Fréttablaðið - 16.05.2020, Síða 26

Fréttablaðið - 16.05.2020, Síða 26
RÉTT FYRIR JÓL GREIND- IST PABBI MINN MEÐ ALVARLEGT KRABBAMEIN, EN HANN ER AÐEINS 57 ÁRA GAMALL OG ÞVÍ VAR ÞAÐ MIKIÐ ÁFALL. Þau Ása Berglind og sambýlismaður hennar Tómas Jónsson tón-l i st a r m aðu r höf ðu ákveðið að gifta sig nú í sumar og halda enn í vonina, þrátt fyrir að fjölmörg pör hafi frestað stóra deginum. Þau ætla aðeins að sjá hvernig mál þróast og hafa sínar ástæður fyrir því. „Rétt fyrir jól greindist pabbi minn með alvarlegt krabbamein, aðeins 57 ára gamall. Það ýtti við okkur, því lífið er jú bara akkúrat núna. Þar að auki get ég ekki hugsað mér að gifta mig án þess að hafa pabba minn með og eins og þetta leit út til að byrja með, þá vorum við ekki sérlega bjartsýn. En það er gaman að segja frá því að við feng- um stórkostlegar fréttir í lok apríl, þegar niðurstöður úr rannsóknum sýndu að hann er að svara lyfja- meðferð mjög vel, svo nú horfum við bjartari augum fram á veginn,“ segir Ása einlæg. En það er skammt stórra högga á milli og í lok mars missti Ása vinnuna. „Það má segja að ég og maður minn höfum strax fundið fyrir efnahagslegum áhrifum COVID. Hann er sjálfstætt starfandi tón- listarmaður og missti öll sín verk- efni strax í lok febrúar og sér ekki fyrir endann á því. Ég var að vinna á fallegum veitingastað í Þorláks- höfn við markaðsmál og tónleika- hald, en var sagt upp í lok mars. Það er alveg sérstök tilfinning að missa vinnuna og vondur staður að vera á, sérstaklega þegar ástandið er eins og það er.“ Auðvitað græja ég þetta bara Ása Berglind Hjálmarsdóttir sneri vörn í sókn þegar hún missti vinnuna í mars og hefur sett í loftið vefsíðuna tofrandibrudkaup.is þar sem hún býður upp á þjónustu fyrir þá sem eru í brúðkaupshugleiðingum. Ása Berglind og sambýlismaður hennar ákváðu að bíða ekki með brúðkaupið, þegar faðir Ásu greindist með alvarlegt krabbamein rétt fyrir síðustu jól. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 10 ráð frá Ásu fyrir verðandi brúðhjón n Það er æskilegt (ekki lífsnauðsynlegt þó) að gefa sér að minnsta kosti 6-12 mánuði í undirbún- ingstíma. n Búið til kostnaðar- áætlun og fylgist með því sem þið eruð að eyða. Þetta safnast fljótt saman. n Brúðarkjóla og sér- hannaðan fatnað þarf oft að panta með að minnsta kosti 6 mánaða fyrirvara, stundum fyrr, til að vera 100% örugg um að fá það sem ykkur langar mest í. n Nýtið ykkur íslenska þjónustuaðila. Oft er ekkert mikið ódýrara að panta á erlendum síðum þegar öll gjöld eru komin ofan á. n Kaupið notað eins og hægt er. n Matur er manns gam- an. Matur getur verið alls konar og engin ein leið er rétt, bara hafa nóg af honum og passa að það séu góðir valmöguleikar fyrir vegan fólk. n Fáið aðstoð! Og ekki gleyma að undirbúa niðurtekt í veislusal ef hún er á ykkar vegum. n Munið að njóta ferðalagsins. Undir- búningurinn er líka skemmtilegt ferli og stór hluti af þessum tímamótum, verið saman í því ferli og hafið gaman að því. n Bókið tíma fyrir ykkur saman í spa eða eitthvert dekur í vikunni fyrir brúð- kaupið. Andið, njótið og leyfið ykkur að hlakka til. n Sama hvernig allt fer þá verður þetta töfrandi og ógleym- anlegur brúðkaups- dagur, treystið því og þá þarf enginn að fara yfir um. Umboðsmennska og tónleikar Ása stundar mastersnám í menn- ingarstjórnun við Háskólann á Bif- röst, en áður hafði hún lokið tón- listarnámi frá Listaháskólanum og hefur mestmegnis starfað á því sviði. „Ég hef frá árinu 2012 verið umboðsmaður og tónleikahaldari og unnið með frábæru fólki við að setja upp metnaðarfulla viðburði, sem er með því skemmtilegra sem ég geri.