Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Side 53

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2000, Side 53
Ritþj álfavæðing framsækinna skóla sameiginleg markmið samhents hóps aðstandenda Við greiningu á kaupendum nýrra Ritþjálfa á árinu 2000 vekur það athygli að meiri- hluti þessa hóps eru skólar sem áttu eldri tæki þessarar tegundar fyrir og eru að fjölga tækjum. Ástæðurnar eru fyrst og fremst góð reynsla af lágum rekstrar- kostnaði tækj- anna, einfaldleiki í notkun og §öl- hæfni. ínokkrum skólum hafa stj órnendur, kennarar og for- eldrar tekið hönd- um saman um að Ritþjálfavæða skóla sinn á þann hátt að aðdáunarvert er og til eftirbreytni fyrir aðra skóla. í Kleppjárnsreykjaskóla hafa frá árinu 1997 verið nokkrir Ritþjálfar í vélritunarkennslu en einnig hafa þeir af og til verið notaðir við aðra kennslu eftir áhuga og áherslum ein- stakra kennara. í febrúar á þessu ári keypti Kvenfélag Lunddæla Ritþjálfa fyrir lesblindan nemanda í Klepp- járnsreykjaskóla að beiðni skólans. I mars keypti foreldri nemanda við Kleppjárnsreykjaskóla Ritþjálfa fyrir son sinn samkvæmt ráðleggingu sérkennara við skólann. í Brekkuskóla á Akureyri hafa 16 Ritþjálfar verið frá árinu 1998 að Skólaskrifstofa Akureyrarbæjar keypti slík tæki fyrir alla grunn- skólana í bænum. I febrúar á þessu ári keypti skólinn 8 nýja Ritþjálfa þannig að heilt bekkjarsett gæti verið til ráðstöfunar fyrir kennara. Þegar Foreldrafélag Brekkuskóla spurðist fyrir um það í skólanum hvað kæmi sér best fyrir skólann að fá frá for- eldrum var svarið “Fleiri Ritþjálfa”. í Sandgerðisskóla er 11 ára dreng- ur með ritörðugleika og notar hann Ritþjálfa sem foreldrar hans keyptu í fyrra handa honum til að skila heima- og tímaverkefnum. Kennarar drengsins sáu kosti tæk- isins og báðu Foreldrafélagið að gefa skólanum tvo Ritþjálfa fyrir nemend- ur með sömu örðugleika og varð það að veruleika í febrúar. Nú þegar Rit- þjálfarnir þrír hafa sannað notagildi sitt hefur skólinn sett á ijárhags- áætlun sína kaup á Ritþjálfum fyrir skólann. Ekki fer framhjá neinum sem sér slíkan samtakamátt stjórnenda, kenn- ara og foreldra að þar fer hópur sem hefur metnað fyrir hönd sinna skóla. Sameining aðstandenda skólanna við Ritþjálfakaup er til marks urn að reynslan af tækjunum sé góð og stuðli að markvissu námi í upplýs- ingatækni. Viðar Ágústsson. ES. Hér er þessi kynning kær- komin, enda Ritþjálfinn vel kynnt- ur hér áður, en Viðar Ágústsson framkvæmdastjóri Hugfangs, Bol- holti 6 mun gefa allar nánari upp- lýsingar. Síminn er 553-9300. Birna Eyjólfsdóttir Vestmannaeyjum: Þijár stökur Mitt lán Þú ert mitt eina leiðarljós, lánið mitt í dalnum. Þú ert mín fremsta og fegursta rós, en þó fangi sem Jónas í hvalnum. Friður á Fróni Kári blæs nú köldum vindi, kúrum við í ást og yndi. Finnast ei betri vinir á Fróni. Friður ríkir með Gunnu og Jóni. Það vorar seint Sólarlaust er sérhvern dag, sést ekki í auða jörð. Með von um birtu og betri hag, er bátar sigla út á fjörð. Birna Eyjólfsdóttir. Viðar Ágústsson FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 53

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.