Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2000, Síða 42
Utskrift úr Hringsjá
Það er jafnan einhver
hátíðlegasta stund
ársins og sú ánægju-
legasta um leið þegar
Hringsjá - starfsþjálfun
fatlaðra er með útskrift
nemenda sinna.
Að þessu sinni var út-
skriftin síðla á aðventu eða
laugardaginn 18. des. á
liðnu ári. Þar var sann-
arlega setinn bekkurinn og
mátti glöggt greina gleði-
bros á margri brá.
Forstöðumaður Hring-
sjár, Guðrún Hannesdóttir,
flutti í upphafi útskriftar-
ræðu snjalla, þrungna
þeirri hlýju alúð sem þarna
er að öllu lögð. Hún fagn-
aði lokum haustannar í að-
draganda helgrar hátíðar,
en hér væri um að ræða
uppskeruhátíð á miðjum
vetri, í myrki'i skammdeg-
isins.
Nú væri sextándi hópur-
inn að útskrifast að loknu
þriggja anna nárni, fimmti
hópurinn frá Hringsjá.
Hún nefndi aukningu
húsrýmis, allt húsnæði
Hringsjár nú nýtt fyrir
starfsþjálfun fatlaðra,
Tölvumiðstöð fatlaðra flutt
í Hátún 1 Oa 9.hæð, nú væru
enda fleiri nemendur en
áður og myndi enn fjölga,
þrjár annir nú í fyrsta sinn í
senn, kennurum fjölgað
einnig og eins og áður afar
vel til tekist með mönnun
alla.
Guðrún boðaði nýjar
tölvur í gagnið teknar á
nýju ári og myndlist hefði
verið á stundaskrá í fyrsta
sinn og mátti greina hinn
góða árangur á veggjum
Hringsjár, hin listfengustu
verk.
Eins væri Fréttaþjálfinn á
sínum stað og hans getið
hér glöggt í blaðinu.
Hún nefndi ómetanlegt
starf Ingibjargar Ólafs-
dóttur á skrifstofu og í mót-
töku, en Ingibjörg áður
nemandi Hringsjár. Guð-
rún gat þessu næst um
þjónustusamning við
Hringsjá af hálfu Trygg-
ingastofnunar ríkisins sem
þýddi ný sóknarfæri og
fjölgun nemenda einnig.
Þá sagði Guðrún frá
nefndarstarfi varðandi
deild Hringsjár á Akureyri
sem vonir stæðu til að
kæmist i gagnið á haust-
dögum næsta árs.
r
Iundirbúningi er að setja
ný lög um Hringsjá -
starfsþjálfun fatlaðra,
nefnd í það sett af hálfu fé-
lagsmálaráðuneytis og
Guðrún þar fulltrúi
Öryrkjabandalags íslands,
en að þess tilhlutan var
lagasetningu ýtt úr vör.
Guðrún minnti þessu
næst á aðild Hringsjár að
hjálpartækjasýningunni:
Liðsinni 11. - 13. febrúar.
Þá lét Guðrún hugann
reika til upphafsins, en
tölvutæknin í raun hvati að
stofnun Hringsjár. Bless-
unarlega lýsti enn logi hins
fyrsta jólakertis, einkennið
alla tíð markast af góðvild,
kærleik, gagnkvæmu
trausti og virðingu með
grundvallaratriði mann-
legra samskipta í öndvegi.
Afhenti síðan nemum 1.
og 2. annar sín skírteini,
kvað alla hafa lagt sig
fram, unnið sína persónu-
legu sigra. Nú kæmi svo
nýr hópur til náms á nýju
ári. Ávarpaði svo út-
skriftaraðal sérstaklega,
sundurleitur en skemmti-
legur hópur sem sýnt hefði
jákvæðni, dugnað og
vinnusemi. Áfram ættu
þau Hringsjá að og þeim
fylgdu óskir um allt hið
besta og veganesti vænt á
veg fram. Eitt væri alveg
víst, auk visku og þroska
hefði sjálfstyrking sann-
arlega verið í fyrirrúmi.
Þau voru 13 sem nú út-
skrifuðust og afhenti Guð-
rún þeim skírteini sín.
r
Olöf Ríkarðsdóttir í
stjórn Hringsjár færði
síðan útskriftarnemum
öllum ljóðabók góða með
kærri kveðju frá Hringsjá.
Þá talaði Sverrir Daðason
fyrir hönd útskriftaraðals
og mæltist mjög vel.
Honum þótti vel hæfa
latneska orðtakið víð-
kunna: Veni - vidi - vici,
ég kom, sá og sigraði.
Skemmtileg hefði sam-
veran reynst, vitnaði síðan í
gamla samlíkingu um
öskrandi ljón og jarmandi
sauð og kvað ekki gott að
vera hinnjarmandi sauður.
Hann kvað fortíðina útkrot-
aða alls kyns krumsprangi
en framtíðin sem óskrifað
blað sem þeim bæri að rita
sem best.
Flutti svo hið ágætasta
ljóð, frumort, en annað ljóð
hans birt hér í blaðinu.
Nanna Þórisdóttir vitnaði
í hin fleygu orð biblíunnar
um trú, von og kærleika en
þeirra væri kærleikurinn
rnestur. Kvaddi svo kenn-
arana 12 - postulana pmðu
með gjöf sem yljuð var ein-
lægri þökk frá útskriftar-
aðli. Einnig gaf aðallinn
peningakassa til að nota í
sj oppurekstrinum.
Guðrún Hannesdóttir
kvaddi svo Margréti Mar-
geirsdóttur nokkrum vel
völdum orðum, en Margrét
verið stjórnarformaður
Starfsþjálfunar fatlaðra allt
frá upphafi, en lætur nú af
því farsæla og árangursríka
starfi.
Guðrún sagði Margréti
hinn tryggasta og dyggasta
baráttumann fyrir starf-
seminni alla tíð, lagt henni
ómælt lið, vináttu og hvers
konar stuðning.
Garðar Sverrisson for-
maður Öryrkjabanda-
lags íslands flutti kveðjur
og farsældaróskir banda-
lagsins. Færði nemendum
sérstakar þakkir fyrir að
efla sitt sjálf, skapa öðrum
fordæmi um leið. Hringsjá
væri eitt mikilvægasta
verkefnið sem ÖBÍ sinnti.
Bandalagið stæði í þakkar-
skuld við hið góða starf,
við nemendurna, áræði
þeirra sem árangur. Hann
færði Margréti Margeirs-
dóttur alúðarþakkir fyrir
sitt dýrmæta framlag.
Færði öðrum stjórnar-
mönnum einnig þakkir,
þeim Ólafi H. Sigurjóns-
syni og Ólöfu Ríkarðs-
dóttur. Margrét Margeirs-
dóttir flutti kveðjuávarp,
færði fyrst þakkir góðar
fyrir fallega gjöf sem Guð-
rún hafði fært henni frá
Guðrún kveður Margréti.
42