Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Síða 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Síða 5
Sigurbjörg Níelsdóttir Kynning og þakkir r Asíðustu vordögum hvarf Guðríður okkar Gísla- dóttir héðan af starfsvettvangi og fór til annarra starfa. Nær tvo áratugi hafði Guð- ríður gegnt hér starfi af ein- stakri trúmennsku og sam- viskusemi, hress kona og hug- þekk öllum. Var hún því kvödd hér með mikilli þökk og eftirsjá. En maður kernur í manns stað og hingað á skrifstofuna var ráðin, sem starfsmaður Hússjóðs, Sigurbjörg Níels- dóttir. Sigurbjörg vildi hafa kynn- ingu á sér sem allra stysta en leyfði þó að þessi atriði yrðu tekin fram. Sigurbjörg er fædd í Reykja- vík 21.mars 1958. Foreldrar hennar eru Guðrún Arnadóttir og Níels Elís Karlsson. Systkini hennar eru 5. Sigurbjörg lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík og var síðan við nám í vefnaði úti í Finnlandi. Lengstan hluta starfsaldurs síns vann Sigur- björg við iðjuþjálfun á Geð- deild Landspítalans eða 14 ár. Sigurbjörg á einn son, Sindra Magnússon. Fullvissa ritstjóra er sú að hér hafi vel til tekist um val á starfsmanni og við bjóðum Sigurbjörgu innilega vel- komna til vænna verka og árnum henni allra heilla á ævibraut. H.S. Brosið Við erum alltof spör á brosið. Fátt er þó mikilvægara á tímum bölsýni og erfiðleika en að þekkja gildi þess að brosa. Brosið kostar ekkert, en ávinnur mikið. Brosið auðgar þann sem fær það, án þess að svipta þann neinu sem veitir það. Brosið gerist í einni svipan, en minningin um það getur varað ævilangt. Enginn er svo ríkur að hann geti verið án þess og enginn svo snauður að hann geti ekki veitt það. Brosið skapar hamingju á heimilum og góðvilja í viðskiptum. Bros er vináttuvottur. Bros er þreyttum hvíld og birta þeim sem er dapur. Bros er sólskin þess sorgmædda. Bros verður ekki keypt eða leigt, það fær ekki gildi fyrr en það hefur verið gefið öðrum. Ef einhver er of önnum kafinn eða of þreyttur til að brosa til þín þá skaltu brosa til hans. Enginn þarf eins á brosi að halda og sá sem ekkert bros á til að gefa. Viljir þú vinna vináttu manns skaltu fylgja ráði sem fáum bregst: BROSTU. Hlerað í hornum Karlinn rauk upp með andfælum í rúmi sínu og vakti kerlu sína. “Mig dreymdi svo hræðilegan draum. Mig dreymdi að ég væri dáinn og kominn upp til himna.” Þá sagði kerla hans þessi huggunar- orð: “Kvíddu ekki gæskur. Kannski þú komist þangað aldrei.” Ljóskan sá lýst eftir afbrotamanni og hún sendi óðara umsókn urn starfið. Litli drengurinn hafði verið í veislu með foreldrum sínum og þegar hann var að fara sagði húsráðandi honum að sækja sér hnefa af góðgæti úr skál sem var á borðinu. Drengurinn hikaði og húsráðandi hvatti hann til að vera ekki feiminn og fá sér en enn hikaði drengur. Þá tók húsráðandi hnefafylli sína úr skálinni og gaf drengnum. Á heimleiðinni spurðu foreldrarnir hann að því hvers vegna hann hefði ekki fengið sér. Svar drengsins var einlægt. “Höndin á honum er miklu stærri en höndin á mér.” í skoskri kirkju voru söfnunar- baukarnir látnir ganga urn kirkjuna en þeir komu galtómir til baka. Þá lyfti prestur höndum til hirnins og sagði: “Guð, ég þakka þér fýrir að ég skyldi fá baukana óskemmda til baka.” “Ég á mikinn úrvalshund, sem sækir Morgunblaðið fyrir mig á hverjum degi”, sagði Jón. “Nú gera ekki flest- ir hundar það”, spurði Gunnar, “sækja þeir ekki blöðin fýrir hús- bændur sína?” “Jú, sjálfsagt, en ég er ekki einu sinni áskrifandi að Morg- unblaðinu.” FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 5

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.