Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Side 21

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Side 21
Atvinna með stuðningi Skýrsla Frá Heyrnar- hjálp r IFréttabréfi Heyrnarhjálpar er m.a. greint frá aðalfundi fé- lagsins. Þar var samþykkt álykt- un þar sem skorað er á heil- brigðis- og tryggingaráðherra að beita sér fyrir því að þjónusta við heymarskerta verði bætt, telur fundurinn óviðunandi með öllu að þriggja mánaða bið sé eftir heyrnarmælingu og allt að níu mánaða bið eftir heyrnartækjum. Minnt er á nauðsyn rittúlkunar sem einn þátt sjálfsagðar þjón- ustu við heyrnarskerta. Stjórn Heyrnarhjálpar skipa nú: Einar Gunnarsson formaður og aðrir í stjórn: Árni Sverrisson, Guðjón Ingvi Stefánsson og Guðrún Sig- urðardóttir. Til vara: Helga Kristinsdóttir og Kristín R. Magnúsdóttir. Af mörgu er að taka af ágætu efni fréttabréfsins en hér aðeins birt ályktun um eyrnasuð sem samþykkt hafði verið á sérstökum fundi þ.a.l. Ályktunin er svohljóðandi: Fundur um eyrnasuð,sem haldinn var 2.maí sl. hjá Fé- laginu Heyrnarhjálp, skorar á ráðherra heilbrigðismála að gangast fyrir því, að fólk með eyrnasuð fái að reyna þau lyf, sem reynd hafa verið annars staðar við eyrnasuði og gefið hafa nokkurn bata. Skerðing á starfsorku manna og jafnvel ör- orka er þjóðhagslega dýr og því eðlileg og ófrávíkjanleg krafa okkar að Tryggingastofnun rík- isins taki þátt í þeim lyfja- kostnaði, sem tengist því að reyna ný lyf við þessum mjög svo erfiða kvilla. Eins skorar fundurinn á ráðherra að sjá til þess að þarfir eyrnasuðsþolenda fái meiri athygli, unnið verði að stefnumörkun, lögð áhersla á betri þjónustu og upplýsinga- streymi þeim til handa. Fréttabréfið er hið læsilegasta og tekur á mörgu er snertir vanda heyrnarskertra og mögulegar úr- bætur í málefnum þeirra. H.S. Sá ágæti maður, Björn Sigur- björnsson, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatl- aðra í Reykjavík sendi okkur hingað á sumardögum glögga skýrslu um Atvinnu með stuðningi í Reykjavík 1999-2000. Höfundur skýrslunnar er Árni Már Björnsson þroskaþjálfi, sem heldur utan um þetta verkefni hjá Svæðis- skrifstofunni. Hér á eftir verður minnt á nokkur atriði þessarar skýru skýrslu en að- eins á stóru stiklað. kaflanum um forsögu er sagt að amS, eins og hún er nefnd í skýrslunni, þ.e. aðferðin sé ættuð frá Bandaríkj- unum (Supported Employment). Sambærileg vinnubrögð í atvinnu- leit og eftirfýlgni ástunduð á vegum Svæðisskrifstofu Reykjaness og Akureyrarbæjar áður. Svæðisskrifstofa Reykjavíkur er með amS sem tilraunaverkefni til tveggja ára og hefur alfarið staðið að kostnaði þessa. Rakið er þessu næst ferli amS þ.e. umsókn, undirbúningur, atvinnuleit og eftirfylgd. Bent er á það að atvinnuleitin geti tekið töluverðan tíma en leiðir að því marki sem amS hefur nýtt sér eru: blöð, internetið, vinnumiðlanir, dreifibréf og hringingar, kynning og persónuleg kynni. Eftirfylgdin skilur svo amS frá “hefðbundnum leiðum”. Hún nýtist bæði vinnuveitanda og starfsmanni, getur verið stöðug í upphafi en dví- nar síðan eftir því hve fljótt einstakl- ingnum tekst að tileinka sér starfið. Þá er lýst undirbúningi að verk- efninu m.a. námskeiðshaldi í vinnu- brögðum en frá því framtaki góðu greint í fréttabréfinu áður. Þar næst er ferli verkefnisins lýst, fimmtán einstaklingar hafa komið í viðtöl þegar skýrslan er gefin, um tuttugu bíða viðtala. Ilok apríl 2000 eru 17 einstakling- ar úti á almennum vinnumarkaði undir leiðsögn og eftirfylgd, 5 eru í 100% vinnu, 10 í 50% vinnu, einn í 42% og einn í 25% vinnu. AmS hefur samið við starfs- þjálfunarstaði svo og almenna vinnustaði til að sjá út færni og getu. Síðan er kafli um tengingu launa og bóta og má þar sjá eins og okkur er fullljóst, hve mikil bóta- lækkunin er á móti vinnu- tekjum. 9 einstakl- ingar af þess- um 17 eru með vinnusamning öryrkja við Tryggingastofnun ríkisins með 50% endurgreiðslu til þriggja og 75% endurgreiðslu til sex. Þá er greint frá þjónustusamingi milli Svæðisskrifstofu Reykjavíkur og Tryggingastofnunar ríkisins, sem nær til sex einstaklinga sem TR til- nefnir og amS tekur að sér að koma til vinnu. Lokakaflinn er svo um framtíðar- horfur eftir að tilraunaverkefninu lýkur í árslok nú. Árni Már segir óvíst um framhald en segir að ár- angur af starfinu auki líkurnar á að framhald verði á. Árni Már víkur þar einnig að frumvarpinu um vinnumarkaðsaðgerðir í tengslum við yfirfærsluna til sveitarfélaga þar sem slík aðstoð við fatlaða mundi að samþykktum þeim lögum verða á vegum Vinnumálastofnunar og svæðisvinnumiðlana. Skýr og fróðleg skýrsla er þökkuð og þeim er að vinna hjá amS óskað til hamingju með ágætan árangur. Framhald verður svo vonandi hér á hver svo sem um stýristauma heldur. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 21

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.