Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 37

Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 37
0 Tryggingar og raogjof 0 Tryggingar og raogjof 0 Tryggingar og raogjof Tryggingar og ráðgjöf ehf. óskar eftir að ráða forstöðumann/konu söludeildar. Starfið felur í sér að halda utan um söludeild, hafa um- sjón með dreifingu, sölugögnum, markaðssetningu og kennslu. Helstu verkefni og ábyrgð • Rekstur söludeildar • Söluáætlanir • Markaðssetning • Kennsla Hæfnikröfur • Skipulagshæfileikar • Sjálfstæð vinnubrögð • Góð færni í mannlegum samskiptum • Mjög góð tölvukunnátta • Reynsla af stjórnun • Menntun í viðskipta-, markaðsfræði eða tengdum fögum er kostur Tryggingar og ráðgjöf ehf. er í samstarfi við nokkur evrópsk tryggingafélög sem eru að bjóða nýjar og mjög spennandi vörur fyrir íslenskan markað. Um er að ræða fullt starf í dagvinnu. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Vinsamlegast sendið umsókn (ferilskrá og kynningar- bréf) á storf@tryggir.is. Umsóknarfrestur er til 26. maí 2020. Nánari upplýsingar veitir Ásgerður Ágústsdóttir asgerdur@tryggir.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Tryggingar og ráðgjöf ehf. er löggilt vátryggingamiðlun staðsett í Sóltúni 26, 105 Rvk. Nánar um starfsemi T&R er að finna á www.tryggir.is. Menntunar- og hæfniskröfur · Leikskólakennaramenntun · Reynsla af starfi í leikskóla kopavogur.is Kópavogsbær auglýsir starf skipulagsstjóra laust til umsóknar. Skipulagsstjóri stýrir skipulags- og byggingardeild bæjarins en þar starfar 14 manna samhentur hópur. Hann hefur umsjón með þróun á sviði skipulagsmála í bænum og ber ábyrgð á að meðferð skiplagsmála sé í samræmi við samþykkta stefnumótun, gildar skipulagsáætlanir og að farið sé eftir lögum og reglugerðum. Hann er ráðgjafi bæjarstjórnar í skipulagsmálum. Helstu verkefni · Daglegur rekstur skipulags- og byggingardeildar. · Vinnur skipulagsáætlanir (aðal-, deili- og hverfisskipulags) og skipulags- og byggingarskilmála. · Umsjón og eftirlit með gerð umhverfismats áætlana. · Útgáfa framkvæmdaleyfa og gerð umsagna um skipulags- og byggingarerindi. · Umsjón með grenndarkynningu deiliskipulagsbreytinga og byggingarleyfa. · Auglýsir skipulagslýsingar og skipulagsbreytingar lögum samkvæmt. · Undirbúningur funda skipulagsnefndar og umhverfis- og samgöngunefndar. · Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila. · Þátttaka í samráðshópum um skipulags- og byggingarmál. · Situr í fagráði svæðisskipulagsnefndar SSH. · Umsagnir vegna kærumála og álitaefna í samstarfi við lögfræðideild. Menntunar- og hæfniskröfur · Meistarapróf á háskólastigi sem nýtist í starfi. · Löggiltur skipulagsfræðingur eða sambærileg menntun sbr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. · Leiðtogahæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum. · Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu. · Lausnamiðuð hugsun og færni í framsetningu efnis. · Þekking á teikniforritum og öðrum forritum tengdum skipulagsvinnu. · Þekking á skjalavistunarkerfum er kostur. · Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2020. Nánari upplýsingar um starfið veitir Steingrímur Hauksson, sviðsstjóri umhverfissviðs (steingr@kopavogur.is). Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Skipulagsstjóri Kongsberg búnaður og skipahönnun er í fremstu röð í heiminum og hefur þjónað íslenskum útgerðum í áratugi með áreiðanleika og endingu að leiðarljósi. Skipið Ilivileq, sem er nýjasta skipið í eigu íslenskrar útgerðar, er frábær vitnisburður um glæsilegt fullvinnsluskip frá Kongsberg. Við leitum að deildarstjóra fyrir sölu og þjónustudeild Kongsberg Maritime hjá Héðni til að fara fyrir hópi sérfræðinga í sölu og þjónustu á búnaði frá Kongsberg um borð í skipum. DEILDARSTJÓRI KONGSBERG Helstu verkefni: • Yfirumsjón með samstarfi við Kongsberg • Samskipti við viðskiptavini í stærri nýsölu- og þjónustuverkefnum og tengsl þeirra við viðeigandi deildir hjá Kongsberg • Umsjón starfsmannamála í samstarfi við verkstjóra og þjónustustjóra • Skipulag deildar og mótun verkferla Hæfniskröfur: • Verk- og tæknimenntun með reynslu í skipaþjónustu • Mjög góður tæknigrunnur og tölvufærni • Reynsla og þekking á búnaði frá Kongsberg Maritime eða sambærilegum búnaði • Góð þekking á ritaðri og talaðri íslensku og ensku • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun • Stundvísi, skipulagshæfni og færni í mannlegum samskiptum • Rík þjónustulund Héðinn hf. er fyrirtæki með nærri 100 ára sögu af þjónustu við sjávarútveg og iðnað. Hjá Héðni starfa um 100 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun til framleiðslu fullbúins tækjabúnaðar ásamt eftirfylgni og þjónustu. Umsóknarfrestur er til og með 27. maí nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 1 6 . M A Í 2 0 2 0
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.