Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Qupperneq 41

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Qupperneq 41
Sumarlist - sýning góð Iðkendur í íþróttum og leikjum. s Iþróttafélag fatlaðra í Reykjavík Sumarlist nefndist sýning sem haldin var dagana 21.-25.júní sl. Þetta var samsýning listamanna á Geðsviði Sjúkrahúss Reykjavíkur, opin í tvo tíma á dag sýningardagana á Hvítabandinu við Skólavörðustíg 37. Ritstjóri var svo lánsamur að fá boðsmiða á sýninguna opnunardag- inn og gaf sér góðan tíma til að líta á hin ágætu myndverk er á veggjum voru. Vissulega guldu myndefnin nokkuð þess litla rýmis sem þau voru sýnd í, en sannarlega naut ég þess að ganga þarna um sali og njóta ágætra listaverka sýnendanna. Það var Iðjuþjálfun Geðsviðs S.R. sem bauð til þessarar sýningar og verkin lofuðu vissulega meist- arana og þá sem þarna höfðu for- göngu og stýrðu iðkun á einhvern veg. Alls voru myndverkin 45 og sýn- endur alls 10 og áttu allir hið besta erindi á sýninguna. Sýnendur voru: Bjöm Gústafsson, Gígja Thorodd- sen, Guðný Svava Strandberg, Hjalti Asgeirsson, Jónas Guðni Alfreðs- son, Kristinn Þór Elíasson, Kristinn Jóhannsson, Magnús Arsælsson, Olafur Oddsson og Sveinn Eggerts- son. Auðséð var hin mikla alúð sem allir höfðu lagt við myndverkin og þarna voru allt yfir í hin fegurstu listaverk. Þó tæpast sé réttmætt að taka einhverja út úr þá heilluðu ritstjóra mest myndir þeirra Guðnýjar Svövu Strandberg, Hjalta Asgeirssonar og Kristins Þórs Elíassonar. A boðstólum voru ljómandi góð- ar veitingar sem gestir og sýnendur gæddu sér á. Aðstandendum öllum var sannur sómi að sýningunni og opnunar- daginn var margt góðra gesta sem luku lofsorði á þetta framúrskarandi framtak sem og árangur allra lista- mannanna. Heill ykkur. Haldið áfram á sömu braut. Þið eigið erindi við umhverfið og lífið. H.S. Hinn 30. maí sl. var aldarfjórð- ungur liðinn frá stofnun íþrótta- félags fatlaðra í Reykjavík. Félagið mun hafa haldið afmælið hátíðlegt með hófi góðu fyrir félaga og vel- unnara. I tilefni afmælisins gaf IFR út veglegt afmælisrit er ber nafnið Straumhvörf. Þessa fróðlega og fallega rits skal hér stuttlega getið. Formaðurinn, Júlíus Arnarsson, ritar forystugrein, ræðir ótvírætt gildi íþróttaiðkunar, minnir á afbragðsgóð afrek íþróttafólks á alþjóðlegum vett- vangi. Hann getur einnig þess glæsi- lega afreks félagsins að byggja hið myndarlega íþróttahús að Hátúni 14 og minnir þar á þátt upphafsmannsins, Arnórs Péturssonar, fyrsta formanns ÍFR. Þá eru skemmtilega fróðlegar greinar um hinar ýmsu íþróttagreinar þar sem fatlaðir íþróttamenn hafa gjört garðinn frægan: bogfimi, boccia, borðtennis, frjálsar íþróttir og lyftingar. Frumherjanna, Arnórs Péturssonar og Sigurðar Magnússonar er að góðu getið, en til gamans bætt við að 17.júní sl. fékk Sigurður Magnússon stórridd- arakrossinn fyrir störf að íþróttum, einkum íþróttum fatlaðra. Afmæliskveðjur eru frá Sjálfs- björg, landssambandi fatlaðra, íþróttasambandi fatlaðra, íþrótta- bandalagi Reykjavíkur og íþrótta- sambandi Islands. Skemmtilegt er að lesa fyrstu fundargerðina frá stofnfundinum skýrlega skráða af Guðmundi Löve. Sérstakar greinar eru um Elsu Stefánsdóttur borðtenniskonu, Kristínu Rós Hákonardóttur sund- konu, og Ólaf Eiríksson sundmann. Njótum útiverunnar saman fjallar um skipulegar hópferðir á skíði og skauta. Fyrsti þjálfari ÍFR, Júlíus Amarsson fær sína umfjöllun í viðtali, sagt er frá upphafi sundkennslu fatl- aðra og í lokin segir Júlíus Arnarsson svo frá íþróttaskóla félagsins fyrir börn sem nefnist: íþróttir og leikir. Ritstjóri getur ekki stillt sig um að taka til gamans úr viðtalinu góða við Ólaf Eiríksson það sem hann kallar neyðarlegasta atvikið: “Þegar ég missti skýluna niður á hné á einhverju móti í Sundhöllinni. Ég hafði gleymt að binda skýluna, en sem betur fer var ég að synda bringusund, svo ég gat hysjað upp um mig skýluna í kafsundstakinu”. Straumhvörf er rit skemmtilegt aflestrar og felur í sér fróðleik góðan. Öryrkjabandalag íslands sendir félaginu hlýjar heillaóskir. Við höfum hrifist af hinum glæstu afrekum ykkar og í aðdáun fylgst með hinni víðtæku þátttöku ykkar í íþróttum. Megið þið áfram halda merki góðra íþrótta hátt á lofti því eitt er víst: Góð íþrótt er gulli betri. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 41

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.