Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Qupperneq 25
Frá Námssjóði
Sigríðar Jónsdóttur
Styrkþegar og stjórnarfólk.
Það er einkar
i ánægjuleg stund
ár hvert þegar út-
hlutað er styrkjum úr
Námssjóði Sigríðar
Jónsdóttur. Það eru
þakklátir gestir sem
koma þar til að nálgast
styrki sína sem þó eru
ekki háir að krónutölu
en einstaklega dýrmætir
þeim sem þiggja. Hinn
8. júní sl. fór fram af-
hending styrkja á 9.
hæðinni í Hátúni 10.
Formaður sjóðs-
stjórnar frá upphafi,
Hafliði Hjartarson, flutti
ávarp, rakti tilurð náms-
sjóðsins, upphafið í
góðri gjöf Sigríðar Jóns-
dóttur og síðar með viðbót í gjöf Sig-
urgeirs Steinssonar. Þeirra rausnar
var minnst af þakklæti og hlýhug.
Samkvæmt skipulagsskrá þeirri er
Sigríður gaf um ljós fyrirmæli segir
að styrki skuli veita: annars vegar til
öryrkja til hagnýts náms, verklegs
eða bóklegs svo og til náms í hvers
konar listgreinum og hins vegar til
þeirra sem sérhæfa sig til starfa í
þágu þroskaheftra. Það voru 24 sam-
kvæmt fyrra liðnum og 9 samkvæmt
þeim síðari sem nú fengu styrki þ.e.
33 alls og upphæðin sú hæsta í sögu
sjóðsins eða 980 þús. kr.
Gaman að geta þess í leiðinni að
þessar sex úthlutanir hafa skilað
styrkupphæðum samtals kr. 4. millj.
570 þús.
18 styrkþegar eða fulltrúar þeirra
voru mættir og var þeim hverjum
fýrir sig afhentur styrkurinn. Pétur
Maack Þorsteinsson flutti einkar
hlýja þakkarræðu fyrir son sinn, Sig-
urð, sem er nú við háskólanám í
Kanada. Minnti á mátt samtakanna
og kvað hér einstaklega vel að verki
staðið. Þá færði einn styrkhafa,
Steinunn Arnórsdóttir, sjóðnum lista-
verk fagurt gjört af henni sjálfri.
Menn gæddu sér á ljúffengum
veitingum af lyst góðri og á eftir var
svo myndataka.
Hér fara á eftir nöfn þeirra er
styrki hlutu í stafrófsröð. Aðal-
heiður Erla Davíðsdóttir, Árni B.
Steinarsson, Draumasmiðjan ehf.,
Egill Halldór Egilsson, Eiríkur
Vernharðsson, Friðgeir Einar
Kristjánsson, Friðrik Guðmundsson,
Gabríele Jóhannesson, Guðný Svava
Strandberg, Hamíð Moradi, Heiðdís
Jónsdóttir, Hildur K. Hilmarsdóttir,
Hjördís Kristjánsdóttir,
Hlíf Sævarsdóttir, Hulda
Jóhannesdóttir, Inga
Fjóla Sigurðardóttir,
Kristbjörn Guðmunds-
son, Kristján Friðgeirs-
son, Laufey E. Gissurar-
dóttir, Maggý Magnús-
dóttir, Maren A. Jakobs-
dóttir, Norma Samúels-
dóttir, Petrína M. Árna-
dóttir, Sigurbirna
Oliversdóttir, Sigurður
Einarsson, Sigurður
Pétursson, Sigurlaug M.
Ómarsdóttir, Snorri G.
Bergsson, Steinunn
Arnórsdóttir, Starfsbraut
FB, Systkinasmiðjan,
Valgerður Jónsdóttir
(Tónstofan) og Þóra E.
Arnardóttir.
Megi þau sem allra best njóta þessa
liðsinnis sjóðsins.
Formaður sjóðsstjórnar nú er Haf-
liði Hjartarson, en önnur í stjórn
Margrét Margeirsdóttir og undir-
ritaður. Hafa þau öll verið frá upp-
hafi sjóðsins en munu öll a.ö.l. láta af
störfum á þessu ári.
H.S.
Tvær snjallar
Hann Óskar Bjömsson í Neskaupstað sem á hér svo góða og kærkomna
sendingu í blaðinu lét ritstjóra í té tvær vísur, aðra eftir Gallupskönnun
þar sem fram kom að fólk á ellilaunum hefði það harla gott og hljóðar
svo:
Hundraðfalt nú hrópa má
húrra það sem könnun sýnir:
Að flestir lifa allvel á
ellilaunum, Gallups rýnir.
Og svo sendi hann þessa vísu á fimm tungumálum:
Gone away ein gutter Mann,
Guds til hcþje sale.
Framar aldrei finnum hann,
frater bone vale.
En síðasta setningin er latína og þýðir: Hvíl í friði kæri bróðir. Og
ritstjóri segir bara: Geri aðrir betur.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
25