Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Blaðsíða 37

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Blaðsíða 37
sé álitið að einn af hverjum 2500 sé með alvarleg ein- kenni og að þrefalt fleiri einstaklingar séu með vægari einkenni, hreyfikæki og einhver einkenni þráhyggju- áráttu. Því megi reikna með að rúmlega 100 íslendingar séu með alvarleg einkenni, en 300 til 400 með vægari ein- kenni. Fram kemur að ein- kennin eru þrisvar til fjórum sinnum algengari meðal drengja en stúlkna og algeng- ast að þau komi fram um sex eða sjö ára aldrur. I þriðja kafla er fjallað um þráhyggjuáráttu, einkenni sem gjarnan er fylgiröskun annarra einkenna. Fjallað er um tíðni, orsakir, greiningu, helstu einkenni, áhrif á dag- legt líf, fylgiraskanir, með- ferð, framvindu og horfur. Misþroski I fjórða kafla taka höf- undar á því sem kallað hefur verið misþroski, en það er íslenskun á hugtakinu DAMP (Deficits in Attention, Motor control and Perception). í ritinu kemur fram að einstaklingum með DAMP er oft skipt í tvo hópa eftir því hve alvarlegt vandamálið er. Þeir sem með alvarlegustu einkennin eru glíma við vanda á sérhverju eftirfarandi sviða: 1. athygli og einbeitingu 2. grófhreyfingum 3. fínhreyfingum 4. skynjun 5. máli og tali Einstaklingar með vægari einkenni stn'ða alltaf við vanda á sviði athygli og einbeitingar og honum fylgja örðugleikar á einu til þrem hinna sviðanna. Auk örðugleika í lestri og skrift, sem þrjú af hverjum fjórum bömum með DAMP glíma við, hefur rannsókn sýnt að tvö af hverjum þrem glíma við geðrænar raskanir á borð við þunglyndi, félagslega örðugleika og eru með væg einkenni einhverfu. Höfundar fjalla síðan um helstu einkenni þeirra þroskatruflana sem hér um ræðir, þ.e. á hreyfisviði, erfiðleika í skynúrvinnslu, erfiðleika á ntálsviði, félagsþroska og athyglisbrest. í lok kaflans kemur m.a. fram að eðlilegast sé að líta á hugtakið DAMP eða misþroska sem regnhlífarhugtak á borð við orðið “hreyfihamlaður.” Þá segir að enda þótt orðið misþroski dugi enn um sinn sem heiti Foreldrafélags misþroska barna fari brátt að koma tími til að fella orðið “foreldra-” burt, enda fjölgi stöðugt þeim einstaklingum sem greindir hafa verið með þessi þroskafrávik og eru nú orðnir fullorðnir. Sértækir námsörðugleikar Samkvæmt upplýsingum höfunda má telja að u.þ.b. 4- 5% barna í grunnskólum eigi við svokallaða sértæka námsörðugleika að stríða. Þegar talað er um sértæka námsörðugleika er átt við ósamræmi í námsárangri í eða á milli námsgreina miðað við aldurbamsins og greind- arþroska, þ.e. barnið sýnir mun lakari námsárangur en búast má við út frá almennum vitsmunaþroska þess og frammistaða er mun lakari en frammistaða jafnaldranna. Námsörðugleikar þessir geta verið af margvíslegum toga og fjalla höfundar stuttlega um þá helstu, gera grein fyrir einkennum og helstu orsök- um. Fjalla þeir um lestrar- örðugleika (dyslexia), staf- setningarörðugleika, skrift- arörðugleika, stærðfræði- örðugleika (dyskalkuli) og svokallaða blandaða sértæka námsörðugleika. I lokin fjalla þeir um hvort og þá hvernig sjá megi fyrir sértæka náms- örðugleika áður en börn hefja skólanám. Oyrtir námsörðugleikar Sjötti og síðasti kafli þessarar gagnmerku handbókar tjallar um það sem kallaðir eru óyrtir námsörðugleikar eða N VLD (Non-Verbal Learning Difficulties). Um er að ræða raskanir sem lýsa sér fyrst og fremst í örðugleikum við að vinna úr og túlka flóknar sjónrænar upplýsingar ásamt vanda í hreyfi- og rúmskynjun. Þessir örðugleikar eru í raun sérstakur undirflokkur námsörðugleika sem birtist einkum í erfiðleikum við að setja sig í spor annarra. Þegar um óyrta námsörðugleika er að ræða getur greind verið í meðallagi eða jafnvel þar yfir, en verkleg (óyrt) greind mælist oft mun lakari en sú sem snýr að máli (yrt). Veik- leikar koma fram í þroskamynstri, t.d. snertiskyni, skipu- lagi og samhæfingu hreyfinga, rúmskynjun og áttun, og veldur þetta m.a. erfiðleikum í stærðfræði. Börn með óyrta námsörðugleika eiga að sögn höfunda ekki auðvelt með að lesa í óyrt skilaboð, s.s. svipbrigði fólks, látbragð og blæbrigði radda. Styrkleiki þeirra liggurhins vegará mál- sviðinu og eru þau oft ágætlega fær í lestri og stafsetningu. Meðal athyglisverðra upplýsinga í þessum kafla er það sem fram kemur um orsakir óyrtra námsörðugleika. Um þær vitna höfundar til bókarinnar Syndrome of Non-Ver- bal Learning Disabilities (1995) eftir Byron Rourke þar sem orsökin er sögð vera truflun í þroska hægra heilahvels og taugaslíðra í þeirn tengslabrautum sem eiga að samhæfa heilastarfsemina. En afleiðing þessa verði sú að taugaboðin gangi hægar en ella eða breytist. Þetta sé vegna þess að hægra heilahvel sé sérhæft til að vinna úr margþættum upplýsingum og sérstaklega að “lesa” tjáningu sem ekki er sett fram í orðum. G.Sv. Málfríður Lorange Matthías Kristiansen Forsíða bókarinnar. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 37

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.