Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Síða 18

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Síða 18
Ragna K. Guðmundsdóttir iðnrekstrarfræðingur og vörustjórnunarfræðingur: Atvinnurekendur ! Hvað haldið þið að við séum? Frá ráðstefnunni sem skipti sköpum. Háskóli tslands - ekki fyrir blinda! Ég er 36 ára einstaklingur sem lauk stúdentsprófi fyrir rúmum 12 árum, frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. A fyrstu önninni í Menntaskólanum fór að bera á því hvað ég var farin að sjá illa. Árið sem ég lauk stúdentsprófinu var sjónin alveg farin. Sumrin á meðan ég var í menntaskóla vann ég á bæjarskrifstofunum í Kópavogi við símavörslu og þess háttar. Árið 1991 hóf ég nám í Há- skóla Islands við Viðskiptafræði- deildina. En í byijun árs 1994 fór að bera á árekstrum á milli mín og eins kennarans í deildinni. Þessi ákveðni kennari sagði við mig að það mundi enginn atvinnurekandi ráða blindan viðskiptafræðing til starfa. Einnig var ósætti milli okkar um fram- kvæmd prófa. Ég sagði kennaranum að ég þyrfti að fá lengri tíma í prófi en sjáandi nemandi. Svarið hans var: “Ef þú getur ekki tekið prófið á sama tíma og aðrir nemendur, á fjórum tímum, þá hefur þú ekkert að gera í Háskólanum”. Þetta kom mér svolit- ið á óvart þar sem þeir nemendur sem eru lesblindir fá mun lengri próftíma en aðrir en þetta gilti víst ekki fyrir þá sem eru alveg blindir. Á endanum flæmdist ég burt úr Háskólanum um haustið 1994, vegna óvilja skólans að skapa aðstöðu fyrir blinda nemendur. Ég ákvað að láta ekki þar við sitja en vík að því seinna. Tækniskóli íslands - fyrir blinda! Ég hafði heyrt talað um Tækniskóla Islands og var búin að hugsa svolitið um að taka eina grein í Tækni- skólanum svo að ég þyrfti ekki að lenda aftur hjá þessum kennara í Há- skólanum. Ég lagði leið mína upp í Tækniskóla í fyrstu vikunni í október 1994 og talaði þar við kennslu- stjórann í rekstrardeildinni, Stein- grím Steingrímsson. Hann veitti mér heilmiklar upplýsingar um iðn- rekstrarfræðinámið. Það kom í ljós að nemendur í iðnrekstrarfræðinni eru bara teknir inn í janúar en þurfa að sækja um skólavist vorið áður. Samkvæmt þeim reglum hefði ég ekki getað byrjað í skólanum fyrr en eftir rúmt ár, en eftir að Steingrímur sá einkunnablað mitt ákvað hann að ég gæti komið í skólann í byrjun janúar 1995, 11 vikum seinna. Ég reyndi að fá mér vinnu í þessar vikur áður en Tækniskólinn hæfist í byrjun janúar 1995 en það tókst ekki sökum sjónskerðingar minnar. Á fyrstu önn- inni í skólanum vorum við látin gera ýmis verkefni fyrir fyrirtæki útí bæ en ekki bara þurr og leiðinleg verk- efni eins og gert var í Háskólanum. Lokaverkefnið Á annarri önninni vorum við látin velja hvort við vildum fara í mark- aðsfræði, framleiðslu- eða útvegs- svið. Nemendur taka yfirleitt bara eina aðalgrein en þó hafa nokkrir nemendur við Tækniskólann tekið bæði markaðsfræðina og fram- leiðsluna saman en það hafði þó enginn nemandi tekið öll þrjú sviðin. En það gerði ég því ég gat ekki valið á milli. Ég var sem sagt fyrsti nem- andinn sem tók öll þrjú sviðin en var ekkert lengur en aðrir nemendur að ljúka námi þó hinir nemendurnir hafi bara tekið eina eða hámark tvær aðal- greinar. Ég lauk iðnrekstrarfræðinni í lok janúar 1997. Lokaverkefni mitt snérist um saltfiskverkun sem hefði það að leiðarljósi að hafa fatlað starfsfólk sem vinnuafl, í þessu tilviki að minnsta kosti 10 heyrnarlausa ein- staklinga. Við unnum tvö saman að þessu lokaverkefni, ekki þrjú eins og voru í öllum hinum lokaverkefnis- hópunum: Ragna K. Guðmundsdóttir og Steingrímur Ólafsson. Verkefnið var unnið fyrir Félag heyrnarlausa og Blindrafélagið á íslandi, sem greiddu kostnað af því. En þegar við Stein- grímur vorum búin að kynna verk- efnið okkar fyrir nokkrunr einstakl- 18

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.