Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 4

Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 4
Mér finnst þörf á að taka alvarlega á þessu máli og sérstakt að það hafi ekki verið gert löngu, löngu fyrr. Sveinn Óskar Sigurðsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók sæti í ráð- gjafaráði sem nefnist Progressive International. Um er að ræða nýtt alþjóðlegt bandalag vinstri hreyfinga um allan heim. Í ráðinu sitja stjórnmálamenn, aðgerðasinnar og fræðimenn frá öllum heimshornum. Meðal þeirra eru Noam Chomsky, Naomi Klein, Arundhati Roy, Yanis Varoufakis og Fernando Haddad. Daði Freyr tónlistarmaður og Eurovision-fari vann Euro- vision-keppni Svía sem haldin var í vikunni. Söngvakeppnin átti að fara fram á laugardag en var blásin af vegna COVID-19. Daði hlaut milljón atkvæði sem er þó nokkur sárabót fyrir að fá ekki að stíga á svið í Rotterdam eins og til stóð. Sigurður Tómas Magnússon dómari við Landsrétt hefur verið skip- aður dómari við Hæstarétt Íslands frá 18. maí næstkom- andi. Hann var metinn hæfastur umsækjenda um embætti dómara við Hæstarétt að mati dómnefndar sem skilaði niðurstöðu sinni í síðustu viku. Þrjú í fréttum Ráðgjafarráð, Hæstiréttur og Eurovision TÖLUR VIKUNNAR 10.05.2020 TIL 16.05.2020 38% Íslendinga ætla að versla meira við íslensk fyrirtæki en áður, samkvæmt könnun Zenter. 4,5 trilljónum Bandaríkjadala hafa þjóðir heims varið í aðgerðapakka. 39 milljónir króna er kostnaður Ísafjarðarbæjar af snjóflóðunum sem féllu á Flateyri. 96% afgreiddra umsókna frá fyrirtækjum um greiðslufrest á lánum hafa verið samþykkt. 25 prósenta aukning á að verða á innlendri framleiðslu á grænmeti á næstu þremur árum. ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.FIATPROFESSIONAL.IS • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 FIAT HÚSBÍLAEIGENDUR ER HÚSBÍLLINN ÞINN KLÁR FYRIR SUMARIÐ? BJÓÐUM UPP Á SMURÞJÓNUSTU OG LÉTTA ÁSTANDSSKOÐUN FYRIR SUMARIÐ: • SJÓNSKOÐUN Á BREMSUKERFI OG UNDIRVAGNI • LJÓS YFIRFARIN • ÁSTAND HJÓLBARÐA METIÐ OG LOFTÞRÝSTINGUR MÆLDUR • ÞURRKUR OG RÚÐUSPRAUTUR YFIRFARNAR • ÁSTAND KÆLIKERFIS METIÐ • HLEÐSLA RAFKERFIS MÆLD. ALLIR VINNA – ENDURGREIÐSLA Á VSK Á VINNULIÐ AÐ LÁGMARKSUPPHÆÐ 25.000 KR. ÁN VSK. HEILBRIGÐISMÁL Asbest fannst á þremur stöðum í Varmárskóla í Mosfellsbæ við athugun í vetur. Annars vegar í tveimur sólbekkjum í gluggum og hins vegar í ysta lagi gólfklæðningar. Samkvæmt skýrslu Skimu, sem skoðaði skólann, er ekki talin þörf á að fjarlægja gólf- klæðninguna þar sem hún sé ekki aðgengileg að utan, en mælst er til þess að sólbekkirnir verði fjarlægðir. Sveinn Óskar Sigurðsson, bæjar- fulltrúi Miðf lokksins, fór þess á leit að könnun yrði gerð á asbesti í opinberum byggingum, sérstak- lega leik- og grunnskólum. En bor- ist hafði erindi frá íbúa um asbest í Varmárskóla, þegar þar voru nýlega gerðar framkvæmdir vegna myglu. Skima skoðaði húsnæði í alls níu byggingum. Asbest fannst á þremur stöðum í Varmárskóla. Hinar bygg- ingarnar voru asbestlausar, til dæmis leikskólarnir Hlíð og Hlað- hamrar, íþróttamiðstöðin að Varmá og Bæjarleikhúsið. Asbest, sem er samheiti yfir nokkrar steintegundir sem mynda þráðkennda kristalla, var bannað á íslandi árið 1983, með undantekn- ingum, vegna þess að það telst afar heilsuspillandi. Asbest brotnar auðveldlega niður, og myndar ryk í nálaformi sem fest- ist í lungum við innöndun. Skaðinn kemur oft fram áratugum síðar, meðal annars sem lungnakrabba- mein, f leiðrukrabbamein eða stein- lunga, og getur leitt til dauða. Ástæða erindis íbúans var dóms- mál er varðaði asbest í Varmár- skóla. Ekkja manns sem lést árið 2006 krafðist 7 milljóna króna bóta frá Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og íslenska ríkinu fyrir dómstólum, vegna þess að hann hafði verið lát- inn saga og sníða asbestplötur fyrir skólann sem lærlingur árið 1975. Árið 2009 úrskurðaði héraðs- dómur og taldi að vissulega hefði hinn látni þarna komist í tæri við asbest og að það hefði leitt hann til dauða. En sýknaði sveitar- félögin og ríkið á grundvelli þess að hættan hafi ekki verið mönnum kunn á þeim tíma. Hæstiréttur taldi hins vegar vitnisburð læknis ekki næga ástæðu til að sýna fram á orsakasamhengi þessarar til- teknu vinnu og sjúkdómsins sem leiddi umræddan mann til dauða, og sýknaði einnig. Sveinn telur mikilvægt að kort- leggja nákvæmlega hvar asbest sé og að allir séu upplýstir. „Mér finnst þörf á að taka alvarlega á þessu máli og sérstakt að það hafi ekki verið gert löngu, löngu fyrr,“ segir hann. „Starfsfólk þarf að vera vel upplýst um þetta því eins og mér skilst þá má ekki einu sinni negla nagla í veggi með asbesti.“ En samkvæmt skýrslu Skimu var hoggið upp úr sólbekkjum á tveim- ur eða þremur stöðum. Ekki er vitað hvenær það gerðist en við loft- og stroksýnatökur fundust ekki merki um asbest í starfsmannarými. Telur Sveinn eðlilegt að heilbrigðiseftir- litið hafi aðkomu að málinu. „Samkvæmt þeim leiðbeiningum sem bæði Vinnueftirlitið og Skima hafa veitt Mosfellsbæ er óhreyft eða innpakkað asbest ekki hættulegt og notkun á húsnæði þar sem þannig háttar til óhætt,” segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri. „Umhverfissvið Mosfellsbæjar hefur hins vegar lagt til, og bæjar- ráð staðfest þá tillögu, að umrætt byggingarefni verði fjarlægt af verk- tökum sem uppfylla skilyrði Vinnu- eftirlitsins til þess háttar vinnu og verður verkið unnið nú í sumar.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Asbest fannst í sólbekkjum og klæðningu í Varmárskóla Við athugun á níu byggingum Mosfellsbæjar í vetur fannst asbest á þremur stöðum í Varmárskóla, í gólfklæðningu og sólbekkjum. Bekkirnir verða fjarlægðir í sumar, en högg sást á þeim á stöku stað. Árið 2009 var rekið dómsmál um hvort asbestvinna í skólanum hefði valdið dauða manns áratugum síðar. Asbest fannst í sólbekkjum og í gólfklæðningu skólans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.