um að ræða fjölmargar ábendingar og margvísleg ráð sem beita má til að fást við og fyrirbyggja vandamál hjá þeim börnum sem eiga við framangreindar þroskaraskanir að stríða. Auk þess gagns sem foreldrar hafa augljóslega af riti þessu er það ekki síður ætlað kennurum, leikskólakennurum og öðru fagfólki sem starfar að uppeldismálum. Heildstætt rit um þessi efni hefur ekki áður verið tiltækt á íslensku og þarf þ ví ekki að fara mörgum orðum um hversu mjög er bætt úr brýnni þörf með framtaki þeirra Matthíasar og Málfríðar. Líffræðilegar orsakir I riti sínu benda höfundar á að oft geti verið erfitt að átta sig á eðli vandkvæða þeirra barna sem hér um ræðir, bæði fyrir foreldra og aðra sem vinna með þeim. Námsstaða þeirra sé oft slök þrátt fyrir að þau séu með nær eðlilega eða jafnvel mjög góða greind. Þau sýni gjarnan af sér hegðun sem sé illskiljanleg umhverfinu og valdi þeim oftar en ekki alvarlegum erfiðleikum í félagslegri aðlögun. Brýnt sé að börnin fái viðeigandi meðferð sem allra fyrst. Þá vekja höfundar athygli á að orsakir þeirra raskana sem hér um ræðir séu alltaf líffræðilegar og hvergi hægt að heimfæra þær upp á lélegt uppeldi né kennslu. Einn athyglisverðasti þáttur ritsins er ekki aðeins lýsing höfunda á hinum mismunandi röskunum heldur einnig og kannski enn frekar lýsing þeirra á því hvernig þær gjarnan skarast, oft þannig að fullnægjandi greining getur reynst vandasöm. Þegar um tengd vandamál er að ræða er talað um fylgiraskanir, en sem dæmi um þær má nefna flogaveiki, ýmiss konar kæki, þráhyggju-áráttu, hegðunartruflanir og höfuðverk. Afleiðingin verður sú að fjöldi barna með þroskaraskanir uppfyllir mörg greiningarskilyrði samtímis. Þannig getur sama bamið átt við að glíma athyglisbrest með ofvirkni, Tourette-heilkenni og hegðunarröskun. Athyglisbrestur með ofvirkni Fyrsti kafli ritsins er helgaður athyglisbresti með ofvirkni (AMO), en þar er í stuttu máli um að ræða viðvar- andi hegðunarröskun af taugalífræðilegum toga sem fram kemur hjá börnum fyrir sjö ára aldur og lýsir sér einkum í athyglisbresti, hvatvísi og mikilli hreyfivirkni. Tekið er fram að röskun þessa sé ekki hægt að rekja til annarra lík- amlegra, andlegra eða tilfinningalegra ástæðna. Höfundar gera grein fyrir hverju einkenni fyrir sig og fjalla síðan um tíðni, orsakir, greiningu, helstu greiningarviðmið, fylgiraskanir og meðferð. Þá fjalla þeir um þjálfun foreldra í að hafa áhrif á hegðun, viðeigandi kennsluskipulag, einstaklings- og fjölskylduráðgjöf, lyfjameðferð, framvindu og horfur. Tourette Næst er afar fróðleg umfjöllun um hin svokölluðu Tourette-heilkenni, sem einkennast af margþættum hreyfikækjum (ósjálfráðum vöðvahreyfingum) ásamt einum eða fleiri hljóðkækjum (samhengislausum hljóðum eða orðum). Hér er um taugalíffræðilega röskun á heila- starfsemi að ræða, röskun sem höfundar segja að sé nokkuð algeng. Margir þeirra sem við Tourette-heilkenni eiga að stríða eru mjög hvatvísir, auk þess sem þeir stríða við athyglisbrest og hreyfióróleika. Hjá sumum má einnig sjá einkenni þráhyggju og áráttu, auk þess sem hegðunar- vandamál eru ekki óalgeng. Einkennum þessum var fyrst lýst árið 1825, en það var ekki fyrr en árið 1885 að franski taugalæknirinn George Giles de la Tourette lýsti alls níu einstaklingum með umrædd einkenni. Þótt sjálfur hafi hann skilgreint einkennin sem taugasjúkdóm var síðar farið að líta á þetta sem hreint geðrænt vandamál. Nú á tímum er hins vegar litið á Tourette-heilkenni sem taugalíffræðilega röskun. Enda þótt erlendum rannsakendum beri ekki saman um tíðni Tourette segja höfundar ritsins að margt bendi til að hún sé miklu hærri en áður hafi verið talið. Talið hafi verið að þetta heilkenni (syndrome) væri afar sjaldgæft, en nú Málfríður Lorange Matthías Kristiansen Garðar Sverrisson 36

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.