Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Qupperneq 40

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Qupperneq 40
Viðar Hörgdal: s A Jafnréttisdegi Formáli: Þetta ljóð er upprifjun ájafnréttisgöngu fatlaðra í Reykjavík 1978 sem endaði á Kjarvalsstöðum, þangað sem forsvarsmenn þjóðarinnar voru boðaðir til þess að kynna þeim kröfur fatlaðs fólks um jafnrétti. Sum ykkar hafa séð grein eftir mig í Morgunblaðinu þriðjudaginn 7. september s.l. þar sem ég tók fyrir bflastæðismál fatlaðra, þar var þetta ljóð eftir mig, en nú með aðeins breyttu orðalagi. A Jafnréttisdegi. (Við lag: Hvað er svo glatt) Við mætumst hér á haustsins milda degi og minnum á þann rétt sem okkur ber, að þjóðfélagið hömlum víki úr vegi svo velferð þegna jöfn sé hvar sem er. í skólamálum margt skal betrumbæta brautir leggja, handrið traust má fá, þó hreyfihömlun margur verði að mæta menntaveginn hugur leitar á. Fólki reynist erfitt yfirferðar upp af götu gangstígum að ná miklar brúnir margar illa gerðar, mein er þeim sem hjólastólinn á. Þér ráðamenn nú sýnið vilja í verki og vandið betur húsasmíð og lag, því styrk við stöndum undir einu merki og allirvilja bættan þjóðarhag. Viðar Hörgdal. Klúbburinn Geysir Isíðasta tölublaði Fréttabréfs Geð- hjálpar er greint frá nýjustu fréttum af Klúbbnum Geysi, sem áður hefur verið hér vel kynntur, en tilgangur hans að greiða sem best fyrir og tryggja atvinnuþátttöku geðfatlaðra. Þá segir orðrétt í samantekt eins félaganna, Olafs Jakobssonar, “að starfsemin byggir á því að klúbburinn gerir samning við vinnuveitendur og tryggir honum 100% mætingu “ein- hvers” starfsmanns”. En fréttirnar eru af húsnæðismál- um, þar sem klúbburinn mun fá til af- nota 100 fm af húsnæði Reykjavíkur- borgar að Hafnarstræti 16 og deilir þar húsi með Sambandi íslenskra mynd- listarmanna. Eru þetta hin bestu tíðindi en meðan beðið er varanlegs húsnæðis hefur klúbburinn fengið inni í húsnæði Hússjóðs Öryrkjabanda- lagsins, Hátúni 10. Meginverkefni þar er að setja félaga í vinnuhópa. I lokin bendir Ólafur á það mark- mið Geysis að losa fólk úr vítahring innlagna á sjúkrastofnanir og útskrifta sem enda síðan með annarri innlögn. Fyrirsögnin í Fréttabréfi Geð- hjálpar er enda um áfangasigur og Klúbbnum Geysi óskað til hamingju með húsnæðið til frambúðar og fram- tíðarstarfið um leið. Framkvæmdastjóri Geysis er Anna Valdimarsdóttir en stjómarformaður nú er Guðrún Hannesdóttir. H.S. Hannes Helgason fy. form. ÖBÍ: Stutt minning úr sveitinni Formáli: I tilefni umræðu um prédikunarstól og ræðupúlt í þjóðarsál á Rás 2 í maí 1999 sendi ég þér þessa minn- ingu úr sveitinni til gamans. Hún er frá árunum 1940 og 1941. Ég var ellefu og tólf ára gamall í sveit við sjávar- síðuna. Bærinn var gamaldags, þriggja bursta, með keytutunnu á stéttinni við bæjar- dyrnar. Hellt var úr hlandkoppunum í tunnuna á hverjum morgni. Hlandið var notað til ullarþvotta og þá kölluð keyta. Allt var gamaldags - fjósið með torfþaki og stórar steinhellur í flómum með tilheyrandi skordýrum. Flórinn þjónaði einnig hlutverki kamars. Fólkið var gamaldags, túnblettur- inn var sleginn með orfi og ljá og ein- göngu var kynt með mó í lítill eldavél í eldhúsi. Híbýlin voru baðstofa með fjórum rúmum og einu rúmi í eld- húsinu. Vatn var sótt í skjólum á grind í brunn og læk, skammt frá bænum. Brunnvatnið var ekki drykkjarhæft. arna kynntist ég lúsinni, enda alltaf verið hraustur, en trú manna á þeim bæ var sú, að maður væri ekki hraustur ef ekki lifði á manni lús. Móðir mín aflúsaði mig strax við heimkomu á haustin. Elsti sonur hjónanna var enn í föðurhúsum enda ekta piparsveinn. Hann hafði á yngri árum verið til sjós einhvers staðar á Vestfjörðum, í afskekktu þorpi þar. Tilefni þessarar skrifa minna er það sem hann kenndi mér um forneskjulegt tal þeirra Vest- firðinga fyrr á öldum og sel ég það ekki dýrara en ég keypti það og bið ég forláts ef það særir einhvern. Einni setningu gleymi ég ekki sem hann kenndi mér, en hún hljóðar svo: Strákur, skrepptu niður að æginu og gaddaðu bíslaginu meðan hljóðabelg- urinn er í orðapontunni. Með kærri kveðju til lesenda. 40

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.