“ En að brúðkaupsskipulaginu, hugmyndina að þjónustunni segir Ása hafa komið upp þegar þau hjónaleysin ákváðu að gifta sig. „Ég fór þá á internetið í leit að upplýsingum. Ég var að vonast til að finna síðu sem myndi leiðbeina og veita mér innblástur, því brúð- kaup er alveg sérstakur viðburður. Okkur langar að fagna þessum degi með stórum hópi vina og ætt- ingja og það er í virkilega mörg horn að líta í undirbúningnum. Ég fann margar erlendar síður með skemmtilegum sögum, prakt- ískum upplýsingum, gullfallegum myndum sem veittu mér mikinn innblástur og hugsaði oft: Af hverju í ósköpunum er enginn búinn að gera þetta á Íslandi? Svo bara kviknaði á perunni – auðvitað græja ég þetta bara og býð þá að auki upp á eigin þjónustu. Þegar ég svo missti vinnuna mynd- aðist tími og rými til að hrinda þessu í framkvæmd.“ Vefurinn tofrandibrudkaup.is er nú kominn í loftið en þar er að finna praktískar og skemmtilegar upp- lýsingar sem tengjast brúðkaupum og undirbúningnum öllum, bæði í bloggi og hlaðvarpi. „Í hlaðvarpið fæ ég til mín fagaðila sem munu fræða, gefa góð ráð og segja sögur úr brúðkaupsbransanum, og á blogginu verða ýmsar praktískar upplýsingar og sögur frá íslenskum brúðhjónum, svo eitthvað sé nefnt.“ Ása ætlar jafnframt að gefa þjónustuaðilum; ljósmyndurum, veisluþjónustum, verslunum, tón- listarfólki og f leirum, kost á að koma sér á framfæri. „Síðast en ekki síst er ég með ólíkar þjónustu- leiðir fyrir tilvonandi brúðhjón, allt frá litlum skipulagspakka fyrir þau sem vilja gera allt sjálf og upp í það að sjá alfarið um skipulag og fram- kvæmd brúðkaupsins. Þar að auki býð ég upp á að útbúa heimasíður sem margir nota orðið í staðinn fyrir, eða með fram, boðskortum.“ Mikilvægt að halda geðheilsunni Ása viðurkennir að það sé sérstök tilfinning að opna viðburðaþjón- ustu í miðju samkomubanni. „Fyrir mig persónulega gefur það mér til- gang, jafnvel þó ég viti að það muni örugglega líða svolítill tími þar til ég fer að fá tekjur úr þessu verkefni. Auðvitað er þetta gríðarlega erfiður tími fyrir fyrirtæki sem veita þjón- ustu á viðburðum, en á sama tíma má vonandi reikna með því að það verði tvöfalt meira að gera næsta sumar. Eins er rétt að hafa í huga að þau sem ætla að gifta sig næsta sumar eru farin, eða fara mjög fljót- lega, af stað í að undirbúa sig og bóka hitt og þetta. Svo það er von.“ Aðspurð um algengustu mis- tökin sem brúðhjón geri segir Ása það vera að ætla sér að gera allt sjálf. „Það er virkilega mikilvægt að halda geðheilsunni og vera ekki farin yfir um af stressi þegar dagurinn kemur loks, svo það er nauðsynlegt að fá aðstoð. Að virkja fjölskyldu og vini og ráða inn fagaðila í ólík verkefni og gæta þess að úthluta verkefnum á skipulagðan hátt.“ Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is 1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.