Fréttablaðið - 16.05.2020, Side 36

Fréttablaðið - 16.05.2020, Side 36
Sótt er um rafrænt á www.slipp.is Umsóknarfrestur er til 25. maí 2020 Nánari upplýsingar veitir: Kristján Heiðar Kristjánsson Netfang: khk@slipp.is eða í síma: 460 2900 Stálsmiðir Starfssvið stálsmiða: · Nýsmíði · Stálviðgerðir skipa · Almenn plötu-, stál- og rörasmíði Vélvirki Starfssvið vélvirkja: · Vélaviðgerðir skipa · Þrýsti- og vökvalagnir · Uppsetning vélbúnaðar · Aðrar tilfallandi vélaviðgerðir Við óskum eftir að ráða til starfa vélvirkja og stálsmiði Við erum að leita! Slippurinn Akureyri er leiðandi fyrirtæki á sviði málmiðnaðar á Íslandi og býður hei- ldarlausnir í málmiðnaði og véltækni með sérhæfingu í endurnýjun og viðhaldi á skipum, ásamt hönnun og framleiðslu á vinnslubúnaði fyrir sjávarútveg. Slippurinn leitast við að vera eftirsóknarverður vinnustaður, þar sem fyrsta flokks fagleg þekking og þjónustuvilji fara saman. Markmið mannauðsstefnu fyrirtækisins er að starfsmenn njóti jafnréttis og öðlist faglegan þroska í starfi þar sem styrkleikar hvers og eins fái notið sín. Menntunar- og hæfniskröfur: · Sveins- eða meistarabréf í viðkomandi iðngrein · A.m.k. 5 ára reynsla í greininni · Faglegur metnaður og öguð vinnubrögð · Stundvísi og áreiðanleiki · Frumkvæði, sjálfstæði og útsjónarsemi í vinnubrögðum · Sterk öryggisvitund · Lipurð í mannlegum samskiptum Naustatanga 2 600 Akureyri Sími 460 2900 slipp@slipp.is www.slipp.is Við leitum að öflugum einstaklingi og traustum liðsfélaga í starf fjármálastjóra Daga. Fjármálastjóri ber ábyrgð á stjórnun og rekstri fjármálasviðs, þjónustu þess og virkni. Fjármálastjóri heyrir undir forstjóra, situr í framkvæmdastjórn og tekur virkan þátt í að þróa þjónustuna að þörfum viðskiptavina og félagið að nýjum viðskiptatækifærum. Fjármálasvið heldur utan um fjármál og fjármálagerninga félagsins. Greinir og miðlar upplýsingum til stjórnenda sem gefa glögga mynd af rekstri, fjárhag og horfum félagsins á hverjum tíma og framvindu lykil áhersluþátta og verkefna. Fjármálastjóri (CFO) Meginverkefni fjármálasviðs • Reikningshald – Stýring og eftirlit með færslu bókhalds, skattaskilum, mánaðarlegum uppgjörum, árshluta uppgjörum og gerð ársreikninga. • Fjárstýring – Reikningagerð, innheimtur, greiðslur, dagleg lausafjárstýring og samskipti við lánastofnanir vegna fjármögnunar. Umsjón með rekstrar- og fjármögnunarleigusamningum, samningum við birgja og samræmdum innkaupum. • Launavinnsla – Launavinnsla, útgreiðsla launa, skil á sköttum, gjöldum og lífeyrissjóðsgreiðslum. Greining og yfirlit á launum, veikindum, frítöku ásamt vöktun, greiningu og eftirliti vegna jafnlaunastefnu. • Leiðsögn og miðlun – Greining og miðlun rekstrar- tengdra upplýsinga, áætlanagerð, eftirlit og vöktun á mælikvörðum og skýrslugjöf til stjórnar og stjórnenda. Greining, umbætur og eftirlit með helstu ferlum er varða rekstur og fjármál. Rekstur, viðhald og framþróun grunn upplýsingakerfa til samræmi við þarfir starfseminnar. Menntunar- og hæfniskröfur • Viðskipta- eða rekstrarmenntun á háskólastigi • Góð samskiptafærni og leiðtogahæfileikar • Yfirsýn, greiningarhæfni og nákvæmni • Stjórnunar- og rekstrarreynsla • Framsýni, skipulagshæfileikar, drifkraftur og seigla • Haldgóð þekking og reynsla af reikningshaldi og fjárstýringu • Brennandi áhugi og metnaður fyrir umbótum og starfrænni umbreytingu í starfseminni Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Sótt er um starfið á vef Capacent, capacent.com/s/25353 Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2020. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Nánari upplýsingar veitir Hilmar Hjaltason (hilmar.hjaltason@capacent.is) VIRÐING - FRUMKVÆÐI - ÁBYRGÐ - GÆÐI Starfsfólk Daga telur um 800 einstaklinga og nemur ársvelta félagsins um 5 milljörðum kr. Dagar eru leiðandi fyrirtæki í ræstingaþjónustu, fasteignaumsjón og tengdri þjónustu við fyrirtæki og stofnanir. Starfsemin teygir anga sína víða um land. Dagar eru með starfsstöðvar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ auk höfuðstöðva í Garðabæ. Hjá Dögum starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt og verkvit til að létta viðskiptavinum sínum lífið. Gildin okkar eru virðing, frumkvæði, ábyrgð og gæði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.